Fréttablaðið - 07.12.2015, Side 18
Fólk| heimili
Fólk er kynningarblað sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Útsendingar jólaútvarps Grunnskólans í Borgarnesi hefjast í dag, mánudag,
og standa yfir fram á föstudags-
kvöld. FM Óðal, eins og stöðin
heitir, var lengi vel starfrækt af
grunnskólanum og félagsmið-
stöðinni Óðali en er alfarið í
höndum skólans í ár.
Jólaútvarpið er mjög metn-
aðarfullt verkefni að sögn Huldu
Hrannar Sigurðardóttur, deildar-
stjóra í Grunnskólanum í Borgar-
nesi, og allir nemendur skólans
koma að því. „Það var Indriði
Jósafatsson, þáverandi íþrótta-
og æskulýðsfulltrúi, sem fékk þá
snilldarhugmynd að setja á fót
jólaútvarp fyrir jólin 1992. Þá
var sent út í tvo daga með tölu-
vert styttri dagskrá en nú og
allt sent út í beinni útsendingu.
Í dag eru þættir yngsta stigs og
miðstigs hljóðritaðir en nem-
endur í 8., 9. og 10. bekk eru
með þætti í beinni útsendingu.
Lykilmaður í upptökum og undir-
búningi er Sigurþór Kristjáns-
son, Sissi, sem var starfsmaður
félagsmiðstöðvarinnar í mörg
ár. Hann þróaði í samvinnu við
nemendur jólaútvarpið eins og
það er í dag.“ Nemendur í 8.-10.
bekk Grunnskóla Borgarfjarðar
og Laugagerðisskóla hafa einn-
ig verið með þætti undanfarin
ár auk þess sem nemendur í
Menntaskóla Borgarfjarðar hafa
tekið þátt.
Ýmislegt gerist
Dagskráin hefst kl. 10 í dag,
mánudag, með ávarpi útvarps-
stjóra, Snæþórs Bjarka Jóns-
sonar, sem er einnig formaður
nemendafélagsins. Síðan tekur
við þétt og góð dagskrá að sögn
Huldu Hrannar sem samanstend-
ur meðal annars af hljóðrituðum
þáttum, fréttum, viðtölum og
tónlist. „Við endum svo kvöldin
með þáttum sem höfða sérstak-
lega til unglinga. Umfangsmesti
þáttur vikunnar er á föstudag en
þá verða pallborðsumræður þar
sem sveitarstjórnarmenn mæta
í hús auk annarra áberandi ein-
staklinga í mannlífi Borgarbyggð-
ar. Í þessum þætti hefur ýmislegt
gerst undanfarin ár og margvís-
leg mál hafa verið gerð upp.“
Upptökur hjá yngri bekkjum
og auglýsingar taka alls átta
skóladaga en þá daga og í út-
sendingarvikunni eru tæknimenn
að störfum. „Þeir eru allir nem-
endur í 9. og 10. bekk. Þá eru
ótaldir þeir skóladagar sem fara í
að semja handrit og auglýsingar,
auk auglýsinga-
gerðar og upp-
taka þátta.
Mikil vinna
er lögð í
handritin
en þau
gilda sem
hluti af
einkunn í
íslensku.“
mjög
góð
hlustun
FM Óðal 101,3
hefur góðan hlustendahóp
en samkvæmt hlustendakönnun
sem gerð var árið 2012 hlustuðu
90% íbúa í Borgarnesi á þætti
í jólaútvarpinu. Undanfarin ár
hefur stöðin einnig verið send
út á netinu. „Hlustendahópurinn
er mjög breiður. Það má segja að
það sé hlustað í nánast hverju
fyrirtæki í Borgarnesi og á flest-
um heimilum. Foreldrar, krakkar,
ömmur og afar eru í hlustenda-
hópnum og einnig brottflutt-
ir Borgnesingar sem hlusta
gegnum netið. Í raun má segja að
FM Óðal berist um heim allan og
það er gaman að fá símtöl í stúd-
íóið frá hlustendum.“
Vinsælar auglÝsingar
Stöðin býr einnig við þá sér-
stöðu að hlustendur vilja ekki
missa af einum einasta auglýs-
ingapakka. „Þeir bíða
í raun í ofvæni eftir
auglýsingunum sem
þykja sérlega
skemmtilegar
en þær eru
samdar, leiknar
og unnar af
nemendum í 8.,
9. og 10. bekk.“
Jólaútvarpið
í ár er sent út
á tíðninni 101,3
dagana 7.- 11.
desember frá kl.
10-23 alla daga.
Netútsendingar
má nálgast á www.grunnborg.
is. Dagskránni er dreift í öll hús
í Borgarnesi auk þess sem hún
er birt í héraðsfréttablöðunum
Skessuhorni og Íbúanum og á
www.grunnborg.is. Jólaútvarpið
er einnig á Facebook undir FM
Óðal 101,3.
n starri@365.is
hlustað á
hVerju heimili
jólaÚtVarP Grunnskólanemar í Borgarnesi hafa staðið fyrir jólaútvarpi
síðan árið 1992. Jólastöðin nýtur mikilla vinsælda.
Fjör Í beinni Nemendur í 8., 9. og 10. bekk eru með þætti í beinni útsendingu.
aðalFólkið Hópurinn sem ber hitann og þungann af undirbúningi og framkvæmd jólaútvarpsins. Efri röð f.v.: Bára, Íris, Snæþór,
formaður og útvarpsstjóri, og Alexander. Neðri röð f.v.: Hrafnhildur, Axel, Hjálmar og Hlynur.
Mest seldu
ofnar á
Norðurlöndum
10 ára ábyrgð
Hjá okkur eru ofnar hitamál
LÁGHITA
MIÐSTÖÐVAROFNAR
Gæði fara aldrei úr tísku
Við kynnum nýja heimasíðu, www.isleifur.is
Dragháls 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
Fax 4 12 12 01