Fréttablaðið - 19.01.2019, Qupperneq 51
Sérfræðingur, líffræðingur -
umhverfisfræðingur
Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að ráða starfs-
mann sem getur unnið við fjölbreytt störf sem felast í
því að halda utan um verkefni á sviði vöktunar lykilþátta
íslenskrar náttúru og náttúruverndarsvæða.
Starfið felur í sér:
• Umsjón með vöktunaráætlun Náttúrufræðistofnunar og
framkvæmd hennar, sbr. 74. gr. laga um náttúruvernd.
• Vinna við gerð vöktunaráætlana fyrir
náttúruverndarsvæði.
• Tengiliður við náttúrustofur og aðra samstarfsaðila um
vöktunarverkefni.
• Halda utan um niðurstöður vöktunar.
• Vinna úr niðurstöðum vöktunar í samvinnu við
sérfræðinga Náttúrufræðistofnunar og samstarfsaðila.
• Undirbúa birtingu niðurstaðna og miðlun upplýsinga um
þær í vöktunargátt á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.
• Tryggja varðveislu gagna í gagngrunnum og aðgengi
að þeim.
• Ýmis önnur störf sem falla að framangreindu.
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í líffræði, umhverfisfræði eða
sambærilegum greinum.
• Reynsla af og þekking á vöktunarverkefnum.
• Yfirsýn og þekking á íslenskri náttúru.
• Hæfni til að setja sig inn í fjölþætt verkefni.
• Lipurð í mannlegum samskiptum og ritfærni á íslensku
og ensku.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Trausti Baldursson,
(trausti@ni.is), í síma 590 0500. Umsókn, ásamt ítarlegri
starfsferilsskrá og kynningarbréfi, skal senda á netfangið
ni@ni.is eða á heimilisfang Náttúrufræðistofnunar Íslands
Urriðaholtsstræti 6-8, 212 Garðabæ.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2019.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga
opinberra starfsmanna við fjármálaráðuneytið. Öllum um-
sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
------------------------------------------------
Jarðfræðingur
Náttúrufræðistofnun Íslands auglýsir eftir jarðfræðingi
með áherslu á berggrunnskortagerð og jarðminja-
skráningu.
Starfið felur í sér:
• Kortlagning berggrunns á Íslandi í kvarða 1:100.000
eða betra
• Skráning jarðminja á Íslandi í jarðminjaskrá
• Mat á verndargildi jarðminja
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf, meistaragráða í jarðfræði
• Reynsla af berggrunnskortlagningu og vettvangsvinnu
• Líkamlegt hreysti og færni í fjallamennsku
• Góð þekking á jarðfræði og jarðsögu Íslands
• Þekking og kunnátta á landupplýsingakerfum
• Lipurð í mannlegum samskiptum og ritfærni á íslensku
og ensku
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Guðmundur Guðmundsson (gg@ni.is), sími 590 0500.
Umsókn ásamt ítarlegri starfsferilsskrá, sendist á
netfangið ni@ni.is eða með bréfpósti til Náttúrufræði-
stofnunar Íslands, Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabæ.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2019.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga
opinberra starfsmanna við fjármálaráðuneytið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun Íslands er
tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
ATVINNUVEGA- OG
NÝSKÖPUNARRÁÐUNEYTIÐ
Sérfræðingur á skrifstofu sjávarútvegs- og fiskeldis
Skrifstofan hefur það meginhlutverk að skapa sjávarútvegi og fiskeldi ásamt veiði í ám
og vötnum hagkvæma og skilvirka umgjörð.
Skrifstofan fer með mál á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu og matvælaöryggis,
fæðuöryggis, dýra- og plöntusjúkdóma, inn- og útflutning afurða og tollamála.
Við leitum að sérfræðingi til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði sjávarútvegs og
fiskeldis. Viðkomandi mun leiða ákveðin verkefni innan ráðuneytisins og taka þátt í vinnuhópum
og nefndum auk þess að eiga í miklum samskiptum við stofnanir ráðuneytisins og Alþingi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Við leitum að hagfræðingi til að takast á við fjölbreytt verkefni á sviði landbúnaðar og matvæla.
Viðkomandi verður hluti af teymi hagfræðinga innan ráðuneytisins.
Nánari upplýsingar eru á www.starfatorg.is Umsóknir um bæði störfin skal senda til atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið postur@anr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með
28. janúar n.k. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Guðmundsson, skrifstofustjóri, johann.gudmundsson@anr.is
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði
hagfræði, verkfræði eða sambærileg menntun.
• Reynsla af greiningarvinnu sem nýtist í starfi.
• Greinandi, gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun.
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem
og í hóp.
• Þekking á sjávarútvegi og/eða fiskeldi er kostur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í
framsetningu upplýsinga.
• Meistarapróf á sviði hagfræði eða sambærilegu
sviði.
• Reynsla af greiningum og gagnavinnslu er
skilyrði.
• Þekking og/eða reynsla á sviði landbúnaðar-
tölfræði er kostur.
• Frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að starfa
sjálfstætt, sem og í hóp.
• Geta til að vinna undir álagi og lipurð í
mannlegum samskiptum
• Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í
framsetningu upplýsinga.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með
4. febrúar n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri, stefan.asmundsson@anr.is
Hagfræðingur á skrifstofu matvæla og landbúnaðar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
leitar að tveimur einstaklingum sem eru sterkir
greinendur og glöggir á tölur.
Menntunar- og hæfniskröfur: