Fréttablaðið - 07.05.2016, Page 58
| AtvinnA | 7. maí 2016 LAUGARDAGUR12
Sálfræðingur
hjá skólaþjónustu Árborgar
Fræðslusvið Árborgar auglýsir lausa til umsóknar stöðu sál-
fræðings. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með
brennandi áhuga á starfi í skólum. Skólaþjónusta og skólar í
sveitarfélaginu vinna að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við
börn, foreldra og skóla í samstarfi við notendur þjónustunnar.
Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun, samstarf fagsviða og
stofnana, m.a. um þróun forvarna og úrræða fyrir börn og
foreldra. Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 8 þúsund íbúar, þar
af um 1800 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum.
Í þróun skólaþjónustu og skólastarfs leik- og grunnskóla er leitast
við að starfa í anda hugmyndafræði lærdómssamfélagsins (Pro-
fessional Learning Community).
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• sálfræðilegar skimanir og greiningar
• ráðgjöf til nemenda, foreldra og kennara, m.a. v/hegðunar-
og tilfinningavanda barna
• þverfaglegt samstarf um málefni barna í leik- og grunnskólum
• námskeiðahald fyrir börn, foreldra og starfsfólk skóla
Menntunar- og hæfniskröfur:
• kandidatspróf (cand. psych. gráða) í sálarfræði
• reynsla af ráðgjafastörfum og starfi með börnum æskileg
• reynsla af námskeiðahaldi æskileg
• færni til að tjá sig í ræðu og riti
• góðir skipulagshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri,
sími 480-1900, 852-3918. Áhugasamir geta sent umsóknir á
skolathjonusta@arborg.is eða í pósti merktum fræðslusviði
Árborgar v/sálfræðings, Austurvegi 2, 800 Selfoss.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2016 .
Starfið hæfir jafnt konum sem körlum. Laun fara eftir kjarasamn-
ingi Launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Laus störf við Grunnskóla
Hornafjarðar veturinn 2016-2017
• Staða smíðakennara
• Staða íþróttakennara
• Staða heimilisfræðikennara
• Staða námsráðgjafa 50% starf, hægt að fylla upp í
100 % stöðu með kennslu.
• Staða tónmenntakennara 30-50% staða.
(Ath. í Tónskóla Hornafjarðar er einnig verið að auglýsa
eftir kennara og hægt væri að fá fulla stöðu með því
að blanda þessum tveimur stöðum saman. Frekari
upplýsingar má fá í Tónskólanum tonskoli@hornafjordur.
is, s. 470 8460).
Í Grunnskóla Hornafjarðar eru tæplega 250 nemendur í
tveimur aðskildum húsum. Í öðru húsinu er í 1. – 6. bekkur
en 7. – 10. bekkur í hinu. Í skólanum er áhersla á list- og
verkgreinakennslu um leið og unnið er að bættum árangri í
bóklegum greinum. Unnið er eftir hugmyndarfræði upp-
eldis til ábyrgðar í skólanum og skólinn er bæði græn-
fánaskóli og heilsueflandi skóli. Í Grunnskóla Hornafjarðar
er góður starfsandi og skólinn er vel búinn. Sveitarfélagið
er vel statt og á Höfn er blómlegt mannlíf.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi KÍ og LS.
Umsóknum um stöður skal skilað skriflega til skólastjóra
fyrir 16. maí n.k. með upplýsingum um menntun, réttindi,
starfsreynslu og meðmælendur.
Nánari upplýsingar veita skólastjórnendurnir Þórgunnur
Torfadóttir thorgunnur@hornafjordur.is og Eygló Illugadótt-
ir eyglo@hornafjordur.is. Sími 470 8400
Menntunar-
og hæfniskröfur
• Kennsluréttindi og kennslureynsla á
grunnskólastigi skilyrði
• Framhaldsmenntun
kopavogur.is
Kópavogsbær
Áhugaverð störf hjá Kópavogsbæ
Byggingarfulltrúi
Byggingarfulltrúi hefur umsjón og eftirlit með mannvirkjagerð í Kópavogi. Einnig annast hann útgáfu
byggingarleyfa. Hann sér eining um úttektir og útgáfu viðeigandi vottorða vegna byggingarframkvæmda á
bæjarlandi Kópavogs.
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2016.
Upplýsingar veitir Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri umhverfissviðs í síma 570-1500 eða í tölvupósti
steingr@kopavogur.is
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Einungis er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur. is
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í arkitektúr, byggingarfræði,
byggingarverk- eða tæknifræði
• Faggilding til þess að fara yfir hönnunargögn og annast úttekir
• Víðtæk og góð reynsla af byggingarmálum
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni
Helstu verkefni
• Umsjón og eftirlit með mannvirkjum í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
• Yfirferð teikninga og útgáfa byggingarleyfa
• Lokaúttektir mannvirkja
• Skráning fasteigna skv. lögum og reglugerðum
• Útreikningur gjalda skv. gjaldskrá um
gatnargerðar- og byggingarleyfisgjöld
Skráningarfulltrúi
Skráningarfulltrúi hefur umsjón með samskiptum og skráningu fasteigna í Þjóðskrá Íslands. Einnig er hann
tengiliður Kópavogs við fasteignaskrá og sér um úttekt og yfirferð verkteikninga.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. byggingarfræði, byggingarverkfræði eða byggingartæknifræði
• Reynsla í skráningu fasteigna og yfirferð viðeigandi
gagna æskileg
• Víðtæk og góð reynsla af byggingarmálum
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
• Góð þekkinga á helstu tölvukerfum sem viðkoma starfinu
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni
Helstu verkefni
• Samskipti og skráning fasteigna í Kópavogi
hjá Þjóðskrá
• Skráning fasteigna samkvæmt lögum og
reglugerðum
• Yfirferð og skráning eignaskiptayfirlýsinga og skráningataflna
• Skönnun teikninga, gagna og skráa
• Úttektir bygginga og skráninga
Verkefnastjóri landupplýsinga
Verkefnastjóri landupplýsinga annast viðhald og vörslu allra landfræðilegra gagna Kópavogsbæjar. Hann sér um
að uppfæra landfræðileg gögn í upplýsingakerfi og gerð mæli- og hæðarblaða. Auk þessa sér hann um rekstur
teiknistofu í samráði við deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Víðtæk og góð reynsla af hönnun
• Mjög góð þekking á Autocad og öðrum teikniforritum
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
• Góð þekkinga á helstu tölvukerfum sem viðkoma
starfinu
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og
skipulagshæfni
Helstu verkefni
• Umsjón með landupplýsingakerfi og skráningu gagna
• Skrá og varðveita hönnunargögn vegna gatna, veitna og mannvirkja
• Gerð mæli- og hæðarblaða
• Útgáfa korta
• Vinna að almennri hönnun á deildinni
• Eftirlit með framkvæmdum
Öflugt málningar og réttingarverkstæði fyrir bíla
vantar að bæta við bifreiðasmiðum eða vönum
mönnum í faginu, vinnuaðstaða mjög góð.
Umsóknir sendist á borgir47@gmail.com
Rúmlega 140 manns
starfa hjá HEKLU hf.
en félagið er leiðandi
fyrirtæki í innflutningi,
sölu og þjónustu við
nýjar og notaðar
bifreiðar.
Félagið er með umboð
fyrir Volkswagen, Audi,
Skoda og Mitsubishi
og annast þjónustu við
þessar tegundir.
Höfuðstöðvar HEKLU
eru við Laugaveg 170-
174 í Reykjavík.
HEKLA leitar að kraftmiklum og hæfileikaríkum
söluráðgjafa fyrir Audi á Íslandi. Spennandi og
krefjandi verkefni framundan.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist á jim@hekla.is eða fyllt út
á www.hekla.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí n.k.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ingi Magnússon sölustjóri í síma 590 5000.
Starfssvið
• Sala bifreiða
• Tilboðsgerð og eftirfylgni
• Viðhald viðskiptatengsla
• Þátttaka í áætlanagerð
Hæfniskröfur
• Brennandi áhugi á bílum, tækni og nýjungum
• Framúrskarandi söluhæfileikar
• Rík þjónustulund og frumkvæði
• Góð almenn tölvukunnátta
Söluráðgjafi Audi