Fréttablaðið - 07.12.2015, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 8 6 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 7 . d e s e M b e r 2 0 1 5
Í S L E N S K H Ö N N U N
O G R I T S N I L L D
Í Þ Á G U
F A T L A Ð R A B A R N A
O G U N G M E N N A
S K Y R G Á M U R
S T Y R K T A R F É L A G
L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A
Sölutímabil
5. – 19. desember
Sími
512 4900
landmark.is
Dansað var í kringum jólatré á Árbæjarsafni í Reykjavík um miðjan dag í gær og glöddu þar íslenskir jólasveinar ungviðið. Uppákoman er hluti af
jóladagskrá safnsins þar sem gestir geta rölt milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Fréttablaðið/Vilhelm
Fréttablaðið í dag
skoðun Guðmundur Andri um
kassastykki og hvað sé list. 12-13
sport Getur Jose Mourinho
bjargað starfinu sínu? 14
Menning Er meira fyrir sól og
hita en vetrarstemningu. 22-25
lÍfið Fimm ungar mæður blogga
um móðurhlutverkið. 28-30
plús 2 sérblöð
l fólk l fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Veður Fárviðri skellur á sunnan-
vert landið eftir klukkan þrjú í dag
og um kvöldmatarleyti má búast við
ofsaveðri eða fárviðri um land allt.
Spá Veðurstofunnar hljóðar upp á
mun verra veður en í síðustu viku.
Ragnar Guðmannsson, yfirmaður
stjórnstöðvar Landsnets, segir að
gangi spáin eftir séu auknar líkur á
rafmagns- og fjarskiptatruflunum á
Suðurlandi í dag. „Það verður auk-
inn viðbúnaður hjá okkur og við
erum að fara yfir og meta stöðuna.“
Veðurstofan varar við að snjó-
koma fylgi veðrinu og segir viðlíka
storma einungis ganga yfir á tíu til
tuttugu ára fresti.
Þorsteinn Jónsson, veðurfræðing-
ur hjá Veðurstofunni, segir næstu
daga hins vegar líta mjög vel út ef
undan er skilinn dagurinn í dag og
þriðjudagsmorgunn. „Það verður
þokkalegt, gott vetrarveður næstu
daga á eftir,“ segir hann. Áfram verði
þó kalt og engin hlýindi í vikunni.
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, ráðleggur fólki að vera
ekki á ferðinni í versta veðrinu og
segir alls ekki eiga að fara neitt nema
á vel búnum bílum. „Þetta snýst ekki
alltaf um það að vera á stórum bílum.
Oft er þetta hálka, og getur verið of
mikill vindur. Við sáum dæmi um
það í fyrra að mikill vindur hrein-
lega braut rúðurnar í bílunum og það
voru tugir bíla sem skemmdust. Þá
hjálpar manni ekki að vera á stórum
dekkjum,“ segir hún.
Þá segir Ólöf mikilvægt að vara
erlent ferðafólk við. „Ég myndi
vilja biðja fólk ef það kemst í færi
við ferðafólk að láta það vita. Það
eru ekki allir sem hlusta á íslenskar
fréttir og við þurfum að taka hönd-
um saman og láta fólk vita.“ – sg
Von á ofsaveðri sem
kemur á áratuga fresti
Veðurstofa Íslands spáir fárviðri í dag. Á morgun er búist við góðu vetrarveðri.
Slysavarnafélagið Landsbjörg biður fólk að vara erlenda ferðamenn við veðrinu.
Landsbjörg hefur á að
skipa um fjögur þúsund
sjálfboðaliðum sem kallaðir
verða út eftir þörfum.
»
alþingi Fjórir þingmenn minni-
hluta í utanríkismálanefnd Alþingis
leggja til nýja sátt um Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) með
innleiðingu „írska módelsins“.
Þingmennirnir rita Gunnari Braga
Sveinssyni utanríkisráðherra og
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, for-
manni utanríkismálanefndar, opið
bréf í Fréttablaðinu í dag.
„Írar hafa alla þróunarsamvinnu
innan utanríkisráðuneytisins – eins-
og Gunnar Bragi vill – en í sérstakri
stofnun,“ segir meðal annars í bréfi
þingmannanna og tekið er fram að
með nýjum lögum sem tóku gildi
um stjórnarráðið í júlí sé mögulegt
að færa öll verkefni inn í ráðuneytið
í sérstaka stofnun sem bera myndi
nafn ÞSSÍ. „Nýju lögin eru einsog
klæðskerasniðin fyrir sáttatillögu
okkar.“
Einnig taka þau fram að Gunn-
ar Bragi og Hanna Birna hafi nú
tækifæri til að leiða deilur um ÞSSÍ
til lykta án þess að slaka á óskum
stjórnarliða. – gló / sjá síðu 14
Þingmenn vilja
„írska módelið“
frakkland Allt útlit var fyrir stór-
sigur Þjóðfylkingarinnar, stjórnmála-
flokks Marine Le Pen, í fyrri umferð
héraðskosninga í Frakklandi þegar
Fréttablaðið fór í prentun í gær-
kvöldi. Úrslit lágu þó ekki fyrir. Þá
virtist gengi Repúblikanaflokks Nico-
las Sarkozy sömuleiðis ágætt meðan
Sósíalistaflokkur François Hollande
Frakklandsforseta tapaði fjölda sæta.
Útgönguspár lágu fyrir um klukk-
an sjö í gærkvöldi. Þjóðfylkingin var
með 30 prósenta fylgi, repúblikanar
með 27 prósent og sósíalistar 22.
Þetta er stórsigur fyrir Þjóð-
fylkinguna sem áður stýrði ekki
neinum héruðum og afhroð fyrir
sósíalista sem stjórnuðu 21 af 22
héruðum.
Um er að ræða fyrri umferð
kosninga. Seinni umferðin fer fram
þann 13. desember. Þá er allt útlit
fyrir að í seinni umferð muni Repú-
blikanaflokkurinn og Þjóðfylkingin
heyja einvígi þar sem sósíalistar eru
víðast hvar dottnir út og hvetja nú
kjósendur sína að styðja frekar
repúblikana. – srs
Stefnir í stórsigur þjóðernissinna í Frakklandi