Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 38
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN TÆKNI | 38
Svanhildur
Hólm Valsdóttir
aðstoðarmaður
fjármála- og
efnahagsráðherra
UPPÁHALDS
ÖPPIN8
3G 9:41 AM
Twitter Facebook Shazam
Audible Snapchat
Clue
AUDIBLE
Hljóðbækur eru meiriháttar. Nota
þetta til dæmis þegar ég keyri, laga
til eða geng og ég sofna alltaf út frá
hljóðbók. Stilli á fimmtán mínútur og
veit ekki meir.
FEEDLY
Fréttaveitan mín. Síar frá allt smellu-
dólgadraslið og ég er eldsnögg að
fara í gegnum það sem ég þarf
að lesa.
FACEBOOK
Æ, já. Maður er ekki meira
töff en þetta.
TWITTER
Eða jú, Twitter bjargar því
sem bjargað verður. Ég er
víst #hippogkúl.
SNAPCHAT
Hvað get ég sagt? Hvernig á
maður annars að fylgjast með
því hvað vinir manns drekka
mikið?
SPOTIFY
Veit ekki hvernig ég komst í
gegnum daginn án Spotify áður.
SHAZAM
Sniðugt app sem bjargar mér
iðulega frá þráhyggju yfir að
muna ekki hvað lagið í útvarpinu
heitir.
CLUE
Ef ég hefði átt þetta app fyrir
sex árum hefði yngsta barnið
sennilega aldrei orðið til. Guði sé
lof að ég átti ekki snjallsíma þá.
SpotifyFeedly
Þegar ný, byltingarkennd tækni er annars vegar hefur síðasta öld eða svo verið gjöful, svo um munar. Í raun hafa vís-indamenn, verkfræðingar
og frumkvöðlar af öllum toga verið
svo duglegir að við hin eigum í bölv-
uðum erfiðleikum með að halda í við
þá. Tækninni fleygir fram og við
neytendur sitjum eftir. Grunlaus-
ir – jafnvel firrtir – þátttakendur í
byltingunni.
Eins og við höfum séð á allra
síðustu árum fylgja þessari þróun
flókin lagaleg vandamál. Hvernig
komum við böndum á nýja, fram-
andi tækni með ákvæðum og reglu-
gerðum án þess að kæfa nýjungina
í fæðingu?
Þessa daga keppast þjóðir heims-
ins við að koma á reglugerðum um
notkun ómannaðra loftfara. Hér
höfum við tækni sem er svo ný að
Íslendingar hafa ekki einu sinni
sammælst um hvað á að kalla hana.
Flygildi segja sumir, aðrir nota
dróni. Enn aðrir nota mannleysa
(oftar en ekki í hálfkæringi) og
síðan vill einn spekingur nota orðið
sviffluga, sem er mögulegt samheiti
yfir sjálfan höfund orðsins, Ómar
Ragnarsson (Pæling: Þetta leiðin-
lega suð í drónunum. Við gætum
hreinlega kallað fyrirbærið ómar.
Hefur jafnvel menningarsögulega
tengingu. „Hvað er þetta á flugi
þarna?“ „Nú, ómar auðvitað.“ – Þið
pælið í þessu).
Gjöfin í ár
Lengi vel var notkun ómannaðra
loftfara takmörkuð við hernað.
Með ódýrri tölvutækni og skynj-
urum, minni myndavélum og fleiru
eru drónar (það fallbeygist bara svo
vel) skyndilega að ryðja sér til rúms
á almennum markaði, þrátt fyrir að
vera háðir vissum tæknilegum tak-
mörkunum þegar kemur að drægni
og sjálfstýringu. Engu að síður njóta
þeir gríðarlegra vinsælda.
Greiningarfyrirtækið Lux Re-
search áætlar að í kringum 500
þúsund drónar hafi verið seldir á
almennum markaði á síðasta ári.
Miðað við bestu spár verða 1,6 millj-
ónir dróna seldar á heimsvísu árið
2025. Sama spá gerir ráð fyrir að
velta markaðarins nemi 28 millj-
örðum króna það ár. Það sem stend-
ur helst í vegi fyrir að drónar nái
slíkum vinsældum eru reglugerðir.
Kanadamenn og Ástralar hafa tekið
af skarið og komið á stífum reglum
um notkun dróna en slíkt er vart að
finna hjá öðrum þjóðum. Það er þó
að fara að breytast hérna á Íslandi.
Tækifæri og takmarkanir
Samgöngustofa hefur unnið að til-
lögum að reglugerð um ómönnuð
flugför. Þórólfur Árnason forstjóri
vonast til að skila tillögum til innan-
ríkisráðuneytisins „öðrum hvorum
megin við helgina“. Ráðuneytið taki
þá við og birti drögin til almennrar
umsagnar í kjölfarið.
„Þarna er verið að taka sérstak-
lega fyrir ómönnuð flugför eða
dróna að ákveðinni þyngd, að þeim
sé flogið í ákveðinni hæð og að það
sé full stjórn á þeim,“ segir Þórólf-
ur, sem er vélaverkfræðingur að
mennt, og ítrekar að eins og með
leikföng af öllum toga gildi almenn
landslög um ábyrgð þeirra sem
er við stjórnvölinn. Jafnframt er
þegar öll truflun á flugvallarsvæð-
um bönnuð.
„Það er mikið verið að skoða
þetta meðal erlendra þjóða og þá
fyrst og fremst að gæta að einkalífi
og að þetta hindri ekki aðrar loft-
ferðir, mannaðar loftferðir. Það eru
öryggissjónarmið sem við leggjum
áherslu á.“
Að sögn Þórólfs hefur Samgöngu-
stofa haft samráð við áhugamenn
um drónatækni og fagaðila, stóru
flugfélögin, ISAVIA og fleiri.
„Við höfum frekar verið að horfa á
möguleikana og tækifærin sem fel-
ast í þessu. Og ég tel að það séu mikl-
ir möguleikar hérna,“ segir Þórólfur.
Hann bendir á að loftrými Íslands sé
nokkuð sérstakt. Við erum langt frá
öðrum þjóðum, þar sem drónar eru
víða bannaðir vegna hernaðarlegs
mikilvægis. „Við höfum hér tæki-
færi til að nýta þessa auðlind sem
loftrými okkar er.“
Þannig væri hægt að nýta loft-
rými Íslands eða svæði innan þess
sem eins konar tilraunasvæði fyrir
dróna. Þegar hefur borist beiðni um
slíkt frá erlendum aðila en Þórólfur
getur ekki gefið upp um hvaða fyrir-
tæki er að ræða. „Það liggur fyrir
mjög athyglisverð beiðni frá ákveðn-
um aðila um slíkt. Frátekið loftrými
á ákveðnum stað til prófana.“
Ábyrgð notandans
Reglur geta hamlað eða örvað
tækniþróun. Greinendur Lux Re-
search benda á að framtíð dróna-
tækninnar á hinum almenna mark-
aði sé enn óljós. Skortur á reglum sé
ekki endilega til þess að efla áhuga
fólks á tækninni, þvert á móti.
Þegar vafasamar uppákomur eiga
sér stað grípa svifasein stjórnvöld
til róttækra, jafnvel gerræðislega
aðgerða með hreinu banni. Þetta
hefur átt sér stað í Bandaríkjunum,
Spáni og Suður-Afríku.
„Ég hef mest hugað að því að
þetta sé á ábyrgð notandans, að
þessir hlutir séu merktir og að
hægt sé að rekja þá til þess sem ber
ábyrgð á þeim,“ segir Þórólfur.
Villta vestur drónanna á enda
Samgöngustofa skilar tillögum að reglugerð um notkun dróna á næstu dögum. Erlendur aðili vill nota íslenskt loft rými fyrir tilrauna-
fl ug með dróna. Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu, segir það gott tækifæri til að nýta þá auðlind sem loft rými Íslands er.
FLYGILDI Nú styttist í að reglur um dróna verði kynntar. NORDICPHOTOS/GETTY
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@365.is
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
Öflug spjald- og leikjatölva með
öllum klassísku tökkunum ásamt
5” kristaltærum HD snertiskjá og
ótrúlegu úrvali af leikjum og forritum!14.900
LEIKJATÖLVA
ÓGRYNNILEIKJANÆR ÓTAKMARKAÐ ÚRVAL AF LEIKJUM OG FORRITUM FYRIR ÞESSA ÓTRÚLEGU GRÆJU
OPIÐ
Í DAG FRÁ
11-16
Þarna er verið að
taka sérstaklega fyrir
ómönnuð flugför eða
dróna að ákveðinni
þyngd, að þeim sé flogið
í ákveðinni hæð og að
það sé full stjórn á þeim.
Þórólfur Árnason,
forstjóri Samgöngustofu
2.0
1.5
1.0
0.5
2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
m
ill
jó
ni
r
ei
nt
ak
a
SALA Á DRÓNUM
hátt mat
grunnmat