Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 16
Það að missa alveg heyrnina er vitaskuld mikil fötlun, það að missa ákveðin tíðnisvið út er
óþægilegt og getur haft afleiðingar,
jafnvel leitt til þess að viðkomandi geti
ekki sinnt starfi sínu lengur. Sá sem
tapar heyrn gerir það oftast varanlega,
því miður. Vinnuverndarlögin og
reglugerð um varnir gegn hávaða
á vinnustöðum eiga að vernda
gegn slíku og setja ríkar skyld-
ur á herðar bæði starfsfólki
og vinnuveitendum.
Það er til dæmis þekkt
að jafngildishávaði
á leikskólum er í
f lestum tilvikum
of hár og hægt að
færa rök fyrir því að
leikskólakennarar
ættu að nota heyrnar-
hlífar ekki síður en börnin
sjálf, svipað og inni í álveri.
Það hljómar ankannalega en er
engu að síður staðreynd. Það
hljómar líka fáránlega að vera
með heyrnarhlífar í spinning- eða
eróbikktíma, en það væri sennilega
afar skynsamlegt. Reyndar er alveg
merkilegt að hugsa til þess að fara í
heilsurækt og byggja upp líkamann
en eyðileggja mögulega heyrnina í
leiðinni. Þeir einstaklingar sem lesa
þessa grein og hafa farið út úr tíma
með suð í eyrum vita hvað ég er að tala
um. Hið sama gildir um tónleika þar
sem markmiðið virðist vera að valda
skaða fremur en að njóta tónlistar.
Ekki má gleyma unglingunum með
nýrri og flottari útgáfur af vasa diskói
en við þekktum hér áður. Þeir sem
stunda skotveiði án góðra heyrnar-
hlífa eru að leika sér að eldinum. Eitt
skot úr byssu er nóg til að eyðileggja
heyrnina fyrir lífstíð. Það hlýtur að
vera hvimleitt þegar lagt er við hlustir
til að átta sig á bráðinni að heyra ekki
nægjanlega vel. Þeim ætti því að vera
sérstaklega umhugað um varnir.
Hver þekkir ekki viðlíka sögu að
fjölskyldan er sest niður í kjölfar
þess að hafa borðað saman og ætlar
að horfa á sjónvarpið? Pabbinn er
með fjarstýringuna og hann hækkar
í tækinu þar til allir ætla að ærast,
skilur ekkert í þessu fjaðrafoki, beðinn
að lækka í snatri. Dóttirin spyr: „Æi,
pabbi, ertu heyrnarlaus?“ Hvað er
þetta eiginlega, hann verður að heyra
hvað fréttaþulurinn segir! Gerir sér
enga grein fyrir því að hann er að
hlusta á allt öðrum forsendum en
hinir.
Samt hefur hann tekið eftir því að
honum finnst hann ekki alltaf heyra
það sem sagt er, áður fyrr var þetta
ekki vandamál, en núna finnst honum
eiginlega ekkert gaman lengur að fara
í gleðskap og forðast það. Alltof mikið
glamur og hann heyrir ekkert hvað
fólk er að segja. Konan meira að segja
kvartar, þau hjónin fara sjaldnar út
en áður vegna þessa. Þetta hefur áhrif
á sambandið, henni finnst hann ekki
hlusta á sig, sem er rétt, hann heyrir
ekki alltaf það sem hún er að segja.
Hérna áður heyrði hann en kaus bara
að láta sem hann heyrði ekki, það var
ágætt stundum en núna er þetta orðið
óþægilegt.
Þessi saga er klassísk og við flest
hver getum tengt hana við einhvern
sem við þekkjum. Við vitum að
heyrnin versnar með árunum, það er
ákveðin hrörnun sem á sér stað svipað
og að fá hrukkur. Þá spila erfðaþættir,
lyf og sjúkdómar líka inn í heyrnar-
missi einstaklinga. Hins vegar er
það alveg stórmerkilegt hvað ein-
staklingum er oft lítið annt um heyrn
sína, átta sig kannski ekki á því undir
hvaða kringumstæðum þeir geta
misst hana eða fá einfaldlega lélegar
leiðbeiningar og búnað til að verjast
heyrnarskaða. Svo eru þeir sem ekki
geta varið sig sjálfir og þurfa að treysta
á aðra. Passaðu eyrun, njóttu þess að
vera í þögn af fúsum og frjálsum vilja
en ekki vegna þess að heyrnin er skert
fyrir aldur fram.
Þögn eða heyrnarleysi
Teitur Guðmundsson
læknir
Ef þú lætur fólk gera eitt-hvað eins og lesskiln-ingsverkefni eða leysa einhverjar þrautir með tónlist eða án tónlistar, þá er tónlist yfirleitt
truf landi, hún dregur yfirleitt úr
getu fólks til að leysa verkefni og
þau taka lengri tíma,“ segir Helga
Rut.
„Ef heili er skannaður sem er í
þögn eða að hlusta á tónlist þá er
miklu meira að gerast í heila þess
sem er að hlusta á tónlist. Heilinn
gerir í raun og veru ekki margt í
einu þannig að við þurfum að vera
að skipta athyglinni frá tónlistinni
yfir á það sem við erum að gera
þannig að tónlist í bakgrunninum
er alltaf að ræna athyglinni,“ segir
hún en almennur bakgrunnshávaði
hefur líka þannig áhrif.
Mikið í gangi í hausnum
Helga Rut segir að það sé mikið í
gangi í hausnum þegar við heyrum
tónlist. „Það eru ekki bara heyrnar-
stöðvarnar sem fara í gang heldur
líka hreyfistöðvarnar. Stærra svæði
heilans virkjast hjá fólki sem hefur
lært á hljóðfæri en annarra, sem
útskýrir hvers vegna tónlistarfólk
á oft erfiðara með bakgrunnstón-
list. Allt sem það er búið að læra í
tónlist fer í gang, öll þessi ósjálfráða
greining, því þessi svæði sem þarna
reynir á stækka við tónlistarnám.“
Helga Rut útskýrir að tónlist með
takti sem er vel undir hvíldarpúlsi,
sem er oft á milli 60 og 70, virki
róandi. „Ef þú hlustar á tónlist sem
er 40 slög á mínútu þá virkar hún
róandi hvort sem þú þekkir hana
eða ekki. Sömuleiðis virkar tón-
Lengur að
læra með
tónlist í
eyrunum
Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir
er prófessor í tónlistarfræðum á
menntavísindasviði Háskóla Ís-
lands en rannsóknir hennar hafa
aðallega verið á sviði tónskynj-
unar og tónlistarþroska barna.
list með 120 slög á
mínútu örvandi á
alla. Til dæmis hreyfa
lítil börn sig ósjálfrátt
við tónlist því heilinn
bregst við taktslagi. Um
leið og heilinn heyrir reglu-
legt taktslag sýnir hann við-
bragð millisekúndum áður en
næsta taktslag kemur.“
Oförvun varasöm
Tónlist er ekki góð við öll tækifæri
og það þarf að muna eftir þögninni.
„Það er alltaf hætta á oförvun hjá
mjög ungum börnum. Ég er líka á
móti því að spila tónlist fyrir bumb-
una. Við mótumst í hjartslætti
móðurinnar og við rödd hennar,
það sem hún talar og syngur, en það
er mikið inngrip að setja einhvern
hávaða á fóstur sem er að þroskast.
Það er ekkert sem bendir til þess að
við eigum að vera að senda tónlist
sérstaklega inn í móðurkvið,“ segir
Helga Rut.
„Það er vitað að mjög lágstemmd
tónlist hjálpar fyrirburum, styttir
tímann sem þeir þurfa að vera á
vökudeild og þeir dafna betur. Súr-
efnisupptaka í blóði er betri með
lágstemmdri vögguvísutónlist en
það þarf að gera þetta undir eftirliti
sérfræðinga vegna þess að oförvun
getur verið hættuleg og það þarf
líka að gæta að hvíld og þögn.“
Hvernig upp-
l i f i r þ ú þ ö g n?
Finnst þér mikilvægt
að vera í þögn?
„Já, og ég held að allir sem
vinna með tónlist, eins og tón-
listarkennarar sem eru með tón-
list í eyrunum allan daginn í sinni
vinnu, vilji hafa þögn þegar þeir
koma heim. Ég heyri marga tón-
listarkennara tala um það. Þeir fara
ekki heim og kveikja á útvarpinu
eða setja tónlist á fóninn, allavega
ekki meðan þeir eru að jafna sig
eftir vinnuna,“ segir hún.
Þögnin lífsnauðsynleg
„Við þurfum svefn, hann er lífs-
nauðsynlegur, og ég held að það sé
eins með þögnina. Ef við erum alltaf
með einhverja síbylju í eyrunum,
þá er of mikil örvun í heilanum
því heilinn er aldrei alveg hlutlaus;
hann er alltaf að greina það sem við
heyrum. Hann tekur við áreitinu og
er að greina það og þess vegna er svo
mikilvægt að við gefum hausnum
tækifæri til að hlaða batteríin.“
Að sama skapi er hægt að nota
hressa tónlist markvisst til örv-
unar eins og í íþróttaiðkun. „Þú
getur notað tónlist til að örva þig
og rannsóknir sýna að fólk endist
lengur á þrekhjóli ef það er með
tónlist í eyrunum. Það nær meiri
árangri og betri súrefnisupptöku
svo þetta hefur bein áhrif á hversu
öf lug æfingin er. Fólk notar þetta
sem hvatningu og það er auðveld-
ara að reyna meira á sig með tónlist
sem er stíluð inn á að vera 120 slög
á mínútu eða hærra.“
Öflugast að taka beinu brautina
Áreitið er mikið úti um allt, stund-
um hvetjandi, en oftar en ekki
truf landi. Helga Rut segir að fólk
sem noti tónlist til að koma sér í
gírinn og einbeita sér við lærdóm
sé þá að taka fjallabaksleiðina. „Það
er kannski skemmtilegra en þú ert
örugglega lengur að komast á leiðar-
enda. Það er öruggt að þú ert lengur
að læra sama hlutinn ef þú ert með
tónlist í eyrunum heldur en þegar
það er þögn. Það er búið að sýna
fram á þetta með mörgum rann-
sóknum. Það er ákveðin hvatning
eða umbun að hafa tónlistina í
gangi en það er alveg öruggt að ef þú
myndir slökkva alveg og hafa þögn
og einbeita þér myndirðu leysa
verkefnin hraðar. Fjölmargar rann-
sóknir sýna þetta og hefur jafnvel
verið skoðað eftir mismunandi per-
sónuleikum, intróvertum og extró-
vertum, en persónugerð hefur lítil
sem engin áhrif. Almennt er tónlist
í bakgrunni truflandi. Þetta er góð
vitneskja að hafa. Kannski viltu
alltaf taka útsýnisleiðina en það er
öflugast að taka beinu brautina.“
Ég er líka á móti því
að spila tónlist fyrir
bumbuna. Við mótumst í
hjartslætti móðurinnar og
við rödd hennar, það sem
hún talar og syngur, en það
er mikið inngrip að setja
einhvern hávaða á fóstur
sem er að þroskast.
Helga Rut
Guðmundsdóttir
TILVERAN
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð