Fréttablaðið - 07.12.2015, Síða 10
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
Til hamingju, Þóra, með
verðskuldaða tilnefningu til
Fjöruverðlaunanna, bókmennta-
verðlauna kvenna
„Stílhrein og nístandi sár.“
V i g d í s G r í m s d ó t t i r
„Bók sem breytir manni til hins betra.“
G u ð r ú n E v a M í n e r v u d ó t t i r
„Mögnuð lesning og merkilega
falleg, þrátt fyrir allan óhugnaðinn.“
S t e f á n B a l d u r s s o n
„Mikil gjöf þessi bók!“
V i g d í s G r í m s d ó t t i r
„Afar vel skrifuð, ótrúleg
og erfið saga …“
Þ ó r u n n L á r u s d ó t t i r
f
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt
bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn,
matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu
skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis.
GEFÐU GJÖF SEM GEFUR
www.gjofsemgefur.is
GEFÐU
GEIT
P
IP
A
R
\T
B
W
A
• S
ÍA
• 102985
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt
bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn,
matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu
skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis.
GEFÐU GJÖF SEM GEFUR
www.gjofsemgefur.is
GEFÐU
GEIT
P
IP
A
R
\T
B
W
A
• S
ÍA
• 102985
Hryðjuverk Sigmar Gabriel, vara
kanslari Þýskalands, hefur kallað eftir
því að SádiArabía hætti að fjármagna
Wahhabimoskur víða um heim. „Í
Þýskalandi koma margir öfgamenn,
sem eru jafnframt taldir hættulegir,
úr þessum samfélögum,“ sagði hann í
samtali við Bild am Sonntag.
Gabriel sagði að ekki mætti gera
SádiArabíu fráhverfa þar sem hún
væri lykilríki við að binda enda á borg
arastyrjöldina í Sýrlandi. „Á sama tíma
verðum við að gera Sádum ljóst að við
lítum ekki lengur undan.“
Frakkar hafa lokað þremur moskum
í landinu frá því að hryðjuverkaárás
irnar voru gerðar í París 13. nóvember.
Í krafti neyðarlaganna sem sett voru
í Frakklandi var moskunum lokað,
níu handteknir og 22 settir í farbann.
Þá hefur lögreglan gert húsleit á 2.235
heimilum, hneppt 232 í gæsluvarð
hald og lagt hald á 334 vopn, þar af 34
þungavopn.
Einn hæst setti ímam Frakklands,
Hassan El Alaoui, sagði í samtali við
Al Jazeera í síðustu viku að hann tryði
því að allt að 160 moskum yrði lokað.
„Af því að þær starfa án viðunandi
leyfa og breiða út hatur,“ sagði hann.
„Orðræða af þessu tagi ætti ekki einu
sinni að vera leyfð í íslömsku ríki, hvað
þá í landi á borð við Frakkland.“
Þá var gerð stunguárás í neðan
jarðarlestarstöð í London í gær. Tveir
særðust. Lögregla rannsakar málið sem
hryðjuverk. Árásarmaðurinn, sem var
handtekinn, mun hafa kallað „fyrir
Sýrland“. stefanrafn@frettabladid.is
Moskur undir smásjá
Varakanslari Þýsklands krefst þess að Sádi-Arabar hætti að fjármagna Wahhabi-
moskur. Ímam í Frakklandi telur að allt að 160 moskum gæti verið lokað.
Michel Cadot lögreglustjóri og Christophe Descoms, yfirmaður fíkniefnadeildar,
skoða vopn sem hald var lagt á í París fyrir helgi. NorDiCPhotos/AFP
#YouAintNoMuslimBruv
Vitni að stunguárásinni í Leytonstone heyrist kalla: „Þú ert enginn
múslimi, bróðir“ (You ain’t no muslim bruv). Í kjölfarið fóru Bretar
að nýta myllumerkið #YouAintNoMuslimBruv til að lýsa vanþóknun
sinni á árásinni og skilja öfgamenn frá múslimum. Myllumerkið var það allra
vinsælasta á Bretlandi í gær en á Twitter mátti sjá fólk skilja eftir skilaboð á borð
við: „Til vitnisins sem kallaði #YouAintNoMuslimBruv, hann talaði fyrir hönd
milljóna Breta og kom skilaboðunum á framfæri á andartaki,“ „#YouAintNo-
MuslimBruv er fullkomið – ekta, innihaldsríkt og gerir lítið úr málstað hryðju-
verkamanna,“ og „Undir öfgafullum og sorglegum kringumstæðum, vonarglæta
skynseminnar. Myllumerki sem talar fyrir heila borg.“
7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N u d A G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð