Fréttablaðið - 07.12.2015, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Hver er þinn jólailmur?
ILMUR DESEMBER
MÁNAÐAR
„Christmas Garland“
greniilmurinn fæst í nokkrum
stærðum og útfærslum.
Verðdæmi: Millistórt
kerti í glerkrukku
Fullt verð: 4.290 kr.
Aðeins 3.218 kr.
Dormaverð aðeins 8.990 kr.
Sængurföt frá MistralHome
100% bómullarsatín
þrír litir. 300 tc.
Jólatilboð 20.900 kr.
O&D dúnsæng
· 90% dúnn
· 10% smáfiður
Fullt verð: 25.900 kr.
verð
Frábært
og gæði
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
MEIRA Á
dorma.is
Aðeins 19.900 kr.
TVENNUTILBOÐ
dúnsæng + koddi
O&D dúnsæng – Stóri björn
· 50% dúnn og 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
+ Dúnkoddi – Stóri björn
Fullt verð: 5.900 kr.
Fullt verð samtals:
25.800 kr.
Hafðu það
notalegt um jólin
Komdu í Dorma
JÓLA-
TILBOÐ
25%
AFSLÁTTUR
Ilmur mánaðarins Okkur langar að taka þessa glans-mynd aðeins út úr myndinni,“ segir Sólrún Lilja Diego, ein þeirra
fimm ungu mæðra sem hrintu
af stað vefsíðunni mamie.is, þar
sem þær leggja markvisst upp úr
að gera ungum mæðrum kleift að
finna svör við spurningum sem
kunna að vakna. Auk Sólrúnar
eru það Lena Björk Dam, Lísa Rún
Kjartansdóttir, Júlíana Birgisdóttir
og Saga Ýr Kjartansdóttir sem sjá
um að upplýsa ungar mæður um
allt milli himins og jarðar.
„Þetta byrjaði í raun þannig að
Lena heyrði í mér, en hún var í þeim
sporum að hún var ófrísk, en eng-
inn annar í kringum hana var á svip-
uðum stað svo hana sárvantaði upp-
lýsingar,“ útskýrir Sólrún og heldur
áfram: „Í fyrstu leist mér ekkert á
þetta en svo fór ég að spá aðeins í
þessu, enda vel þeginn félagsskapur
þegar maður er í fæðingarorlofi.“
Sem kom á daginn, því Sólrún
hefur verið ansi iðin við að nýta sér
tímann þegar dóttir hennar, Maísól,
sefur. „Ég ætlaði eiginlega ekkert að
skrifa en hef svo eiginlega endað á
að skrifa mest,“ segir hún og skellir
upp úr.
Segir Sólrún viðtökurnar vera
með ólíkindum og að þær stöllur
hefðu engan veginn gert sér í hugar-
lund hversu mikið erindi síðan átti í
raun við ungar mæður. „Við fengum
yfir þrettán hundruð heimsóknir á
einum sólarhring, en við settum síð-
una í loftið seinni part laugardags
og varð algjör sprenging,“ bendir
hún á. Greinilegt er því að eitthvað
vantar upp á í upplýsingagjöf til
ungra frumbyrja ef marka má þær
spurningar og aðsókn sem Mamie
hefur fengið. „Flestar ungar mæður
eru vissulega í svokölluðum bumbu-
hópum, en ég verð að segja að þær
upplýsingar sem þar koma fram eru
ekkert alltaf þær sem maður er að
leita eftir, og svörin oft ansi misjöfn,
sem þýðir að erfitt getur verið að
taka mark á þeim,“ bendir Sólrún á.
„Ég fékk til að mynda heilmikið
af fyrirspurnum um hvernig ég und-
irbjó Maísól út í vagn að sofa, þar
sem þó nokkrar mæður vissu ekkert
um hvernig best væri að haga því í
kólnandi veðri. Eitthvað sem eflaust
einhverjum finnst auðsvarað, en
það er ekki svo sjálfsögð vitn-
eskja fyrir aðrar.“ Sólrún segir
Snapchat-reikning Mamie
sömuleiðis hafa notið mikilla
vinsælda, og þar séu þær að fá
fjölmargar fyrirspurnir úr öllum
áttum, og það auðveldi ef til vill
aðgengi ungu mæðranna að hinum
ýmsu upplýsingum. „Ég viðurkenni
fúslega að mér þótti frekar skrýtið
að byrja að taka af okkur mæðgum
snapp alla daga, enda hafði ég fram
að því ekki verið mikill snappari,“
segir Sólrún og bætir við að þó hafi
það komist furðu fljótt upp í vana
og nú snappi hún eins og vindur-
inn fyrir þá fimmtán hundruð sem
þegar hafa stokkið á vagninn. „Ætli
ég hafi ekki fundið mest fyrir þessu
þegar ég fór með vinkonu minni
í Smáralind og hún fór að spyrja
hvort ég væri ekkert að hugsa um
hver þarna hefði verið að horfa á
snappið frá mér þann morguninn,“
skýtur hún að og skellihlær.
Sólrún segir stelpurnar gríðar-
lega ólíkar, en hópurinn þekktist
svo gott sem ekkert áður en sam-
starf hófst. Eiga þær í raun býsna
fátt sameiginlegt annað en að vera
nýbakaðar mæður sem allar hafi
verið í námi áður en afsprengin
létu til sín taka, en þó geta þær sam-
mælst um að glansinn sem sjáist svo
iðulega á Facebook og Instagram
megi alveg missa sín. „Við erum að
sýna raunveruleg barnaherbergi og
koma með alvöru sniðugar hug-
myndir. Þau eiga ekkert að vera
æðislega geggjuð og eins og klippt
út úr tískublöðum. Við erum ekki
að einblína á það sem er flottast og
fínast, það er nóg af síðum sem gera
það.“ gudrun@frettabladid.is
Afmá glansmyndir
Instagram og Facebook
af móðurhlutverkinu
Fimm ungar mæður, sem þekktust nánast ekki neitt, tóku höndum
saman og stofnuðu heimasíðu sem er til þess fallin að aðstoða frum-
byrjur að fóta sig á sleipu svelli móðurhlutverksins.
Hér sjást frumkvöðlarnir saman með framlengingarnar sínar, sem tengja þær
saman á þann hátt sem raun ber vitni.
Ég vIðurkennI
FúslegA Að mÉr þóttI
FrekAr skrýtIð Að byrjA
Að tAkA AF okkur mæðgum
snApp AllA dAgA, endA hAFðI
Ég FrAm Að því ekkI verIð
mIkIll snAppArI.
Sólrún Lilja Diego
7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r30 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð