Heimsmynd - 01.05.1993, Page 18

Heimsmynd - 01.05.1993, Page 18
Um framkvæmd skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar Könnun þessi var framkværnd á tímabilinu 1.-19. apríl og var hluti af stærri könnun sem gerð var meðal 1.500 einstaklinga á aldrinum 12-80 ára. Svarhlutfall í könnuninni í heild var um 71% og var það svipað í Reykjavík og annars staðar. Þar sem þessar spurningar voru eingöngu lagðar fyrir Reykvíkinga á aldrinum 18-80 ára var fjöldi svarenda 362. Spurt var hvað menn myndu kjósa í borgarstjómarkosningum nú. I öðru lagi var spurt hvem fólk vildi fá sem næsta borgarstjóra í Reykjavík og fékk núverandi borgarstjóri, Markús Örn Antonsson, langflest atkvæði eða um 48,6% þeirra sem svara. í þriðja lagi var fólk innt álits á því hvort Markús Öm Antonsson hefði staðið sig vel, sæmilega eða illa sem borgarstjóri. Hlutfall þeirra sem svaraði sæmilega var 58,5%. Vel sögðu 36,1 prósent og illa sögðu 5,5%. Rétt er að taka fram að svarendahópurinn var fremur lítill og skekkjumörk á niðurstöðum því stór. Skekkjumörk fyrir Sjálfstæðisflokkinn eru þannig +/-5%. Með 95% öryggi er hægt að draga þá ályktun að fylgi flokksins sé á bilinu 41,4% til 51,6%. Þetta þýðir að ekki er hægt að fullyrða með vissu á grundvelli könnunarinnar að flokkurinn nái ekki meirihluta, þó meðaltalið sé undir 50% markinu. Skipting borgarfulltrúa eftir þessum tölum er því mikilli óvissu háð, því að mjög fá atkvæði geta ráðið þeirri skiptingu þegar svarendahópurinn er ekki stærri. andstæðingar Davíðs blandað sér í baráttuna og farið fram í nafni Sjálfstæðis- flokksins á forsendum lýðræðis. Því er ljóst að hvor leiðin sem yrði valin, prófkjör eða ekki prófkjör, gæti leitt til sundrungar og klofningsframboða. Markús Örn Antonsson segist ekki óttast Albert Guðmundsson í þessu sambandi. „Það er engin hætta á að hann kljúfi Sjálfstæðis- flokkinn í næstu borgarstjómarkosningum og færi hann í framboð gerist það ekki með sama hætti og þegar hann stofnaði Borgaraflokkinn.“ Engu að síður er mörgum enn í fersku minni hvernig Albert tókst á örskömmum tíma í þingkosningunum 1987 að undirbúa framboð og ná inn sjö þingmönnum. í Reykjavík fékk hann um 16% fylgi. Albert Guðmundsson er nú í sumarfríi frá sendiherrastarfinu í París en hann lætur af því embætti í október næstkomandi þegar hann verður sjötugur. Hann er í fríi þangað til hann hættir. Albert sagði í samtali við HEIMSMYND að hann hefði ekki ætlað sér aftur út í pólitík. „Ég er hins vegar kominn í svolítil vandræði þar eð fólk er byrjað að þrýsta á mig. Mér heyrist á öllu að það sé að skapast mjög furðulegt ástand á íslandi. Fólk virðist áhyggjufullt og óvissa er ríkjandi um framtíðina. Ég vil fara varlega í að tjá mig en mér heyrist á öllu að Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að vera sem slíkur og eftir standi lítil kosningamaskína, einhver flokkskjarni og klíka frjálshyggjuliðs. Það er mikilvægt að flokkurinn geti endurunnið það traust sem hann hefur aflað sér í áratugi en til þess þarf nýja forystu sem stjómar fyrir fólkið en ekki gegn því og fólkið finnur velvild frá.“ STJORNARANDSTAÐAN Að sjálfsögðu mun miklu valda um árangur Sjálfstæðisflokksins hvort stjóm- arandstöðuflokkarnir geta komið fram sterkari frambjóðendum en þeir hafa núna. í sjónmáli er enginn af núverandi full- trúum líklegur til að vinna traust kjósenda sem borgarstjóri, hvorki fulltrúar gömlu flokkanna Framsóknarflokks né Alþýðu- bandalags, þau Sigrún Magnúsdóttir og Sigurjón Pétursson, né fulltrúar hinna nýju afla Nýs vettvangs og Kvennalista, þær Ólína Þorvarðardóttir, Kristín Ólafsdóttir og Guðrún Ögmundsdóttir sem fáir þekkja vegna útskiptareglu Kvennalistans en Guðrún tók við af Elínu Ólafsdóttur. I skoðanakönnun Félagsvísinda- stofnunar fyrir HEIMSMYND fengu Sigrún Magnúsdóttir og Sigurjón Péturs- son mest fylgi af fulltrúum stjórnar- andstöðu í stól borgarstjóra, 2,1%. Kristín Ólafsdóttir fékk 1,4% og Ólína Þorvarðar- dóttir 0,7%. Sagt er að minnihlutinn leiti nú að leynivopni fyrir næstu kosningar. Sigrún Magnúsdóttir sagði við HEIMS- MYND að ýmis nöfn hefðu verið nefnd, bæði utan og innan borgarstjómar, en öll 18 sú umræða væri á byrjunarstigi. Fylgi við Nýjan vettvang mælist vart í þessari skoðanakönnun og kann þetta afl að líða fyrir þátttöku Alþýðuflokks í ríkisstjórninni sem og að forsendur fyrir upphaflegu framboði þess sem einhvers afls á vinstri vængnum brustu daginn sem Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur mynduðu ríkisstjóm. Þá eru jafnframt uppi háværar raddir innan Alþýðuflokks um framboð á vegum flokksins en engu að síður er tap hans verulegt í þessari skoðanakönnun. Kvennalistinn eykur hins vegar fylgi sitt í skoðanakönnuninni en það fylgi virðist tengjast persónu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur fremur en þakka megi fulltrúum listans í borgar- stjórn, sem hafa verið tveir á þessu kjörtímabili. Samkvæmt skoðanakönnun Félagsvís- indastofnunar tilgreindu 2,1% einhvern kvenmann ónafngreindan sem næsta borgarstjóra. Þessi óþekkta kona fékk fleiri atkvæði en flestir sem komust á blað sem segir meira en mörg orð um það óþol sem kjósendur finna almennt til gagnvart kjörnum fulltrúum hvar í flokki sem þeir standa. Þessi óþekkta kona er tákn and- svars við flokkapólitíkina hvaða nafni sem hún nefnist. Óþekkta konan kann því að vera sú óþekkt stærð sem mestu gæti breytt í úrslitum kosninga komi hún holdi klædd fram á sjónarsviðið þannig að hún falli kjósendum í geð. ■ HEIMS MYND

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.