Fréttablaðið - 07.05.2016, Qupperneq 20
Innritun
Skólaárið
2016-2017
w
w
w
.s
on
gs
ko
lin
n.
is
H
5
5
2
7
3
6
6
so
ng
sk
ol
in
n@
so
ng
sk
ol
in
n.
is
HáskóladeildFram
hald
sdei
ld
Ungli
ngade
ild
Miðdeild
Grunn
deild
Söngskólinn í Reykjavík
Þjóðlag
asöngu
r
Dægurlög
Söngleikir
Óperur
Íslen
sk o
g
erlen
d sö
nglö
g
Eitthvað!
fyrir
alla!
☞
•
Söngnámskeið
Unglingadeild
Grunnnám
Miðnám
Framhaldsnám
Háskólanám
•
Söngtækni
Söngtúlkun
Tónfræði
Hljómfræði
Tónheyrn
Nótnalestur
Tónlistarsaga
•
Einsöngur
Samsöngur
•
Söngtúlkun
á tónleikasviði
•
Söngtúlkun
með hreyfingum
•
A ðstandendur tón-leikasýningarinnar AC/DC leggja land undir fót og troða upp í Menningar-húsinu Hofi á Akur-
eyri í kvöld.
Líkt og nafn sýningarinnar gefur
til kynna eru tónsmíðar rokkhljóm-
sveitarinnar AC/DC í forgrunni og
sjá þeir Stefán Jakobsson, Dagur
Sigurðsson og Hjörtur Traustason
um að þenja raddböndin en hljóm-
sveitina skipa þeir Guðni Finnsson
á bassa, Ingó Geirdal á gítar, Franz
Gunnarsson á gítar og Magnús
Magnússon á trommur.
Friðrik Ómar Friðriksson ásamt
Rigg viðburðum sér um að setja
sýninguna upp en hún var frum-
sýnd um síðustu helgi í Eldborg og
segir hann sýninguna hafa laðað að
sér annan markhóp en fyrri sýning-
ar viðburðafyrirtækisins. „Við feng-
um alveg fulla Hörpu af karlmönn-
um og þetta var í fyrsta skipti sem
þeir voru í meirihluta,“ segir hann
og hlær, en fyrri sýningar Rigg eru
til dæmis Tina drottning rokksins,
Töfrar Tom Jones, Bee Gees í 55 ár,
heiðurstónleikar Freddie Mercury
og Vilhjálmur Vilhjálmsson 70 ára.
„AC/DC er eins og flestir kannast
við svona rokk og ról en samt svona
gleði rokk og ról. Við erum að fara
í gegnum þeirra helstu slagara og
kannski eitthvað minna þekkt.
Stemningin í Hörpu var geðveik,
það var bara risið úr sætunum og
klappað, stappað og öskrað,“ segir
Friðrik Ómar hress.
„Það sem er líka svo magnað er
að þeir eru búnir að selja mest af
plötum á Íslandi af öllum erlendum
artistum, í kringum 100.000 plötur,“
segir Friðrik Ómar um sveitina, en
af því að dæma er augljóst að þeir
félagar eiga upp á pallborðið hjá
íslenskum tónlistarunnendum.
Friðrik Ómar segir svo sannar-
lega ekki hlaupið að því að ætla
að syngja lög sveitarinnar sem eru
mörg hver töluvert erfið en segir þá
Stefán, Dag og Hjört rúlla því upp.
„Það er mjög erfitt að syngja þessa
tónlist en ég var einhvern veginn
alltaf með þessa þrjá stráka í huga.
Þetta prógramm, það er allt mjög
hátt uppi, en þeir rúlla þessu upp,“
segir Friðrik og bætir við að þeir séu
allir skemmtilega ólíkir en virki vel
saman í sýningunni og lofar góðri
skemmtun í kvöld. „Við lofum bara
geggjuðu „poweri“ í Hofi í kvöld,“
segir hann eldhress að lokum.
Sýningin hefst í Menningarhús-
inu Hofi klukkan 20.00 og er miða-
verð 7.990 krónur.
Lofa geggjuðum krafti í kvöld
Tónleikasýningin AC/DC var frumsýnd í Hörpu síðustu helgi og nú er land lagt undir fót og skellt í sýningu á Akur-
eyri í kvöld. Karlmenn voru í meirihluta um liðna helgi en það er í fyrsta sinn sem það gerist hjá Rigg viðburðum.
Það er ljóst að öllu verður til tjaldað í Hofi í kvöld þegar öll helstu lög rokksveitarinnar AC/DC verða flutt. MynD/Helgi SteinArS
Gyða Lóa Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
7 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R20 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
helgin