Fréttablaðið - 02.05.2015, Side 108
2. maí 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 68
Ísland
– suðupottur fuglaflensu
www.hi.is
VÍSINDI Á MANNAMÁLI
Gunnar Þór Hallgrímsson, dósent í dýrafræði við Líf- og
umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, fjallar um rannsóknir
á veirum í farfuglum sem koma hingað til lands í sjötta erindi
fyrirlestraraðarinnar Vísindi á mannamáli í Háskóla Íslands.
Gunnar Þór hefur stundað rannsóknir sínar undanfarin ár og hafa
niðurstöður þeirra vakið athygli víða um heim. Erindið verður
haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 12.10.
Í kjölfar faraldurs fuglaflensu af stofni H5N1 fyrir nokkrum árum hefur mikil umræða
átt sér stað um flensu í fuglum um allan heim. Helstu áhyggjur manna snúa að þeirri
hættu sem alifuglum stafar af fuglaflensu og mögulegum áhrifum þess á menn ef
banvænar veirur breyta sér og smitast á milli manna.
Í erindinu fjallar Gunnar Þór um rannsóknir sínar og samstarfsfélaga sem á síðustu
árum hafa skoðað tíðni og gerðir fuglaflensuveira í fuglum á Íslandi. Í fuglunum fundust
margar gerðir veira sem eiga uppruna bæði í Evrópu og Ameríku. Rannsóknirnar leiddu
meðal annars í ljós að Ísland er einskonar suðupottur fyrir fuglaflensu frá mismunandi
heimssvæðum þar sem þær blandast og mynda nýjar veirur.
Af þessu leiðir að Ísland getur virkað eins og stökkpallur fyrir fuglaflensu á milli Evrasíu og
Ameríku. Í rannsóknunum fundust m.a. vægar gerðir af H5N1 (í vaðfugli) og H5N2
(í máfi) fuglaflensuveirum. Í erindinu verður sagt frá því hvaða fuglategundir eru líklegastar
til að flytja fuglaflensuveirur til og frá Íslandi og rýnt í lífshætti og farmynstur fuglanna.
Einnig verður rætt um hvaða áhrif flensa hefur á villta fugla og hvaða veirum mönnum
kann að stafa ógn af.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.hi.is/visindi_a_mannamali
PIPA
R\
TBW
A
• SÍA
• 151966
FÓTBOLTI Sú ákvörðun að fresta
leik Fylkis og Breiðabliks til
fimmtudags vakti athygli og
undrun margra. Fylkismenn voru
harkalega gagnrýndir í þætti
Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport á
fimmtudagskvöld en Ásmundur
Arnarsson, þjálfari Fylkis, vísar
umfjölluninni til föðurhúsanna.
„Það er mín skoðun að lið eigi að
spila á sínum heimavelli, sé þess
yfirhöfuð kostur,“ sagði Ásmund-
ur en Fylkismenn voru gagnrýndir
fyrir að færa leikinn ekki í knatt-
spyrnuhús eða gervigrasvöllinn í
Laugardal.
„Fyrir utan þá staðreynd að
gervigrasið í Laugardal stenst ekki
ströngustu kröfur leyfiskerfis KSÍ
þá voru menn ekki ánægðir með
það hraðmót sem fór fram á gervi-
grasinu í fyrra,“ sagði Ásmundur
og vísaði til þess að fjölmargir leik-
ir fóru fram í Laugardalnum í upp-
hafi tímabilsins eftir mikla vetrar-
hörku á höfuðborgarsvæðinu.
Hann segir að það eigi ekki að
þvinga félög til að spila á öðrum
völlum en sínum heimavelli. „Stór-
lið úti í heimi eru ekki beðin um
að spila á heimavöllum annarra
liða ef heimavöllurinn þeirra er
ekki leikfær. Þess fyrir utan legg-
ur félagið áherslu á að spila á velli
sem er löglegur og stenst allar
kröfur.“
Fylkisvöllur er ekki tilbúinn
eftir kaldan vetur og kuldakast
síðustu daga og vikna hefur ekki
hjálpað til. Starfsmenn Fylkis hafa
lengi vitað í hvað stefndi og segir
Ásmundur að leitað hafi verið allra
mögulegra lausna.
„Félagið reyndi að fá leiknum
frestað fram í júní til að gefa vell-
inum tvær vikur í viðbót. Því var
hafnað og er félagið afar ósátt við
vinnubrögð KSÍ í því máli. Við
könnuðum einnig hvort Breiða-
blik vildi skipta á heimaleikjum
og í fyrstu kom það til greina. Svo
reyndist erfitt að ná í Blikana en
það kom loks upp úr krafsinu að
völlurinn þeirra var ekki heldur
tilbúinn,“ segir Ásmundur.
„Við, leikmenn og þjálfarar,
erum mjög svekktir að það þurfti
að fresta leiknum. Við vildum ekk-
ert fremur en að spila og reynd-
um að þrýsta á það eins mikið og
mögulegt var. Það reyndist ein-
faldlega útilokað og því varð þetta
niðurstaðan. Þetta er salómons-
dómur sem enginn er sáttur við.“
Fyrr í vetur kom fram vilji for-
ráðamanna Fylkis til að skipta gras-
inu á aðalvelli félagsins út fyrir
gervigras. Ásmundur er hlynnt-
ur þeirri þróun. „Það er auðvitað
skemmtilegra að spila á grasi en
þegar allt er tekið til er ég hlynnt-
ur breytingunni. Það er ekkert vit
að nýta ekki öll mannvirki í kring-
um völlinn nema bara fyrir meist-
araflokk karla og kvenna í nokkra
mánuði á ári. Það á að nýta aðstöð-
una allt árið og í öllum flokkum.“
eirikur@frettabladid.is
Við vildum spila á sunnudag
Ásmundur Arnarsson segir að það hafi verið vilji þjálfara og leikmanna Fylkis að spila gegn Breiðabliki á
morgun. Að fresta leiknum til fi mmtudags hafi verið millilending sem enginn sé í raun fyllilega sáttur við.
ÓSÁTTUR VIÐ FRESTUNINA Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HNEFALEIKAR Eftir sex ára japl,
jaml og fuður er loks komið að
því: Floyd Mayweather Jr. og
Manny Pacquiao mætast í hringn-
um. Þessir tveir stórkostlegu
hnefaleikakappar berjast til síð-
asta blóðdropa í MGM Grand-
höllinni í Vegas aðfaranótt sunnu-
dags í stærsta bardaga sögunnar.
Hnefaleikarnir eiga margar stórar
stundir í sögubókunum en þegar
horft er til peninganna er enginn
stærri en þessi.
38,6 milljarðar
Búist er við að Mayweather og
Pacquiao skipti á milli sín 300
milljónum dala. Mayweather fær
60 prósent eins og um er samið
sem gerir 23,6 milljarða króna
og Filippseyingurinn fær 40 pró-
sent sem eru 15 milljarðar króna.
Engin sultarlaun.
Bardaginn mun mölbrjóta öll
met yfir kaup á einstökum við-
burði í sjónvarpi, svokallað Pay
Per View. Ekki bara mun bardag-
inn aðeins brjóta metið heldur tvö-
falda það.
Til að horfa á bardagann í hás-
kerpu í Bandaríkjunum þarf að
borga 100 dali eða þrettán þúsund
krónur. Hvergi annars staðar en á
Íslandi verður hægt að sjá bardag-
ann í áskriftarsjónvarpi, en Stöð 2
Sport sýnir bardagann í lýsingu
Bubba Morthens og Ómars Ragn-
arssonar. Útsendingin hefst klukk-
an eitt eftir miðnætti aðfaranótt
sunnudags.
Miðarnir á bardagann kostuðu
allt upp í 800 þúsund krónur en
ríkustu menn Bandaríkjanna og
fleiri landa buðu Bob Arum, þeim
sem sér um að kynna bardagann,
fleiri milljónir fyrir miða sem því
miður fyrir þá voru ekki til.
Engin Hollywood-stjarna fær
frítt á bardagann eins og tíðkast,
en kynningastjórarnir eru dugleg-
ir að fá frægasta fólkið í Banda-
ríkjunum í húsið með því að bjóða
því ókeypis miða.
Sú eina sem fær ókeypis miða er
MMA-stjarnan Ronda Rousey, en
Bob Arum sagðist ekki geta gert
annað en gefa henni miða þegar
hún lýsti því yfir að hún ætlaði að
eyða öllum tekjum sínum frá upp-
hafi í UFC til að kaupa sér miða á
svörtum markaði.
Fyrsta tap Mayweathers?
Það eru ekki bara peningarnir sem
gera bardagann svo stóran þó þeir
sýni svart á hvítu hversu ótrúlega
stórt þetta er. Báðir eru kapparn-
ir sem berjast ótrúlega hæfileika-
ríkir og tveir af bestu hnefaleika-
köppum sögunnar. Mayweather
er enn taplaus eftir 47 bardaga og
hefur unnið í fimm þyngdarflokk-
um, en Manny hefur unnið í átta
þyngdarflokkum, meira en nokkur
annar maður.
Hnefaleikaspekingar hafa velt
sér mikið upp úr því hvor megi
minna við tapi og eru flestir sam-
mála um að það sé hinn kjaftfori
Mayweather. Hann hefur sjálf-
ur lýst sér sem besta bardaga-
kappa sögunnar enda sé hann tap-
laus. Stór hluti af ímynd hans er
að hann hefur aldrei tapað sem
atvinnumaður.
Tapi Mayweather verður
umræðan um að hann handvelji
sér bardaga sem mestar líkur
eru á að hann vinni hverju sinni
bara háværari. Það er allt undir
og málið verður leyst í hringnum í
nótt. - tom
Sá stærsti frá upphafi
Mayweather og Pacquiao mætast loks í hringnum.
LOKSINS Lengi hefur verið beðið eftir því að Mayweather og Pacquiao mætist í
hringnum og nú verður af því eftir sex ára bið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Ísland mætir Serbíu
ytra í undankeppni EM 2016.
Strákarnir okkar komu sér á topp
riðilsins með glæsilegum sextán
marka sigri á Serbum í Laugar-
dalshöllinni á miðvikudag, 38-22.
Ísland komst á topp riðilsins
með sigrinum á markatölu en
liðið er með fjögur stig, rétt eins
og Svartfjallaland og Serbía.
Ísrael er svo án stiga á botninum
en tvö efstu liðin komast áfram á
EM 2016 í Póllandi.
Sigur í Serbíu yrði mikilvægur
áfangi í baráttunni um farseðil-
inn til Póllands en særðir heima-
menn þurfa einnig nauðsynlega
á stigunum að halda. Leikurinn
hefst klukkan 17.00 á morgun en
Ísland verður reyndar án Guð-
jóns Vals Sigurðssonar og Alex-
anders Peterssonar þar sem báðir
eiga við meiðsli að stríða. - esá
Verja topp-
sætið í Serbíu
ARON Leikstjórnandinn er í lykilhlut-
verki með Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR