Vesturbæjarblaðið - aug 2015, Qupperneq 12

Vesturbæjarblaðið - aug 2015, Qupperneq 12
12 Vesturbæjarblaðið ÁGÚST 2015 Dansskóli Birnu Björns að hefja vetrarstarfið Dansskóli Birnu Björns er að hef ja haust - og vetrarstarfið. Skólinn með vandað markvisst dansnám en skólinn hefur verið starfandi í 20 ár við góðan orðs t í r. Merki skólans er metnaður framkoma dansgleði og er markmiðið að þjálfunin skili góðum árangri og framförum frá ári til árs. Mikið er um að vera á dansárinu og voru nemendur og kennarar að koma frá London úr dansferð og munu kynna fyrir nemendum skólans alla þær nýjungar úr dansheiminum erlendis frá. Í sumar sýndu nemendur á 17. júní víðs vegar um bæinn, dönsuðu í Söngvaborg og einnig með Gunna og Felix. Kennarar skólans tóku þátt í Eurovision og sýningarhópur skólans tók að sér fjölmörg verkefni. Í vetur verður danskeppnin og dansfárið á sínum stað auk þess sem skólinn mun fá heimsfrægan gestakennara erlendis frá. Síðan eru þemadagar fram undan, jólavikan, nemen- dasýningar og margt fleira. Nýtt og spennandi Musical theatre verður með Birnu og Eurovisonstjörunni Maríu Ólafsdóttur byrjar í september og núna ætlar skólinn að bjóða upp á námskeið fyrir 2 til 3 ára og 4 til 5 ára þar sem kennt verður ballett og söngleik- jadansar undir leiðsögn ballett og jazzballettkennara. Gómsæti í göngufæri Geirsgata 1 • Sími 511 1888 Íbúasamtök Skerjafjarðar, Prýðifélagið Skjöldur stóðu fyrir veglegri hverfishátíð á dögunum en um árlegan viðburð er að ræða. Mikið var um að vera þennan dag í hverfinu eins og jafnan. Hátíðin hófst á sögugöngu með Þór Magnússyni fyrrverandi þjóðminjaverði og kassabílarallý fyrir börnin en mikill undirbúningur er hjá börnunum fyrir það og er byrjað snemma sumars á að gera kassabílana og prufukeyra þá fyrir rallýið. Börnin skemmtu sér svo í leik og fótboltakeppni við foreldra og síðan voru grillaðar pylsur sem börnin renndu niður með bestu lyst. Um kvöldið var svo skemmtun þar sem Sigvaldi Kaldalóns stýrði fjöldasöng við góðar undirtektir íbúa. Hverfishátíð í Skerjafirði Á þessari mynd má m.a. sjá; Vilhjálm Andra Kjartansson, Stefni Kr ist jánsson, Brynju Halldórsdóttir, Hebu Helgadóttur og Kristján Ívar Ólafsson. Önnumst alla þætti þjónustunnar með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Útfarar- og lögfræði- þjónusta Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn Hugrún Jónsdóttir útfararstjóri Rósa Kristjánsdóttir útfararstjóri Elín Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Snævar Jón Andrésson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Katla Þorsteinsdóttir lögfræðiþjónusta Gestur Hreinsson útfararþjónusta Jón G. Bjarnason útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Sigríður Ragna Sigurðardóttir, Hólmfríður Gunnarsdóttir, Efimía Guðmundsdóttir og Sigvaldi Kaldalóns sem stýrði fjöldasöng taka lagið. Þór Magnússon fyrrum þjóðminjavörður fór fyrir sögugöngu og fræddi íbúa um sögu Skerjafjarðar. Fótboltinn var ekki langt undan á Skerjafjarðar- deginum. Nesstofa - Hús og saga - Ný sýning í Nesstofu sem fjallar um húsið og landlæknisembættið sem stofnað var árið 1760. Skemmtileg verkefni í boði fyrir fjölskyldur og frístundahópa. Opið alla daga nema mánudaga frá 13. júní - 31. ágúst kl. 13-17, ókeypis aðgangur. Nesstofa er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Nánari upplýsingar: í síma 595 9100 eða 530 2200 www.thjodminjasafn.is www.borgarblod.is

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.