Vesturbæjarblaðið - jul. 2015, Síða 15

Vesturbæjarblaðið - jul. 2015, Síða 15
15VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2015 KR-síÐan GETRaUnanÚMER KR ER 107 KR vann FH í stórleik fyrstu deildarinnar og fór á toppinn. KR komst í efsta sæti úrvals- deildar karla í knattspyrnu með sigri á FH 3-1 í Kaplakrika í tólftu umferð deildarinnar á dögunum. KR er efst í deildinni með 26 stig en FH í öðru sætinu með 24 stig. FH-ingar voru mun sterkari í fyrri hálfleiknum og komust yfir með marki frá Emil Pálssyni eftir rétt rúmar tíu mínútur. Hólmbert Aron Friðbjörgsson jafnaði fyrir KR með marki úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleiknum og tveimur mínútum síðar kom Gary Martin gestunum í 2-1. Óskar Örn Hauksson bætti svo við þriðja markinu áður en yfir lauk og 3-1 sigur KR niðurstaðan. KR á toppnum Það var oft heitt í kolunum í leiknum. heitur matur í hádeginu og á kvöldin taktu meÐ borÐaÐu á staÐnum eða Alvöru matur eða Dagbjört Dögg Karlsdóttir úr KR var með í U16 ára landsliðinu í körfubolta sem hélt til keppni í Andorra á dögunum. U16 ára landslið kvenna fór til Andorra á sunnudag til að keppa í Evrópukeppni í C-deild. KR-ingar eiga því sinn fulltrúa í liðinu en fyrstu leikir Íslands voru 20. og 21. júlí á móti Möltu og Andorra. Dagbjört Dögg í U 16 Dagbjört Dögg Karlsdóttir. Pavel Ermolinskij, Darri Hilmarsson og Brynjar Þór Björnsson hafa skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Íslands- og deildarmeistara KR í körfuknattleik. Þá er Snorri Hrafnkelsson búinn að kvitta undir samning sinn við félagið en hann kemur til KR úr röðum Njarðvíkinga. Böðvar Guðjónsson varafor- maður KKD KR segir samningana vera fagnaðarefni því kjarni Íslandsmeistara KR undanfarinna tveggja ára sé saman til næstu tveggja ára og eflaust lengur því Helgi Már Magnússon er á sínu öðru ári á samningi við félagið. Mikil tilhlökkun er innan herbúða KR fyrir komandi tímabili og reikna má með að Mike Craion verði einnig með liðinu á næsta tímabili. Áfram saman í körfunni Sigurreifir KR-ingar í körfunni. KR vann flesta Íslandsmeistaratitla í borðten- nis allra félaga keppnistímabilið 2014-2015, 21 talsins. Næstir komu Víkingar með 18,5 titil. KR vann langflesta titla í unglingaflokki, 14,5 talsins, 4,5 í flokki fullorðinna og 2 í öðlingaflokki. Í fyrsta skipti í mörg ár vann KR flesta titla allra félaga í meistaraflokki, 3,5 af 7 titlum. Alls var keppt var um 49 Íslandsmeistaratitla 2014-2015. Flesta Íslandsmeistaratitla borðtennismanna vann Sigrún Ebba Tómasdóttir úr KR, 6 talsins. Pétur Gunnarsson úr KR, vann 4 titla, eins og Kol- finna Bergþóra Bjarnadóttir úr HK. Sigrún og Pétur unnu ferfalt í sínum unglingaflokki. Auk þess vann Sigrún sigur í tvíliðaleik kvenna og var í sigurliði KR í 1. deild kvenna. KR átti líka flesta keppendur allra félaga á borðtennismótum á keppnistímabilinu, 68 talsins. Næst komu Dímon og Víkingur með 43 keppendur, hvort félag. Myndina af Sigrúnu Ebbu tók Finnur Hrafn Jóns- son á EM unglinga 2013. KR vann flesta Íslandsmeistara- titla í borðtennis 2014-2015 Gólfdúkur skynsamleg, smekkleg og hagkvæm lausn -léttur í þrifum -au›veldur í lögn -glæsilegt úrval -fæst í 2, 3 og 4 m rúllum.FLOORING SYSTEMS hjarta heimilisins Eldhúsi› þægilegt andrúmsloft Svefnherbergi› alltaf jafn heimilislegt Stofan einfaldara ver›ur þa› ekki Forstofan hl‡tt og mjúkt undir fæti Ba›herbergi› SÍ‹UMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510 Heimilisdúkur, sígild lausn: Sérverslun me› gólfdúk og teppi www.kr.is

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.