Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 93

Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 93
Þetta varð til þess að fólk slóst í þessa för og brátt voru komnir um þrjú til fjögur hundruð manns í þessa „prósessíu“ á eftir vesalings konunum. Lögreglunni tókst að dreifa hópnum þegar komið var austur undir Vatnsstíg. Alþýðublaðið skýrði frá því í desember 1922 að börn bæjarins gengju eins og villidýr á götunum, eftirlits- laus með öllu af lögreglunnar hálfu. Þau væru úti fram á nótt og skytu púðurkerl- ingum svo að lífsháski væri að ganga um göturnar. Þá sagði Morgunblaðið 27. októ- ber 1927, svo að dæmi sé tekið, að uppþot hefði orðið fyrir framan húsið Hverfisgötu 92. Strákahópur hafði tekið eftir því að tveir piltar fóru í heimsókn til mæðgna nokkurra sem þar bjuggu. Strákarnir hófu þá skothríð með grjóti á húsið og varð lögreglan að koma á vettvang til að skakka leikinn. Atferli reykvískra bama var gert að umtalsefni í Morgunblaðinu sumarið 1928. Þar sagði að eitt hið ógeðslegasta sem fólk yrði þráfaldlega vart við á götum Reykjavíkur og það meira að segja á aðal- götunum væri framferði sumra unglinga. Drengir, urn eða yfir fermingaraldur, hefðu það sér til skemmtunar að safnast í hópa á götunum og æpa á vegfarendur með alls konar óhljóðum, stríðnis- og hæðnisorðum og uppnefnum ef þeir gætu fundið út eitthvað þess háttar sem hrífi á fólk og því gæti sárnað að heyra. Aðallega yrðu veiklaðar eða vankaðar nranneskjur fyrir þessum árásum, fólk sem eitthvað væri að eða ekki eins og fólk er flest að framkomu eða útliti, fólk sem yrði að bera sinn kross fyrir allra augum. Þá sagði í greininni að ef vandað væri um fyrir þessum unglingum „þá stendur venjulega ekki á svörunum, þau eru ekki valin af betri endanum, þá er leitað að því versta orðsorpi sem til er og það óspart notað.“ Reykjavík var aðeins 20 til 30 þúsund manna bær á þessurn tírna og slúðursögur gengu með leifturhraða milli húsa. Götu- strákamir, sem voru rétt að byrja að komast á kynþroskaaldur, voru sérstaklega næmir fyrir ástalífi Reykvíkinga. Ef einhver var grunaður um lauslæti eða framhjáhald þá gat hann átt von á því að vera eltur um allar götur með skensi og dónalegu orðbragði. Konur sem lentu í þessu urðu að halda sig innan dyra vikum og mánuðum saman til þess að losna undan þessari áþján. Og krakkarnir voru sjálfir auðvitað farnir að fikta við kynlíf. Veturinn 1933 til 1934 veiktust nokkur barnaskólabörn af kynsjúkdómi. Formaður barnaverndar- nefndar gaf út yfirlýsingu í blöðum vegna slúðurs í bænum. Hann sagði: „Það hefur vakið umtal í borginni að Mynd að ofan: Braggahverfi á Skólavörðuholti. Eftir stríð urðu fjölmargar reykvískar fjölskyldur að láta sér lynda að búa í bröggum og það setti sitt mark á börn sem þar ólust upp. Þau voru kölluð braggaskríllinn afþeim börnum sem bjuggu við betri húsakynni. Mynd til hœgrí: Jólatrésskemmtunfyrir fátœk börn hjá Hjálprœðishernum snemma á öldinni. Eftirvœnting og gleði skín úr hverjum svip því heima við var stundum fátt hœgt að gera sem minnti á jólin. Mynd að ofan: Áhyggjufulllir uppeldisfrÖmuðir töhiðu um ógn- vænlega barnaglœpi í Reykjavík á öðrum og þriðja áratugnum þó að þar byggju aðeins 20 til 30 þúsund manns og götulífið vœri harla fábreytt. Mynd til hœgrí: Trúfélög leiddu margt barnið og unglinginn á rétta vegu á fyrri hluta aldarinnar. Hér er séra Friðrik Friðriksson, leiðtogi KFUM. meðal lœrisveina sinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.