Fréttablaðið - 19.01.2019, Síða 33
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Veðurspáin er ágæt fyrir næstu daga og mjög lík-legt að við komumst heim
á sunnudaginn eins og stefnan
er sett á. En annars væri enginn
stórskaði þótt við yrðum veður-
teppt. Það myndi enginn gráta
það að fá einn skíðadag í viðbót,“
segir Gerða hlæjandi þegar slegið
er á þráðinn til hennar í Livigno á
Ítalíu þar sem hún hefur verið frá
7. janúar með eiginmanni sínum,
13 ára dóttur og 15 ára syni. „Við
erum í æfingaferð með um 150
manna hópi á vegum skíðadeildar
Breiðabliks og KR en sonur okkar
æfir skíði.“
Snjónum hefur kyngt niður
síðustu daga og fréttir hafa borist
bæði frá Austurríki og Ítalíu um
mikið fannfergi og umferðartepp-
ur tengdar þeim. „Hluti hópsins
ætlaði reyndar heim 14. janúar en
þurfti annaðhvort að framlengja
eða fara heim eftir öðrum leiðum.
Ófært var til Zürich og því voru
einhverjir sem fóru til Mílanó og
flugu þaðan.“
Gerða segir fátt jafnast á við
þessar skíðaferðir. „Þetta eru
dásamlegar ferðir, yndislegar og
afslappandi. Það myndast mjög
skemmtileg stemning enda þekkj-
umst við foreldrar skíðakrakkanna
vel því við hittumst mikið í fjallinu
og þurfum að tala okkur saman um
skutl auk þess sem við skiptumst
á búnaði.“ Hópurinn heldur vel
saman í ferðinni, skíðar saman,
hittist í hádeginu og á kvöldin til
að borða saman.
„Við erum á stóru hóteli sem
rúmar allan hópinn og fleiri til. En
í matsalnum fáum við rými út af
fyrir okkur sem er mjög fínt.“
Gerða segir þau hjónin ekki hafa
verið neitt sérstakt skíðafólk áður
en sonurinn fór að æfa. „En síðan
verður þetta fjölskyldusport enda
fer svo mikill tími í æfingarnar
og skutlið að annaðhvort verða
allir að taka þátt eða enginn,“
segir Gerða, en sér alls ekki eftir
þeim tíma sem fer í æfingastúss
sonarins. „Þetta er svo ofboðslega
skemmtileg útivera og við foreldr-
arnir erum búin að læra helling
á skíði á síðustu árum, byrjuðum
í plóg niður brekkurnar en erum
orðin bara nokkuð góð.“
Gerður segir aðstöðuna í Livigno
frábæra. „Hér er heill hellingur
af brekkum af öllu tagi, bláar,
rauðar og svartar fyrir þá sem vilja
Gabríel Pétur, einn af ferðafélögum Gerðar, utanbrautar á kafi í snjó.
Bílarnir voru lítið hreyfðir.
Gerða með eiginmanninum Hinriki og Valgerði dóttur þeirra á góðum degi.
Snjónum hefur kyngt niður á Ítalíu undanfarið og valdið tilheyrandi umferðarteppum. Skíðafólkið í Livigno er hins vegar himinlifandi með fönnina enda ákaflega fallegt um að litast.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
hasarinn. Hér er 30 kílómetra löng
gönguskíðabraut og margt sem
hægt er að taka sér fyrir hendur
annað en að standa á skíðum.
Til dæmis fara í drift gocart, á
fjórhjól, vélsleða og hundasleða.
Hér er sundlaug með rennibraut,
heil gomma af búðum og svo er
maturinn auðvitað æðislegur eins
og svo oft á Ítalíu.“
Fjölskylduæfingaferðir eru
farnar á tveggja ára fresti og Gerða
var því í Livigno fyrir tveimur árum
líka. Hún segir töluverðan mun á
snjómagninu en flestir séu bara
afskaplega ánægðir þegar kyngi
niður púðrinu. „Þetta er rosalega
gaman fyrir þá sem eru góðir á
skíðum, sérstaklega þá sem vilja
fara í púðrið og skíða utanbrautar.
Í gær náði púðrið upp að hnjám og
allir að berjast niður brekkurnar
og leika sér innan um trén. Það
ríkti sko ósvikin gleði,“ segir Gerða
sem sjálf nýtti tækifærið og æfði
sig í að skíða í púðursnjó í barna-
brekkunum. „Það er erfitt að skíða
í púðrinu og tekur meira á lærin.
En það var skemmtilegt að fá þetta
æfingatækifæri fyrir okkur sem
ekki erum vön púðrinu.“
Fannfergið hefur því síður en svo
truflað hópinn. „Það gerði ferðina
bara betri.“
Annars væri eng-
inn stórskaði þótt
við yrðum veðurteppt.
Það myndi enginn gráta
það að fá einn skíðadag í
viðbót.
Hluti af skíðahópnum frá Breiðablik og KR skemmtir sér í snjónum.
Púðursnjórinn var alltumlykjandi.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RVETRARSPORT OG FERÐIR