Fréttablaðið - 02.05.2015, Síða 26

Fréttablaðið - 02.05.2015, Síða 26
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Hulda mætti samviskusam- lega á samkomur í nokkrar vikur þar til hún fékk skilaboð um að nú væri komið að því, hún yrði tekin inn í söfnuðinn um kvöldið. Nafn hennar var lesið upp á samkom- unni og allir klöppuðu. Hún var aftur komin inn. „Ég fór þarna inn á eigin forsendum. En þegar ég horfi til baka þá sé ég hrædda og veika konu en gerði mér ekki grein fyrir því þá.“ Hún tók starfið í söfnuðinum alla leið og fann aftur tilgang. Hulda var öflug í trúboði en ætl- ast er til þess að meðlimir stundi trúboð hús úr húsi. „Meðaltal- ið voru ellefu tímar á mánuði og ég var yfirleitt fyrir ofan meðal- talið. Síðan var hægt að gerast aðstoðarbrautryðjandi sem þýddi að ég fór 60 tíma í mánuði. Þá var sagt frá því á samkomu og það var mikil viðurkenning. Ég tók þetta alla leið eins og mér einni er lagið,“ segir hún og brosir út í annað. Hulda hætti að halda jól og afmæli á nýjan leik, en hefð er fyrir því á meðal votta að halda ekki slíkar hátíðir. „Auðvitað var þetta rosalega erfitt gagnvart börnunum mínum líka en mér varð ekki haggað. Ég er svolítið þannig að ef ég ætla að gera eitt- hvað þá geri ég það, þótt það sé sárt.“ Eins og lítið þorp Samfélag votta hefur verið þekkt fyrir að vera lokað og sumir myndu segja einangrað. „Þetta er eins og lítið þorp þar sem allir þekkja alla og vita allt um alla. Flestir eru venjulegir en inni í þessu þorpi er fólk sem er mjög öfgakennt. Það fólk er fljótt að dæma aðra, það klagar aðra og er með augun opin fyrir öllu. Það er hvítt svæði og það er svart. Sumir eru á gráa svæðinu. Þá ertu enn skráður í söfnuðinn en tekur kannski ekki virkan þátt. Þú hefur heldur ekki gert neitt af þér til þess að vera rekinn og færð enn að halda sambandi við þá sem eru innan „þorpsins“.“ Árið 1994 veiktist Hulda alvar- lega af þunglyndi og kvíða. Hún upplifði ekki stuðning innan safn- aðarins og fannst eins og hún mætti ekki ræða veikindin. „Upp úr veikindunum fer ég aðeins að vinna í sjálfri mér og fer að hugsa um þetta. Þarna var ég búin að vera inni í þessu sam- félagi frá 1986 og var búin að sjá ýmsan sora sem viðgekkst. Margt sem mér fannst vera rangt.“ Þótt hún hafi byrjað að íhuga stöðu sína hélt hún áfram að vera virk í söfnuðinum. Þetta var leiðin sem hún hafði valið og hún ætl- aði sér að standa við það. Innan safnaðarins var fólkið sem hún umgekkst, hennar heimur. „Ég held bara áfram, reyni að vera stillt og góð og geri það sem þarf að gera. Veikindin ganga yfir en ég finn að ég er komin í svolít- inn mótþróa gagnvart þessu. Mér fannst alltaf erfitt að halda ekki jól, það var erfiður tími, sérstak- lega út af strákunum.“ Hulda á fimm systkini og fjög- ur þeirra eru meðlimir safnaðar- ins. Þrátt fyrir að finna að hún vildi ekki lengur tilheyra Vottum vildi hún ekki slíta sambandi við systkini sín á nýjan leik. „Ég var margbúin að segja við systkini mín að ég væri að hugsa um að segja mig úr söfnuðinum en þau báðu mig alltaf um að gera það ekki því þá gætu þau ekki talað við mig. Það er auðvitað sárt að missa systkini sín.“ Dóttirin gifti sig sautján ára Dóttir Huldu, Lilja, tók þátt í starfinu og ólst upp frá tíu ára aldri innan safnaðarins. Sautján ára gömul giftist hún manni sem var líka votti. „Það þótti mjög eðlilegt. Þessir krakkar mega ekki lifa kynlífi fyrir hjónaband. Það er unglingabók sem er gefin út á vegum þeirra þar sem kemur fram að þú megir ekki stunda sjálfsfróun og helst ekki skoða eigin kynfæri. Allt tengt kynlífi er bara tengt hjónum og þú átt helst að gifta þig innan Vottanna.“ Henni finnst sárt að hugsa til þess að hún hafi tekið dóttur sína með inn í söfnuðinn. „Hugsaðu þér ofbeldið sem ég beitti hana af einlægni því ég hélt það væri rétt,“ segir hún. „Einu sinni þegar hún var unglingur stóð hún og var að horfa út um gluggann. Það var bekkjarkvöld í skólanum. Ég kem til hennar og segi: Langar þig að fara? Hún segir já. Ég segi við hana: Ef hjartað þitt er þar. Og hún fór ekki,“ segir hún hikandi. „Sérðu ofbeldið?“ spyr hún og það er greinilegt að það tekur á að rifja þetta upp. „Ég ýtti á alla hennar sektarkennd. Það var búið að kenna mér það. Þú færð sýni- kennslu á samkomu hvernig þú átt að tala við börnin þín og hvernig þú átt að fara að því að gera hitt og þetta. Fólk er bara matað.“ Með tímanum þróaðist það þannig að Hulda fór að taka minni þátt í starfinu og segist hafa verið verið lengi á gráa svæðinu. Í kringum aldamótin urðu kafla- skil. Lilja, dóttir Huldu, kom út úr skápnum. Samkynhneigð er ekki samþykkt innan safnaðar- ins. „Það var mjög erfitt fyrir hana og sársaukafullt. Hún var útskúfuð og strax rekin. Þetta var rosalegt mál innan safnaðarins en ekki fyrir mig. Ég sagði strax við hana að það skipti mig engu máli. Ég elska hana skilyrðislaust og myndi aldrei snúa við henni bak- inu, sama hvað á gengur. Aldrei.“ Hulda hélst enn innan safnað- arins þó að dóttir hennar hefði verið útskúfuð en hélt sig á gráa svæðinu. „Systkini mín voru ekki ánægð. Í eitt skiptið vorum við á Strikinu í Kaupmannahöfn, ég og Lilja. Við mættum fyrir tilvilj- un systur minni sem býr í Kaup- mannahöfn. Mér þykir alveg ofboðslega vænt um hana og Lilja hafði verið mikið hjá henni. Ég stóð á milli þeirra og hún lét eins og Lilja væri ekki þarna og vildi ekki tala við hana. Þetta var hræðilegt.“ Afdrifarík heimsókn Það var svo eitt kvöld sem Hulda fékk heimsókn frá tveimur öld- ungum. „Þetta var á þeim tíma sem fólk var mikið með Barna- landssíður fyrir börnin sín þar sem það setti inn myndir og annað. Ég skrifaði við myndir inni á síðu fyrir barnabarnið mitt, bæði við myndir af barnabörnunum og svo var mynd af Lilju og kærustunni hennar sem ég skrifaði undir að þær væru svo góðar og fallegar og eitthvað svona. Bara eins og mömmur gera,“ segir hún. „Þeir biðja um að fá að koma inn og ég býð þeim inn. Þeir sitja svo hérna báðir tveir,“ segir hún og bend- ir á sófa í stofunni hjá sér. „Þeir draga síðan upp A-4 blöð. Á þeim var myndin og það sem ég skrif- aði undir. Þeir rétta mér þetta og spyrja hvort ég ætli virkilega að samþykkja það að dóttir mín sé samkynhneigð,“ segir hún og reiðin leynir sér ekki í rödd henn- ar þegar hún rifjar þetta upp. „Ég man að ég horfði á þetta og sagði: Eruð þið geðveikir? Þið eruð stór- klikkaðir. Hvernig dettur ykkur þetta í hug? Þetta eru börnin mín og barnabörnin mín og þau eru númer eitt, tvö og þrjú. Ekki trúin. Og ég bað þá vinsamlegast um að koma sér út. Ég var brjáluð.“ Sagði skilið við söfnuðinn Eftir að þeir fóru kraumaði reiðin sem aldrei fyrr. „Ég hugsaði með mér: Jæja, Hulda, nú er komið að því. Ég settist niður og skrifaði úrsagnarbréf þar sem stóð: Ég segi mig hér með úr Söfnuði Votta Jehóva, virðingarfyllst Hulda Fríða Berndsen. Daginn eftir skil- aði ég bréfinu inn í Ríkissalinn á Sogavegi.“ Hulda tilheyrði ekki lengur þorpinu. „Það varð mikið fjaðra- fok. Ég var komin út úr þorpinu og allir sem enn voru þar töluðu ekki við mig. Flest systkini mín tala ekki við mig og það þykir mér sárast af því mér þykir svo vænt um þau og veit að þeim þykir líka vænt um mig. Mér er ekki boðið þegar það eru viðburðir í þeirra fjölskyldum. Vinir mínir sem ég átti innan safnaðarins heilsa mér ekki,“ segir hún og vitnar í eitt atvik því tengt. „Ég rakst í eitt skipti á vinkonu mína í Kringl- unni. Þessi vinkona mín kom inn í Vottana í gegnum mig. Og ég man hvað ég var ofsalega glöð að sjá hana. Ég ætlaði að hlaupa að henni og faðma hana en hún labb- aði í burtu.“ Æðsta valdið innan safnaðarins Systkini hennar reyndu líka að tala um fyrir henni. „Bróðir minn og konan hans komu til mín. Þau settu sig svolítið á háan hest og spurðu mig hvort ég ætlaði virki- lega að fórna sannleikunum fyrir börnin mín. Og ég sagði já, ég ætla að fórna þessu öllu fyrir börnin mín. Annað skiptir ekki máli. Ég hef ekki það góða reynslu innan safnaðarins að ég myndi fórna börnunum mínum fyrir það. Aldrei. Ég hef gert það og geri það aldrei aftur,“ segir hún. Fyrst eftir að Hulda hætti í söfnuðinum var hún reið en átti erfitt með að finna reiðinni far- veg. „Ég átti líka mjög erfitt með að tala um það sem hafði gengið á. Okkur er kennt að tala ekki um þetta og fyrir mig að opna mig um þetta var stórt skref. Mér fannst ég ekki mega segja frá reynslu minni. Þegar ég horfi til baka þá skil ég ekki hvernig ég trúði þessu. Þetta er svo mikið ofbeldi. Þér er kennt hvernig þú átt að haga þér og það er öllu stjórnað. Ég gerði mér ekki grein fyrir þessu ofbeldi fyrr en ég fór að vinna í mínum málum.“ Hún segir það ekki hafa verið auðvelt skref að stíga út fyrir söfnuðinn og losa sig við það sem henni hafði verið kennt. „Þetta er það sem maður þekkir og þú þarft að byrja algjörlega upp á nýtt orðin fullorðin kona.“ Að hennar sögn sneri reiðin líka að því hvernig fólki er stjórnað innan safnaðarins og hlutum sem hún sá að voru ekki eðlilegir. „Ég sá margt skrýtið þarna. Eitt situr alltaf í mér. Ég var að passa litla stúlku innan safnaðarins, hún fór að segja mér frá hlutum sem voru mjög óhugnanlegir. Hún lýsti nákvæmlega fyrir mér hvað hefði verið gert við hana – eitthvað sem svona ung börn ættu ekki að vita af. Ég sagði mömmu hennar frá þessu sem fékk áfall. Það kom í ljós að faðir hennar hafði beitt hana kynferðisofbeldi. Foreldr- arnir voru skilin en bæði í söfn- uðinum. Öldungarnir tóku málið að sér. Svar þeirra var biblíunám með foreldrunum. Ég held að málið hafi ekki verið kært en ég veit að hún fór í einhverja skoðun en þannig voru málin leyst þarna. Æðsta valdið er innan safnaðar- ins.“ Útilokað Hulda segir margt undarlegt við starfið innan safnaðarins. Fólk vinnur sig upp í ábyrgðarstöð- ur. Konur eru óæðri og geta til dæmis ekki ekki orðið öldungar sem eru æðstir innan safnaðarins. Eins finnst henni sorglegt hvern- ig fólk innan safnaðarins afneitar þeim sem hætta. „Maður sem ég veit um missti móður sína, hann mátti koma í jarðarförina en ekki erfidrykkjuna því pabbi hans og systur voru vottar. Annað dæmi sem ég veit um var ung kona sem var brottrekin og missti móður sína. Hún vildi fá að bera kistuna út en mátti það ekki af því það myndi stuða vottana.“ Fyrir um ári byrjaði Hulda að mála myndir og það hefur hjálp- að henni mikið. „Þetta er eins og hugleiðsla,“ segir hún þegar hún sýnir blaðamanni myndirnar sem prýða veggi heimilisins og fylla heilt vinnuherbergi. Hún hefur ekki langt að sækja listahæfileik- ana en faðir hennar var málara- meistari en hann lést þegar hún var aðeins fimmtán ára gömul. Huldu finnst fjarstæðukennt í dag að hafa tilheyrt vottunum. „En ég er hætt að skammast mín fyrir það hver ég er. Ég er ekki lengur hrædd eins og ég var. Ég fæ kvíða en ég er ekki hrædd. Ég gat aldrei talað um þetta af því manni var kennt að tala ekki um þessa hluti. Þú máttir aldrei hafa skoðanir. Og þá er skömm- in svo mikil. Það var mikið mál fyrir mig að brjóta ísinn og byrja að tala. Auðvitað er ég markeruð af því sem fyrir mig hefur komið en það er aldrei of seint að vinna í því. Nú er ég 63 ára og er að vinna í því að ná heilsu og það sem ég þrái mest er að geta hlúð að minni fjölskyldu á eðlilegan og heiðar- legan hátt. Ég var alltaf með grímu, nú tek ég grímuna af og get sagt við fólk: Ég var þunglynd, ég var Vottur Jehóva. Ég var það, ég var ekki neydd í það en ég var þarna af því ég var veik og ég veit það núna.“ DÓTTIR MÁLARANS Hulda byrjaði fyrir um ári að mála myndir og hefur það hjálpað henni mikið. Faðir hennar, sem lést þegar hún var aðeins fimmtán ára, var málara- meistari og málaði myndir. Hér er hún í vinnuherbergi sínu innan um myndirnar sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þeir rétta mér þetta og spyrja hvort ég ætli virki- lega að samþykkja það að dóttir mín sé samkyn- hneigð. Ég er hætt að skamm- ast mín fyrir það hver ég er. Ég er ekki lengur hrædd eins og ég var. Ég var alltaf með grímu, nú tek ég grímuna af og get sagt við fólk: Ég var þunglynd, ég var Vottur Jehóva. Ég var það, ég var ekki neydd í það en ég var þarna af því ég var veik og ég veit það núna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.