Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 46
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Ullarpeysan hefur fylgt manneskjunni frá örófi alda og vinsældir hennar fara
síður en svo minnkandi. Talið er
að prjónaflíkur úr ull hafi borist til
Evrópu frá Miðausturlöndum. Elsti
prjónaði ullarbútur sem fundist
hefur í Evrópu fannst á Spáni og
er talinn vera frá 13. öld. Þekkt
er að sjómenn á Írlandi notuðu
ullarpeysur sem gerðar voru úr
óþveginni ull sem innihélt ennþá
hina náttúrulega ullarfitu lanolín.
Lanolínið gerir það að verkum
að peysan hrindir frá sér vatni og
hentar því mjög vel úti á sjó.
Íslenska ullin er ekki eins feit og
sú írska, en sérstaða hennar er að
hún er með tvenns konar þræði.
Ytri þræðirnir kallast tog og eru
langir og harðgerir. Innri þræð-
irnir kallast þel og eru fíngerðir,
mjúkir og einangrandi.
Íslenska ullinn var aðalefniviður
í klæðnaði Íslendinga á landnáms-
öld og lengi eftir það. En íslenska
lopapeysan sem við þekkjum í dag,
þessi með hringlaga munsturbekk
yfir axlirnar, á sér aftur á móti
mun styttri sögu. Hún kom ekki
fram á sjónarsviðið fyrr en á sjötta
áratug síðustu aldar. Til að byrja
með var hún eingöngu í íslensku
sauðalitunum, hvítum, svörtum,
gráum og brúnum en aðrir litir
og nýjar útfærslur á mynstri hafa
bæst við á undanförnum ára-
tugum.
Það finnst varla sá Íslendingur
sem ekki á íslenska lopapeysu en
þær hafa einnig verið mjög vin-
sælar meðal erlendra ferðamanna
sem borga gjarnan háar fjárhæðir
fyrir þær.
Ullin stendur fyrir sínu
Ull hefur verið notuð í föt frá því árið 3000 fyrir Krist eða frá upphafi siðmenningar. Hún er ein-
angrandi frá náttúrunnar hendi, hrindir frá sér vatni, endist lengi og ver fólk gegn kulda og hita.
Íslenska lopapeysan er vinsæl en á sér ekki mjög langa sögu. NORDICPHOTOS/GETTY
Hin hefð-
bundna
íslenska
lopapeysa er
með hringlaga
munsturbekk
yfir axlirnar.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Það finnst varla sá
Íslendingur sem
ekki á íslenska lopa-
peysu, hún er einnig
vinsæl meðal ferða-
manna
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Sófasett
Borðstofuborð
Stólar
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
Kommóður/hillur
o.m.fl.
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL VIKTOR
Hvíldarstóll
BELLUS VISBY
Hornsófi
KRAGELUND OTTO
KRAGELUND K371
Kragelund stólar
K 406
Ami
Grace
Manning
Highrock
Kelsey
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R