Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 23
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG Osló – Margt virðist nú benda til að Trump Bandaríkjaforseti og nokkrir menn aðrir
handgengnir honum verði að endingu
dæmdir í fangelsi þar sem nokkrir
nánir samstarfsmenn forsetans sitja
nú þegar fyrir ýmis brot, þ. á m. fv.
lögfræðingur forsetans. Vísbendingar
um yfirvofandi dóma eru óháðar því
hvort ákæra fulltrúadeildar Banda
ríkjaþings á hendur forsetanum dugir
til sakfellingar af hálfu aukins meiri
hluta öldungadeildarinnar enda virð
ist sakfelling ólíkleg þar. Öðru máli
gegnir um dómskerfið. Órækir vitnis
burðir liggja nú fyrir um ólöglegar
tilraunir forsetans til að ýmist þvinga
eða laða erlend ríki til að grafa undan
andstæðingum forsetans heima fyrir
auk ýmissa annarra meintra brota
gegn lögum og stjórnarskrá sem eru
nú langt komin í rannsókn. Meint
af brot forsetans hafa verið á margra
vörum um langt árabil.
Frá 1789 hefur fulltrúadeildin
fjallað um 62 ákærur á hendur emb
ættismönnum og ákært 19 menn, þar
af 15 dómara, tvo forseta sem báðir
hlutu sýknu í öldungadeildinni, einn
ráðherra og einn öldungadeildarþing
mann. Þannig eru Bandaríkin. Réttar
kerfið fer ekki í manngreinarálit.
Með þessu er ekki sagt að allir séu þar
jafnir fyrir lögum eins og t.d. margir
blökkumenn geta borið vitni um og
einnig bankamenn sem var hlíft við
ákærum eftir 2008. Réttarkerfið hlífir
þó yfirleitt ekki hátt settum stjórn
málamönnum stöðu þeirra vegna
enda sitja margir slíkir í fangelsi. For
setinn er ekki heldur ofar lögum.
Bandarískt stjórnarfar hvílir á skil
virkri þrískiptingu valds, styrkum
fjölmiðlum og jafnræði hárra og lágra
fyrir lögum. Þetta dugði til að knýja
Richard Nixon forseta til að segja
af sér 1974 frekar en að sæta ákæru
til embættissviptingar. Nixon hefði
þurft að fara í fangelsi hefði eftir
maður hans ekki náðað hann. Trump
forseti virðist ekki geta gengið að
náðun vísri verði hann dæmdur nema
hann segi af sér eins og Nixon.
Frá Ameríku til Íslands
Þessi lýsing á bandarísku réttarfari
gildir í grófum dráttum einnig um t.d.
um Frakkland. Einkunnin sem World
Justice Project, stofnun á vegum
Bandaríska lögfræðingafélagsins,
gefur Bandaríkjunum fyrir lög og
rétt er 7,1 á móti 7,3 í Frakklandi og
8,4 til 9,0 í Þýzkalandi og á Norður
löndum án Íslands sem hefur ekki
enn verið gefin einkunn. Á Íslandi
er hvorki skilvirkri þrískiptingu
valds né jafnræði fyrir lögum fyrir að
fara þótt sumum fjölmiðlum hafi að
sönnu farið fram. Meint lögbrot vel
tengdra manna hafa yfirleitt verið
látin afskiptalaus svo sem ég lýsti í rit
gerðinni Samstæð sakamál í Tímariti
Máls og menningar 2018.
Eina stóra hermangsmálið sem kom
til kasta dómstóla var olíumálið, eitt
mesta fjársvikamál lýðveldissögunar.
Brotin voru framin 19501960. Fv.
utanríkisráðherra, seðlabankastjóri,
stjórnarformaður Olíufélagsins og
virðingarmaður í Framsóknarf lokkn
um var fundinn sekur í Hæstarétti,
en sök hans var fyrnd. Aðrir stjórnar
menn Olíufélagsins fengu væga
sektardóma. Framkvæmdastjóri var
dæmdur til fangavistar.
Sagan endurtók sig eftir hrunið
2008 þegar þrír ráðherrar og fjórir
embættismenn sem Rannsóknar
nefnd Alþingis taldi hafa sýnt af sér
vanrækslu í skilningi laga voru ekki
látnir sæta ábyrgð nema forsætisráð
herrann einn fyrir Landsrétti. Sak
sóknarar létu Alþingi ráða ferðinni
þótt þingið væri skipað fólki sem
skv. skýrslu RNA hafði þegið 300
mkr. á núvirði af föllnu bönkunum
20042008. Bankamenn voru dæmdir,
einkum smáfiskar, en stærstu löx
unum var sleppt. Einn þeirra bíður nú
dóms í Hæstarétti Frakklands.
Fjórflokkurinn er réttnefni
Réttarfarið á Íslandi riðar. Ríkislög
reglustjóri nýtur ekki trausts innan
lögreglunnar en hann situr þó enn í
embætti. Hæstaréttardómarar hafa
sakað hver annan um lögbrot án
þess að á því hafi verið tekið. Fjár
festingar hæstaréttardómara eru nú
til athugunar fyrir Mannréttinda
dómstóli Evrópu. Seðlabankinn
birti, eftir að meint brot voru fyrnd,
skýrslu um Kaupþingslánið án þess
að nefna að þriðjungur lánsfjárins
var lagður samdægurs inn á reikning
á Tortólu 6. október 2008. Seðla
bankinn greiddi götu hrunþýfis aftur
heim frekar en að spyrja um uppruna
fjárins. Bankinn neitar enn að birta
nöfn þeirra sem f luttu féð heim. Svein
Harald Øygard sem var seðlabanka
stjóri í nokkra mánuði 2009 lagði
til að slóð hrunþýfisins yrði rakin
og segir í nýrri bók: „Þegar ég mætti
mót spyrnu lét ég bók færa álit mitt í
fundargerð.“ Þessa fundargerð – og
aðrar! – þarf að birta m.a. svo ljóst
megi verða hvað aðrir fundarmenn
lögðu til máls.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
20092013 reyndist ófær um eða ófús
til að stöðva sukkið og spillinguna
sem settu landið á hliðina 2008. Sam
fylkingin og VG bera ábyrgð á að nýja
stjórnarskráin, sem sker upp herör
gegn spillingu með því m.a. að leysa
stjórnmálaf lokkana úr herkví útvegs
fyrirtækjanna, strandaði í þinginu
2013 og bíður þar enn eftir að verða
lögfest. Þessir f lokkar bera báðir
þunga ábyrgð. Fjórf lokkurinn – sem
Jóhanna lýsti svo 2010 – er réttnefni.
Góðan dag, gamla Ísland
Eina stóra hermangsmálið sem
kom til kasta dómstóla var olíu-
málið, eitt mesta fjársvikamál
lýðveldissögunar. Brotin voru
framin 1950-1960. Fv. utanrík-
isráðherra, seðlabankastjóri,
stjórnarformaður Olíufélagsins
og virðingarmaður í Fram-
sóknarflokknum var fundinn
sekur í Hæstarétti, en sök hans
var fyrnd.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
1
1
4
H
y
u
n
d
a
i
i2
0
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is
Nýr og spennandi
Hyundai i20.
Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20.
Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun
aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7" snertiskjár nýtir sér
fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20.
Verð frá:
2.390.000 kr.
Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu
ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára
verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9