Vesturbæjarblaðið - Aug 2015, Page 11
Unnur Valdís Kristjánsdóttir
ætlar að bjóða upp á Jóga
Nidra t íma í Jógastöðinni
Sólir í Örfirsey sem Sólveig
Þórarinsdóttir jógakennari og
viðskiptafræðingur starfrækir.
Jóga Nidra er forn jógaástundun
sem nýtur sívaxandi vinsælda í
hinum vestræna heimi og þá
helst sökum þess hversu djúp
og áhrifamikil slökunin er. Fólk
er almennt farið að gera sér
grein fyrir mikilvægi nærandi
slökunar í alhliða heilsueflingu.
„Ég hef fundið fyrir því að fólk
sækir í Jóga Nidra til þess að
losa um spennu og streitu sem
er vaxandi fylgifiskur hraða
nútímasamfélagsins. Nidra þýðir
svefn en ólíkt svefni er Jóga
Nidra fyrst og fremst meðvituð
djúpslökun sem hjálpar okkur
að losa um spennu og hindranir
hugans sem geta dregið úr okkur
í daglegu lífi“, segir Unnur í spjalli
við Vesturbæjarblaðið.
U n n u r h e f u r l e n g i h a f t
áhuga á jógavísindunum og
að hennar mati er jógaiðkun ein
áhrifaríkasta leiðin til að næra
sig og styrkja. Jógað losar um
stíflur í líkama og huga, örvar
framleiðslu á góðu boðefnunum
og eykur jafnvægi. „Streita er
undirliggjandi orsakaþáttur í
mörgum sjúkdómum, segir Unnur.
„Hún getur birst í mismunandi
myndum og er stundum svo
samofin tilverunni að við tökum
jafnvel ekki eftir henni fyrr en hún
er farin að valda vandamálum.
Þá er gott að geta farið inn á við
í nærandi djúpslökun til þess að
efla og styrkja tengslin við okkar
innri kjarna. Auk þess sem Jóga
Nidra losar um streitu felur hún
einnig í sér nærandi heilun og
getur bæði virkað verkjastillandi og
kvíðalosandi.
Slökunarmáttur vatnsins
er vel þekktur
Unnur Valdís starfar sem
vöruhönnuður. Hún hannaði
meðal annars flothettuna sem
notið hefur mikilla vinsælda í
sundlaugum landsins undanfarið
ár. Þess má geta að í samstarfi við
Systrasamlagið á Seltjarnarnesi
hafa verið haldin úti regluleg
samflot í sundlaug Seltjarnarness.
S a m f l o t e r u h u g s u ð s e m
slökunarstund í vatni, þar sem fólk
kemur saman til að njóta fljótandi
slökunar í þyngdarleysi vatnsins.
En hvernig kom hún til? „Flothettan
varð til út frá hugleiðingum mínum
um breyttar áherslur í heilsueflingu
og þeirri hugmynd að tíðarandinn
kalli á fleiri valmöguleika sem
miða að ró og slökun. Slökunar- og
endurnærandi máttur vatnsins er
vel þekkt staðreynd og rannsóknir
sýna að við það að sleppa
tökunum og leyfa sér að fljóta um
í þyngdarleysi á sér stað mjög
mögnuð og góð slökun. Núna eru
starfrækt Samflot í að minnsta kosti
sjö sundlaugum víðs vegar um
landið.“
Við tökum á mýktinni
Unnur kveðst geta lofað ljúfum
og nærandi Jóga Nidra tímum
í Sólum í haust og vetur. „Við
tökum þetta á mýktinni og látum
af öllum metnaði og kröfum.
Iðkunin fer fram að mestu í
liggjandi hvíldarstöðu, umvafin í
teppi og notalegheitum. Markmiðið
er að eiga djúpa og nærandi
slökunarstund. Eitthvað sem
heimurinn þarf meira af,“ segir
Unnur Valdís að lokum.
11VesturbæjarblaðiðÁGÚST 2015
AUGLÝSINGASÍMI
511 1188
Heimasíða:
www.gbballett.is
Netfang:
gbballett@simnet.is
Öll rúnstykki á
80 kr.stk
Bergstaðastræti 13 - 101 Reykjavík - Sími 551 3083 - www.bernhoftsbakari.is
Unnur Valdís býður Jóga
Nidra í Jógastöðinni Sólir
Unnur Valdís á floti með flothettuna sem hún hannaði.