Fréttablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 64
Ás m u n d a r s a l u r við Freyjugötu er heillandi sýningar-rými og þar er Krist-i n n Guðbr a ndu r Harðarson, heiðurs-
listamaður myndlistarhátíðarinn-
ar Sequences IX, að setja upp verk
sín, með aðstoð tveggja hjálparliða.
Á hvorn gaf l eru máluð risastór
verk, beint á vegginn, annað ljóst,
hitt dekkra og textar einkenna þau
bæði. „Ég hef alltaf verið mikið að
fást við texta í myndunum mínum
og samsetningar ýmissa þátta,“
segir listamaðurinn.
Kristinn Guðbrandur kveðst
hafa unnið á blöðum „í gamla
daga“ við að teikna upp síðurnar.
Það var áður en tölvutæknin hélt
innreið sína í blaðaútgáfu. „Svo
fór ég út í alls konar listsköpun og
hef víða komið við. Sýnt úti um allt
hér á Íslandi og víða erlendis. Var
meira að segja með einkasýningu
hér í Ásmundarsal árið 1982, þá var
hér gallerí. Svo var ég með fyrstu
sýninguna sem haldin var á Suður-
götu 7,“ lýsir hann þegar hann lítur
í f ljótheitum yfir farinn veg.
Var það sem hann málaði í upp-
hafi eitthvað í ætt við það sem hann
er að fást við núna?
„Við erum að tala um fjörutíu ár,
ýmislegt breytist með tíðarand-
anum og maður þróast vonandi
sem listamaður. En textanotkun
hefur alltaf fylgt mér og oftast eru
ólíkir þættir í sömu mynd sem búa
til einhverja stemningu.“
Veistu alltaf þegar þú leggur af
stað í nýtt verk hvert þú ert að fara?
„Nei, ég get ekki sagt það. En
sýningin núna sprettur upp úr
Sýningarstaðir
Sequences IX
• Marshallhúsið á Granda sem
hýsir bæði Nýlistasafnið og
Kling & Bang
• Ásmundarsalur
• Harbinger
• Bíó Paradís
Samhliða aðaldagskrá há-
tíðarinnar verða fjölbreyttar
sýningar og atburðir.
Dæmi um texta í
myndum Kristins
Nokkur fokheld hús, opið á
milli hæða. Ryk blæs inn í húsið
frá efnisnámum í nágrenninu.
Hið vel staðsetta hótel þar sem
fræga fólkið gistir stundum,
staður norðurljósa og sumar-
nátta.
„Sýningin sprettur upp úr bók sem er nýbúið að prenta,“ segir Kristinn Guðbrandur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Myndir málaðar á pappír, sem líka eru í bókinni. Þetta er sami heimurinn.
Gaman og alvara
eins og í lífinu sjálfu
Alþjóðlegi myndlistartvíæringurinn Se-
quences IX hefst á morgun og stendur til
20. október. Dagskráin teygir anga sína víða
og listamenn skipta tugum. Heiðurslista-
maður er Kristinn Guðbrandur Harðarson.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
bók sem er nýbúið að prenta. Hún
verður frumsýnd hér, Dauðabani
heitir hún,“ segir Kristinn Guð-
brandur. Viðurkennir að titillinn
sé ekki upplífgandi en bendir á að
dauðinn sé alltaf yfirvofandi.
Á hverri blaðsíðu bókarinnar er
texta- og myndapar. „Myndirnar á
sýningunni hér spretta út úr þessu
bókverki,“ útskýrir Kristinn Guð-
brandur. „Aðdragandinn er hug-
myndir sem leita á mig og koma frá
einhverju sem vekur athygli mína
– frá minningum eða texta – og ég
byrja á að krassa niður á blöð. Það
er efniviðurinn sem ég hef unnið
úr,“ segir hann og sýnir mér í tölvu
margs konar teikningar, stórar og
smáar. „Þetta er margra ára safn.
Ég tók mig til í fyrra, fór yfir þetta
allt og bjó til seríu úr myndum til
að ná þessu efni saman. Í tölvunni
eru textinn og myndirnar saman
en í bókinni splittast þær – á sýn-
ingunni hér renna þær svo saman
aftur.“
Á hliðarvegg Ásmundarsalar er
verið að raða upp myndum sem
málaðar eru á pappír. Þær birtast
líka í bókinni, að sögn Kristins
Guðbrands. „Þetta er allt sami
heimurinn, samsafn af alls konar
áreiti sem tengist saman,“ segir
hann. „Þar er bæði gaman og alvara
eins og í lífinu sjálfu.“
Jóhann Sigurjónsson.
Þjóðleikhúsið, í samstarfi við Vonarstrætisleikhúsið, minn-ist Jóhanns Sigurjónssonar
á Hátíðarkvöldi á Stóra sviðinu
mánudaginn 14. október. Fram
koma margir þekktir listamenn og
boðið verður upp á leiklestur, ljóða-
lestur og söng, auk umfjöllunar um
list skáldsins.
Nú í haust eru liðin 100 ár frá
andláti skáldsins Jóhanns Sigur-
jónssonar (f. 19. júní 1880 – d. 31.
ágúst 1919), en hann lést í Kaup-
mannahöfn aðeins 39 ára gamall.
Hann var þá orðinn almennt viður-
kenndur sem eitt helsta þálifandi
leikskáld Norðurlanda og verk hans
leikin víða um Evrópu og í Vestur-
heimi. Þrjú af fjórum þekktustu
leikverkum hans voru þó frumflutt
á Íslandi.
Jóhann Sigurjónsson skipaði sér í
fremstu röð ljóðskálda og var einn
af upphafsmönnum fríljóðsins. Við
sum ljóða hans hafa verið samin
lög sem alþekkt eru og oft heyrast
f lutt. Þeirra á meðal er Heimþrá, en
þangað er yfirskrift hátíðarkvölds-
ins sótt, Bikarinn, sem mörg tón-
skáld hafa spreytt sig á, og ekki síst
vögguvísa Höllu úr Fjalla-Eyvindi,
Sofðu unga ástin mín, sem hvert
mannsbarn á Íslandi þekkir.
Á hátíðarkvöldinu koma fram
margir þekktustu listamenn þjóð-
arinnar og meðal þeirra eru Hilmir
Snær Guðnason, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir, Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir, Lára Jóhanna Jóns-
dóttir, Anna Kristín Arngríms-
dóttir, Arnar Jónsson, Eyjólfur
Eyjólfsson og Kristján Franklín
Magnús. Vigdís Finnbogadóttir
ávarpar samkomuna og þeir Sveinn
Einarsson og Sveinn Yngvi Egils-
son fjalla um skáldskap Jóhanns.
Einnig verða leiklesin atriði úr
verkum skáldsins, f lutt ljóð og
sungin. Umsjón með leiklestrum
hefur Árni Kristjánsson. Að undir-
búningnum unnu Þórunn Magnea
Magnúsdóttir og Sveinn Einarsson.
Fögnuðurinn verður sem áður
sagði á Stóra sviðinu mánudaginn
14. október og hefst hann kl. 19.30.
Aðgangur er ókeypis meðan hús-
rúm leyfir.
Til heiðurs Jóhanni Sigurjónssyni
Andri Snær fær óskabyrjun í jólabókaflóðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Jólabókaflóðið er rétt að byrja en Andri Snær Magnason virðist mega fagna. Ný bók hans, Um
tímann og vatnið, hefur fengið
frábærar viðtökur og trónir í fyrsta
sæti metsölulista Eymundsson. Í
öðru sæti er Slæmur pabbi eftir hinn
sívinsæla barnabókahöfund David
Walliams og Þú og ég alltaf eftir Jill
Mansell er í þriðja sæti. Í fjórða sæti
er hin gullfallega bók Margrétar
Tryggvadóttur um Kjarval og í því
fimmta glæpasagan Gauksins gal
eftir Robert Galbraith, sem er dul-
nefni J.K. Rowling, en sú bók hefur
gert lukku víða.
Um tímann og vatnið á toppnum
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING