Fréttablaðið - 19.01.2019, Qupperneq 19
Kópavogsbær hefur hafið innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu
þjóðanna og verða þau innleidd hjá öllum stofnunum bæjarins.
Heimsmarkmiðin eru framkvæmdaáætlun í þágu mannkyns,
jarðarinnar og hagsældar.
Nánari upplýsingar á www.kopavogur.is/heimsmarkmidin
kopavogur.is
Heimsmarkmiðin
K ó p a v o g s b æ r i n n l e i ð i r
u m s j á l f b æ r a þ r ó u n
P
IP
A
R
\T
B
W
A
·
S
ÍA
·
19
0
25
8
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19L A U G A R D A G U R 1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9
Breiðablik - ÍR 68-99
Stigahæstir: Breiðablik: Jameel Mc Kay
15, Kofi Omar Josephs 14, Erlendur Ágúst
Stefánsson 10, Snorri VIgnisson 9, Bjarni
Geir Gunnarsson 7.
ÍR: Gerald Robinson 36, Kevin Capers 29,
Sæþór Elmar Kristjánsson 13, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 8, Sigurkarl Róbert
Jóhannesson.
Keflavík - Grindavík 88-77
Efri
Njarðvík 26
Tindastóll 22
Stjarnan 20
KR 18
Keflavík 18
Þór Þ. 14
Neðri
Grindavík 14
ÍR 12
Haukar 10
Valur 8
Skallagrímur 4
Breiðablik 2
Nýjast
Domino’s-deild karla
Selfoss - Valur 27-28
Selfoss: Sarah Sörensen 6, Harpa Sólveig
Brynjarsdóttir 5, Perla Ruth Albertsdóttir
4, Hulda Dís Þrastardóttir 4, Tinna Sigurrós
Traustadóttir 3, Ída Bjarklind Magnúsdóttir
3, Carmen Palamariu 1, Rakel Guðjónsdóttir
1. Varin skot: Katrín Ó. Magnúsdóttir 9.
Valur: Lovísa Thompson 6, Íris Ásta Péturs-
dóttir 6, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 4,
Díana Dögg Magnúsdóttir 4, Hildur Björns-
dóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2,
Morgan Marie Þorkelsdóttir, Sandra Erlings-
dóttir 1. Varin skot: Íris B. Símonardóttir 11.
Efri
Valur 19
Fram 17
ÍBV 15
Haukar 14
Neðri
KA/Þór 11
Stjarnan 9
HK 7
Selfoss 4
Olís-deild kvenna
HANDBOLTI Eftir slaka frammistöðu
í fyrsta leik Íslands á HM í hand-
bolta gegn Króatíu hefur Björgvin
Páll Gústavsson hrokkið í gang og
átti reynslumesti leikmaður Íslands
stóran þátt í því að ungt lið Íslands
komst í milliriðlana sem hefjast í
dag. Hinn 33 ára gamli Björgvin Páll
er síðasti meðlimur silfurhópsins frá
Peking sem er enn í liðinu og lang
reynslumesti leikmaður liðsins með
217 landsleiki, 83 leikjum meira en
næsti maður sem er Aron Pálmars-
son. Björgvin hefur átt það til í gegn-
um tíðina að stíga upp á stórmótum
í handbolta og er það vonandi fyrir
íslenska liðið að Björgvin haldi
áfram á sömu braut í næstu leikjum.
Þegar rýnt er í tölfræðina kemur í
ljós að hann er sá markvörður sem
varði flest vítaköst í riðlakeppninni
sem lauk á fimmtudaginn. Alls varði
hann sjö af þeim sautján vítaköstum
sem mótherjar Íslands hafa fengið í
keppninni. Í fyrstu tveimur leikjum
Íslands í keppninni gegn Króötum
og Spánverjum varði Björgvin Páll
aðeins eitt víti af fimm og náði sér
ekki á strik í leikjunum en læri-
sveinum Arons Kristjánssonar
tókst að skjóta Björgvin Pál í stuð.
Mohamed Habib var réttilega vísað
upp í stúku á fyrstu mínútum leiks-
ins þegar hann skaut beint í höfuðið
á Björgvini og áttu Bareinar eftir að
skjóta tvisvar til viðbótar í höfuð-
hæð hjá Björgvini án þess að þeim
væri refsað.
Vítabaninn Björgvin vaknaður
Enginn markvörður hefur varið fleiri víti en Björgvin Páll Gústavsson eftir riðlakeppnina á HM í hand-
bolta. Vafasöm vítaköst Barein virtust kveikja á Björgvini sem hefur ekki litið um öxl eftir það.
Það efldi Björgvin sem átti besta
leik sinn til þessa á mótinu gegn
Barein og fylgdi því eftir með góðum
leikjum gegn Japan og Makedóníu
þar sem hann hefur haldið áfram
50% markvörslu úr vítaköstum
andstæðinganna. Hann er því sam-
tals með sjö varin víti af sautján eða
41% markvörslu eftir riðlakeppn-
ina. Enginn markvörður á HM hefur
varið fleiri víti til þessa og aðeins
þrír markverðir, Nikola Marinovic
frá Austurríki, Niklas Landin frá
Danmörku og Leonel Carlos Maciel
frá Argentínu eru með betra hlutfall
þegar kemur að því að verja vítaköst
eftir riðlakeppnina.
kristinnpall@frettabladid.is
2 | 2
2 | 30 |1
1| 4 1| 4
1| 3
Varið Skot
Varið SkotVarið Skot
Varið Skot Varið Skot
Varið Skot
✿ Hlutfall markvörslu Björgvins á HM
14/51
27,4%
Fyrstu tveir leikirnir:
37/95
38,9%
Næstu þrír leikir: