Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 44
Stuðningur og velvilji sam-starfsfólks getur haft veru-lega þýðingu fyrir þann sem
greinist. Hér eru nokkur hollráð
sem geta komið að gagni:
n Verum tilbúin að hlusta, leitast
við að skilja og sýna áhuga þó án
óþarfa hnýsni.
n Sýnum sveigjanleika og verum
tilbúin að breyta skipulagi til
að koma til móts við breyttar
aðstæður vinnufélagans.
n Munum að það hefur
víðtæk áhrif að
greinast með
krabbamein og
fara í krabba-
meinsmeðferð.
Áhrifin á hvern
og einn eru þó
mismunandi.
Meðal algengra
aukaverkana eru
þreyta, úthaldsleysi,
einbeitingarskortur, hár-
missir, ógleði/uppköst,
kvíði, reiði og sorg.
n Verum með-
vituð um að
líðan getur verið
mjög breytileg.
Algengt er að
fólk í krabba-
meinsmeðferð
eigi bæði góða
daga og slæma.
n Það getur verið mjög
mikilvægt fyrir fólk sem
greinst hefur með krabbamein
að halda áfram að vinna eða
vera í tengslum við vinnustað-
inn sinn. Vinnan veitir mörgum
öryggi og reglu þegar daglegt líf
getur annars verið gerbreytt. Að
halda tengslum við vinnufélaga
getur uppfyllt félagslegar þarfir
og dregið úr einangrun.
n Höfum í huga að mörgum
þykir erfitt að biðja um aðstoð.
Spyrjum beint hvort hægt sé að
aðstoða og hvernig. Ef aðstoð
er afþökkuð er gott að láta við-
komandi vita að boðið standi
áfram.
n Verum meðvituð um að þótt
krabbameinsmeðferð sé lokið
þá finna margir fyrir úthalds- og
einbeitingarleysi löngu eftir að
meðferð lýkur.
n Á krabb.is má finna ítarlegri
fræðslu og hollráð fyrir sam-
starfsfólk og vinnuveitendur
um stuðning við þá sem greinast
með krabbamein.
Sýnum vinnufélaga sem fær krabbamein stuðning
Alls hafa verið veittir 36 styrkir.
NORDICPHOTOS/GETTY
Markmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélags Íslands er að efla íslenskar
rannsóknir á krabbameinum
með því að styrkja rannsóknir
á orsökum krabbameina, for-
vörnum, meðferð og lífsgæðum
sjúklinga.
Vísindasjóðurinn var stofnaður
af Krabbameinsfélagi Íslands,
aðildarfélögum þess og stuðnings-
hópum. Tveir minningarsjóðir
runnu inn í sjóðinn; Minningar-
sjóður Ingibjargar Guðjóns-
dóttur Johnson og sjóður Kristínar
Björnsdóttur. Stofnfé sjóðsins var
rúmar 250 milljónir króna.
Búið er að úthluta úr sjóðnum
í þrígang. Veittir hafa verið 36
styrkir til 24 verkefna, alls 160
milljónir. Sjóðurinn dafnar og
styrkist með árlegum fjárframlög-
um frá Krabbameinsfélaginu, sem
meðal annars hluti af söfnunarfé
Bleiku slaufunnar stendur undir.
Starfsemi Vísindasjóðsins skapar
tækifæri fyrir íslenskar krabba-
meinsrannsóknir, sem leggja
sitt af mörkum til að fækka megi
krabbameinstilfellum, fækka
dauðsföllum af völdum krabba-
meina og bæta lífsgæði fólks með
krabbamein.
Stjórn Vísindasjóðsins tekur
ákvörðun um úthlutun úr
sjóðnum að undangenginni
faglegri umfjöllun Vísindaráðs
Krabbameinsfélagsins. Þessir ein-
staklingar starfa allir fyrir sjóðinn
í sjálf boðavinnu og eru grund-
völlur þess að tryggja faglega stöðu
sjóðsins.
Nánar á krabb.is/visindasjodur
Styrkir til
rannsókna
Dagur Bleiku slaufunnar
er á morgun 11. október
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa
og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan.
Fáðu sjálfa
tilbaka!
Krefjandi og markviss líkamsþjálfun,
sex vikna matarlisti, ummálsmæling, vigtun
og vikulegir póstar.
Njóttu þess að finna hvernig fötin passa þér betur,
öll hreyfing verður léttari og skemmtilegri
og þú verður líkari sjálfri þér!
Kynntu þér málið á jsb.is
Innritun í síma 581 3730
þig
E
F
L
IR
/ H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Ný TT-námskeið
hefjast 14. október
12 BLEIKA SLAUFAN 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R