Fréttablaðið - 02.05.2015, Síða 96
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 56
MIÐASALA Á WWW.TIX.IS,
Í LUCKY RECORDS OG MOHAWKS
#SECRETSOLSTICE
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
2. MAÍ 2015
Tónleikar
11.00 Karlakór Eyjafjarðar heldur tón-
leika í Skúlagarði í Kelduhverfi. Léttur
söngur með súpu og brauði á eftir.
Stjórnandi er Petra Björk Pálsdóttir.
Miðaverð er 3.000 krónur fyrir söng,
súpu og brauð.
13.00 Blásarasveit Bærum efnir til
ókeypis tónleika í Hörpuhorni, Hörpu.
13.00 Valgerður Guðnadóttir, Þór Breið-
fjörð og Felix Bergsson syngja lögin úr
teiknimyndunum á fjölskyldutónleikum
í Salnum í Kópavogi. Miðaverð er 3.300
krónur.
14.00 Bergljót Arnalds heldur kynn-
ingartónleikana Hjartsláttur í Tón-
listarsafni Íslands. Þar mun hún flytja
nokkur frumsamin lög. Bergljót kynnir
nú fyrsta sólódisk sinn, Hjartslátt.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
14.00 Söngfélag Skaftfellinga, Vinir
Skúla og Karlakórinn Ernir efna til tón-
leika í Ísafjarðarkirkju í dag. Miðaverð
er 2.000 krónur.
15.00 Vortónleikar Karlakórsins Fóst-
bræðra í Norðurljósasal Hörpunnar.
Miðaverð er 3.000 krónur.
15.00 Vortónleikar Karlakórs Reykja-
víkur í Langholtskirkju. Sérstakur
gestur á tónleikunum er kór eldri félaga
Karlakórs Reykjavíkur. Á efnisskránni
eru lög úr ýmsum áttum og miðaverð
er 3.500 krónur.
16.00 Karlakór Kópavogs heldur vor-
tónleika í Salnum í Kópavogi. Miðaverð
er 4.500 krónur.
16.00 Úrvalssveit Tónlistarskóla FÍH
heldur ókeypis tónleika í Kaldalónssal
Hörpu.
16.00 Hljómsveitin Dimma heldur
tvenna tónleika á Húrra í dag. Fyrri
tónleikarnir eru opnir öllum aldurs-
hópum og er miðaverð 1.000 krónur
og frítt fyrir börn yngri en 6 ára og sjá
Meistarar dauðans um upphitun. Seinni
tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og
er miðaverð 2.000 krónur. Sérstakur
gestur er hljómsveitin Röskun.
17.00 Lúðrahljómsveit Reykjavíkur
heldur vortónleika í Neskirkju. Efnisskrá
tónleikana samanstendur af fjölbreyttri
tónlist úr ýmsum heimshornum. Miða-
verð er 2.000 krónur.
19.30 TINA - Drottning Rokksins í Eld-
borgarsal Hörpunnar í kvöld. Sigríður
Beinteinsdóttir, Bryndís Ásmundsdóttir
Stefanía Svavarsdóttir, Erna Hrönn og
Regína Ósk flytja öll bestu lögin frá ferli
Tinu. Miðaverð frá 6.900 krónum.
20.00 Hvannadalsbræður fagna útgáfu
hljómplötu sinnar Hvannadalsbræður–
Klappa ketti með tvennum tónleikum á
Græna hattinum, Akureyri. Miðaverð er
2.500 krónur og hefjast seinni tónleik-
arnir klukkan 23.00.
21.00 Soffía Björg býður vorið vel-
komið í Mengi. Með henni verða Tómas
Jónsson á skringi-rhodes og mynd-
listarkonan Sigríður Þóra Óðinsdóttir
sem varpar vídeóverki á vegg tónleika-
staðarins. Miðaverð er 2.000 krónur.
21.00 Skriðið úr Skelinni #6 á A. Han-
sen Bar í Hafnarfirði. Fram koma Skúli
mennski, Unnur Sara, Kristín Waage &
Band og Electric Elephant.
22.00 Svanhildur Jakobsdóttir rifjar
upp nokkra af sínum helstu smellum
ásamt ZwingZveitinni á Café Rósen-
berg. Miðaverð 3.000 krónur.
Opnanir
15.00 Listakonan Ragnheiður Guð-
mundsdóttir opnar einkasýninguna
Vefir í listasalnum Anarkíu, Hamraborg
3. Meginstef sýningarinnar er hvernig
tilfinningar hafa áhrif á líkamlegt
ástand.
15.00 Listakonan Ólöf Björg Björns-
dóttir opnar einkasýninguna Skuggar
og skilningsljós í listasal Anarkíu,
Hamraborg 3. Á sýningunni verða ný
málverk.
Sýningar
14.00 Vorsýning á fjölbreyttum verkum
handverkshópa sem starfa í Gerðubergi.
Á sýningunni má meðal annars sjá
bókband, bútasaum, gler, handavinnu,
tálgun og pappamódel. Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri opnar sýninguna
og Gerðubergskórinn syngur vel valin
lög.
15.00 Nemendasýningin Treasure sýnd
í Tjarnarbíó. Nemendur og kennarar
Rebel Dance Studio sýna afrakstur
annarinnar. Miðaverð er 2.500 krónur.
Söfn
14.00 Kínasafn Unnar, Njálsgötu 33a
opið til klukkan 16.00. Unnur verður á
svæðinu, sýnir og segir frá.
Uppákomur
11.00 Lifandi laugardagur í miðbæ
Hafnarfjarðar. Opið verður lengur í
verslunum og krítar fyrir utan verslanir
fyrir börnin.
13.00 Ókeypis myndasögudagurinn
2015 haldinn hátíðlegur í verslun
Nexus, Nóatúni 17. Gestir fá sérútgefin
myndasögublöð á ensku frá ýmsum
útgefendum. Búningaáhugafólk hvatt
til þess að mæta í búningum.
13.00 Íslenski barinn fagnar eins árs
afmæli. Hljómsveitirnar Dætrasynir og
Ottoman koma fram og boðið verður
upp á afmælisköku.
Tónlist
21.00 Trúbadorinn Roland verður á
American Bar í kvöld.
21.00 Dj Yamaho þeytir skífum á Kaffi-
barnum í kvöld.
22.00 Dj Raggi þeytir skífum á
Lebowski Bar í kvöld.
22.00 Berndsen og Arnljótur úr Oj-
barasta þeyta skífum á Gauknum.
22.00 Dj Kári þeytir skífum á Paloma
í kvöld.
23.30 Dj Frímann og Pilsner þeyta
skífum á Paloma í kvöld.
Markaðir
11.00 Fatamarkaður
Fatahönnuða á Lofti
Hosteli í dag. Katrín
Alda, Hildur Yeoman,
Rebeka Jónsdóttir,
Eygló Lárusdóttir,
Rannveig Kristjáns-
dóttir og Sævar Mark-
ús selja notaða og
ónotaða merkja-
vöru, skó,
skart, töskur
og tísku-
bækur.
LAUGARDAGUR