Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 10

Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 10
LHG.IS Kynning á skipulagslýsingu Nýtt deiliskipulag öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Í sam ræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga er unnin lýsing fyrir deili skipulagið. Deiliskipulagið fjallar m.a. um afmörkun nýrra svæða fyrir hættu legan farm, svæði fyrir skammtíma gistiaðstöðu, efnis­ vinnslu svæði, gistisvæði, geymslusvæði og aðra landnotkun og starfsemi, svo sem þyrlupall og girðingar. Skilalýsingin verður aðgengileg á samráðsgátt stjórnvalda (samradsgatt.is) og á vefsíðum utanríkisráðuneytisins og Land helgisgæslu Íslands. Ábendingar og athugasemdir skulu berast skriflega og má skila þeim til Landhelgisgæslu Íslands, b.t. Sveinn Valdimarsson, skipu lagsfulltrúa, Þjóðbraut 1, 235 Keflavíkurflugvöllur eða í tölvupósti á skipulagsfulltrui@lhg.is. Frestur til að skila athuga semdum er til 6. febrúar 2019. DÓMSMÁL Nara Walker var í des­ ember síðastliðnum dæmd fyrir að hafa bitið hluta úr tungu þáverandi eiginmanns síns. Hún var dæmd í átján mánaða fangelsi í Landsrétti, fimmtán þeirra eru bundnir skil­ orði. Ekki var fallist á að viðbrögð hennar hefðu helgast af nauðvörn en Nara heldur því staðfastlega fram að hún hafi verið að verja sig grófu ofbeldi. Hún sé að auki fórnarlamb áralangs heimilisofbeldis af hálfu eiginmanns síns. Og að hún hafi haft ríka ástæðu til að ætla að hún væri í hættu stödd. Hún hefur ákveðið að óska eftir leyfi til áfrýjunar til Hæstaréttar og segist gera sér grein fyrir því að skilyrðin fyrir áfrýjun séu ströng. Hins vegar hafi Landsréttur ekki tekið afstöðu til mikilvægra atriða. Þá sé málið fordæmisgefandi hvað varðar nauðvörn kvenna sem verði fyrir grófu ofbeldi eða sæti heimilis­ ofbeldi. „Ég tel dóm Landsréttar rangan og byggðan á röngum vitnisburði,“ segir Nara og segir þáverandi eigin­ mann sinn og vitni að atvikinu vera í ástarsambandi. Hún hefur sætt farbanni frá atvikinu 2017 og bíður þess að afplána þrjá mánuði í fang­ elsi. „Það hefði verið miklu auðveld­ ara að sætta sig við niðurstöðuna. Afplána dóminn og fara. Mér finnst ég hins vegar hafa verið beitt rang­ læti og konur í minni stöðu eiga ekki að þurfa að óttast fangelsisvist og refsingu meiði þær ofbeldismann sinn í nauðvörn,“ segir Nara. „Hann er tvöfalt stærri og þyngri en ég. Við stöndum ekki jafnt að vígi. Hann hélt mér niðri og áverkar mínir voru miklir. Ég taldi mig vera í lífshættu. Ég sá bara enga undankomuleið. Lögmaður minn vill að fram fari nánara mat á því hvort nauðvörn eigi við. Ég var svo hrædd,“ segir Nara. „Ég viðurkenni að ég beit hluta tungunnar af á meðan hann hélt mér nauðugri. Það gerðist hins vegar ekki í tómarúmi. Hann hafði ráðist á mig og beitt mig ofbeldi. Borið mig inn í íbúðina þar sem hann hélt mér fastri og tróð upp í mig tungunni gegn vilja mínum. Hann gekkst við því fyrir dómi að hafa beitt mig áður ofbeldi,“ segir Nara. „Ég var með mikla áverka eftir hann en lögregla fór með mig Fórnarlömb geti varið sig án þess að þurfa að óttast fangelsisvist og refsingar „Ég tel dóm Landsréttar rangan og byggðan á röngum vitnisburði,“ segir Nara Walker. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK „Konur í minni stöðu eiga ekki að þurfa að óttast fangelsisvist og refsingu meiði þær ofbeldismann sinn í nauðvörn,“ segir Nara Walker. Fyrir rúmu ári beit hún hluta úr tungu þáverandi eiginmanns síns sem hún segir hafa beitt sig ítrekuðu ofbeldi. í fangelsi en ekki á spítala. Ég gekk sjálf á spítalann um miðja nótt eftir að hafa verið látin laus úr haldi,“ segir hún enn fremur og segir bæði lögreglu og dómara líta fram hjá ofbeldinu sem hún varð fyrir. Ætlar áfram með málið „Konur af erlendum uppruna eru í sérstakri áhættu þegar kemur að heimilisofbeldi,“ segir Nara sem hefur tekið þátt í Metoo­bylting­ unni. „Ég ætla með málið eins langt og hægt er. Ég vil að réttarkerfið fjalli um konur sem lenda í því að þurfa að verja sig grófu og alvar­ legu ofbeldi. Hvaða afleiðingar það getur haft. Eiga þær að láta berja sig og leggja líf sitt í hættu? Það er rétt­ mæt spurning. Ég vil lagabreytingu sem tekur sérstaklega til nauðvarnar vegna heimilisofbeldis. Mér finnst ég hafa verið heppin, ég er þó á lífi. Ég gæti verið hluti af tölfræðinni, ein af þessum konum sem láta lífið af völdum heimilisofbeldis,“ segir Nara. Í beiðni um áfrýjunarleyfi kemur fram að ekki hafi reynt á það í dómaframkvæmd hérlendis hversu langt þolandi heimilisofbeldis megi ganga þegar viðkomandi er hræddur um líf sitt eða það sem koma skal. Ekki hafi reynt á það með afgerandi hætti hvaða viðbrögð eru forsvaran­ leg þegar þolandi heimilisofbeldis bregst við yfirstandandi og alvar­ legri árás af hendi ofbeldismanns. Í beiðninni er vitnað í fræðigrein sem birtist í ritrýndu lögfræðitímariti í Bandaríkjunum, þar sem fjallað er um svokallað Battered woman syndrome. Í greininni er meðal annars fjallað um það að viðbrögð fórnarlambs heimilisofbeldis geti verið öfgakenndari en þegar um er að ræða viðbrögð þess sem verður fyrir líkamsárás af hendi ókunn­ ugs einstaklings. Ástæðan sé sú að fórnarlamb heimilisofbeldis veit hvers ofbeldismaðurinn er megn­ ugur. kristjana@frettabladid.is *Ekki náðist í þáverandi eiginmann Nöru vegna umfjöllunarinnar þrátt fyrir að eftir því hafi verið leitað.* Nauðvörn í almennum hegningarlögum Samkvæmt 12. gr. almennra hegningarlaga skal ekki refsað fyrir verknað sem unninn er í nauðvörn. Til að teljast nauðvörn þarf verknaðurinn að hafa verið nauðsynlegur til að verjast eða afstýra ólögmætri árás sem er annaðhvort byrjuð eða yfirvofandi. Þannig hefur í dómafordæmum ekki verið fallist á nauðvörn gegn sofandi manni, enda engin árás yfirvofandi á þeim tíma sem meintri nauðvörn er beitt. Til að nauðvörn sé tekin til greina sem málsvörn í sakamáli má verknaðurinn sem viðkomandi fremur ekki vera augljóslega hættulegri en ætla má að hin yfirvofandi árás verði. Frá þessu síðara skilyrði er þó heimilt að falla ef viðkomandi er svo skelfdur eða forviða að hann gat ekki fullkomlega gætt sín. Í 2. mgr. eru ákvæði sem kveða á um að manni skuli ekki refsað fari hann út fyrir takmörk leyfilegrar nauðvarnar og ástæðan sé sú að hann hafi orðið svo skelfdur eða forviða að hann gat ekki fullkomlega gætt sín. Í dómi Landsréttar er ekki fjallað um hugarástand Nöru. Lögreglumaður varðist hópi Í hæstaréttardómi 1936, bls. 401 var lögreglumaður í Neskaupstað sýknaður af því að hafa skotið mörgum skotum að hópi manna sem veist höfðu að honum og þar á meðal hæft menn. Í dóminum segir eftirfarandi um þetta: „Ákærði hefir þannig að vísu farið út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar, en með því að orsökina til þess má telja hina miklu geðshræringu og æsingu, sem hann hefur komizt í vegna hinna stórfelldu og ólögmætu árása, sem hann hafði orðið fyrir, og hótana þeirra og ókvæðisorða, sem mannfjöldinn hafði í frammi við hann, þá verður honum ekki gefið það að sök.“ – aá Ég vil að réttarkerfið fjalli um konur sem lenda í því að þurfa að verja sig grófu og alvarlegu ofbeldi. Nara Walker listamaður 1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.