Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 32
Á myndunum má sjá fallega sparikjóla sem Givenchy sýndi á tískuviku í París
fyrir haust/vetur 2019-2020.
Glæsileikinn er sannarlega í fyrir-
rúmi. Hvert smáatriði útpælt og
kvenlegur ljómi svífur yfir. Clare
hefur starfað hjá Givency undan-
farin tvö ár og er fyrsta konan sem
heldur um stjórnartauma hjá fyrir-
tækinu. Clare sem er fædd 1970
hóf starfsferilinn hjá Calvin Klein
í New York, fór síðan yfir til Ralph
Lauren. Tom Ford bauð henni
síðan að koma yfir til sín til að
hanna nýja kvenlínu fyrir Gucci.
Claire ákvað síðan að flytja til
Skotlands og varð listrænn stjórn-
andi hjá Pringle of Scotland og
fékk skosku hönnunarverðlaunin
árið 2007 fyrir hönnun sína hjá
fyrirtækinu. Enn hélt framabraut
hennar áfram þegar hún flutti
til Parísar og hóf störf hjá Chloé
en þaðan lá leiðin til Givenchy.
Givency er með elstu tískuhúsum,
stofnað í París árið 1952.
Claire hlaut bresku hönnunar-
verðlaunin, British Fashion
Awards, í fyrra en það var engin
önnur en Meghan Markle sem
tilkynnti þau óvænt á sviðinu og
vakti mikla athygli enda þá komin
nokkra mánuði á leið.
Tískutímaritið Vogue segir að
Fyrir árshátíðina frá Givenchy
Breski hönnuðurinn Clare Waight Keller, sem varð heimsfræg þegar hún hannaði brúðarkjól
Meghan Markle, vekur gjarnan mikla athygli fyrir hönnun sína. Núna starfar hún hjá Givenchy.
Hátískan frá Givenchy sem var sýnd
á tískuviku í París fyrir 2019-2020
var afar kvenleg. NORDICPHOTOS/GETTY
Yfirbragðið gæti minnt á brúðarkjól
og vel hægt að nota þennan sem
slíkan. Líklegast þó frekar galakjóll.
Clare
Waight Keller
hefur komið
skemmtilega
á óvart hjá
Givenchy. Hún
er líklegast
frægust fyrir að
hafa hannað
brúðakjól
Megh an Markle.
Clare Waight Keller hafi markað
sín spor hjá Givenchy nú þegar.
„Hún sýnir tískuhúsinu djúpa
virðingu með hönnun sinni en
jafnframt fær reynsla hennar að
njóta sín,“ segir í tímaritinu. Það
er gaman að skoða þessa fallegu
sparilínu frá Givenchy en hér eru
tvö sýnishorn.
Claire hlaut bresku
hönnunarverðlauni
í fyrra en það var engin
önnur en Meghan
Markle sem tilkynnti
það óvænt á sviðinu.
Smaronia
– Náttúrulegt gel við þurrki í leggöngum
Njóttu þess að vera kona!
• Byggir upp heilbrigðan vef og dregur úr þynningu slímhúðar
• Minnkar kláða, sviða, þurrk og særindi í leggöngum
• Náttúruleg innihaldsefni án viðbættra hormóna
15%
af sölu
fer til LÍF
15% af hverri seldri vöru á tímabilinu 15.09.19 – 15.10.19 renna til styrktar LÍF styrktarfélags
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R