Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 102

Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 102
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 62 Við komum saman, allir komnir með grátt í skeggið og vangann en svo var þetta eins og að fara í tímavél. Falleg nærvera skapaðist og fullt af hugmyndum fór á flug. Á einhverjum tímapunkti fór ég að gleyma af hverju ég væri í þessu og ég týndi sjálfum mér. Þess vegna tók ég með- vitaða og heiðarlega ákvörðun um að hætta í músík. Þetta er svo gaman,“ segir Berg-sveinn og bókstaflega ljómar þegar hann segir mér frá endurkomunni og hressandi hljómsveitaræfing-um Sóldaggar undanfarna daga. „Við erum ráðsettir fjölskyldu- feður í úthverfum í dag og frá því að bandið hætti árið 2001 hafa tíu börn fæðst í hópinn. Svo fórum við að spá í hvernig við ættum að fagna afmælinu, við erum allir miklir vinir og höfum alltaf haldið góðu sambandi þannig að pælingin var fyrst að fara saman í ferða- lag með fjölskyldurnar. En svo fundum við að okkur langaði svo að taka upp hljóðfærin og spila fyrir fólk aftur. Finna aftur stemn- inguna, spennuna og orkuna. Ég held að þetta sé eins og fyrir menn sem spiluðu fótbolta á yngri árum að fara svo í bumbubolta til að upplifa tilfinninguna aftur.“ Innst inni hljómsveitargaur Bergsveinn, eða Beggi eins og hann er alltaf kallaður, byrjaði ungur í bransanum og var í rapphljómsveit fimmtán ára gamall. Hann vakti síðan mikla athygli þegar hann tók þátt í söngleiknum The Commitments á mennta- skólaaldri og í kjölfarið var hljómsveitin Sól- dögg stofnuð 1995. „Þegar þetta afmæli kom upp fór ég í smá naflaskoðun og hugsaði hver ég væri eiginlega. Jú, ég er ráðsettur maður og vinn mína vinnu hjá Ölgerðinni í matvælabrans- anum og hef gert í mörg ár. En innst inni er ég hljómsveitargaur. Mamma kom einmitt í gær heim með gamla teikniblokk frá því ég var sjö ára. Þar var ég búinn að teikna óla prik kalla með hljóðfæri uppi á sviði og svo stóð með krakkaskrift fyrir ofan: „Ég ætla að verða söngvari þegar ég verð stór.“ Ég er bara þessi gaur.“ Springa úr sköpunarkrafti Sóldaggarmeðlimirnir fjórir hittust á dög- unum til að athuga hvort fótur væri fyrir því að spila opinberlega á afmælinu. „Við komum saman, allir komnir með grátt í skeggið og vangann en svo var þetta eins og að fara í tímavél. Falleg nærvera skapaðist og fullt af hugmyndum fór á flug. Á þessari einu æfingu gerðum við grunn að þremur nýjum lögum. Allir að springa úr sköpunarkrafti.“ Hljómsveitin hætti störfum árið 2001 eftir sex ára spilamennsku úti um allt land og um það bil 130 böll á ári. Hver einasta helgi fór í akstur landshorna á milli þar sem sofið var í rútunni á daginn og spilað á kvöldin. Sveit- in náði skottinu á sveitaballatímabilinu og Beggi lýsir tímanum sem einu stóru partíi. En af hverju hætti hljómsveitin? „Af því að partíið var í raun löngu búið,“ segir Beggi hlæjandi en bætir svo einlægur við að hann hafi hreinlega klárað sig and- lega. „Þessi lífsstíll keyrði mig eiginlega í þrot enda vorum við í hljómsveitinni ekki beint þekktir fyrir að vera þessir fyrirmynd- arpopparar eins og þekkjast í dag – þessir sem eru í íþróttum, bragða ekki áfengi og eru góðar fyrirmyndir fyrir unga fólkið. Á einhverjum tímapunkti fór ég að gleyma af hverju ég væri í þessu og ég týndi sjálfum mér. Þess vegna tók ég meðvitaða og heiðar- lega ákvörðun um að hætta í músík. Þrátt fyrir að ég hefði mikla ástríðu fyrir tónlist þá varð ég að gera þetta til að breyta lífi mínu og koma fótunum niður á jörðina. Ég hætti að drekka og hef ekki smakkað vín frá árinu 2003. Áfengi helst oft í hendur við svona mikla spilamennsku því á einhverjum tíma- punkti ferðu að halla þér að einhverri hækju.“ Hrokinn farinn Við tók alveg nýtt líf hjá Begga. Hann tók saman við æskuástina og stofnaði fjölskyldu. „Það gerðust alveg æðislegir hlutir eftir að ég tók þessa ákvörðun. Ég var búinn að taka rokklífsstílinn alla leið og kláraði pakkann. Það gerir það að verkum að þegar ég er að kveikja á gasgrillinu eða að leira á laugar- dagskvöldi þá er ekkert þarna úti sem togar í mig lengur. Been there – done that,“ segir Beggi glottandi. Er þá barnadraumurinn um að starfa sem söngvari farinn út í buskann? „Nei, nei. Ég er búinn að vera með annan fótinn í brans- anum. Ég var í Vinum vors og blóma á tíma- bili, söng með Pöpum og hef tekið þátt í ein- hverjum uppfærslum. Það er gott að koma að POPPARAR Sóldaggarmenn stilla sér upp á Gauki á Stöng árið 1998. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR JÓNASSON SAGÐI SKILIÐ VIÐ BRANSANN OG BREYTTI LÍFI SÍNU þessu aftur en bara svona yfirvegað. Þegar maður er svona skýr þá upplifir maður þetta öðruvísi, sambandið við fólkið í salnum verður betra og kikkið enn meira. Maður er meira svona frá hjartanu í þessu, enda er ég orðinn miklu næmari og meyrari með því að vera vímulaus. Hrokinn og óttinn eru farnir.“ Sóldögg kemur fjórum sinnum fram á næstu mánuðum. Fyrsta giggið verður í kvöld á Spot í Kópavogi en lokahnykkurinn verður á Þjóðhátíð í Eyjum, eða hvað? „Við ákváðum að gera tónlist í sumar. Semja og hafa gaman. Ég veit ekkert hvert það leiðir okkur. Við erum náttúrulega komnir á ákveðinn aldur og tónlistarsenan búin að breytast mjög mikið. En fyrir okkur er bara æði að búa til smá tónlist aftur.“ Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is Bergsveinn Arilíusson söngvari þurft i algjörlega að snúa við blaðinu eft ir nokkur ár af stans- lausu partíi. Tónlistin togar þó alltaf í hann og nú ætlar Sóldögg að koma saman aft ur af tilefni þess að tuttugu ár eru liðin frá því bandið var stofnað. MENNTAÐUR BAKARI Beggi starfar í matvælabransanum hjá Ölgerðinni og er ánægður með dagvinnu og fjölskyldulíf í úthverfi þótt tónlistin blundi alltaf í honum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.