Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 14
14 6. desember 2019FRÉTTIR  Suðurnes  Reykjavík  Suðurnes Sími 845-0900 • cargoflutningar@gmail.com • Finndu okkur á facebook Tvisvar á dag! milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðis cargoflutningar.is Flutningaþjónusta  Suðurnes  Reykjavík  Suðurnes Sími 845-0900 • cargoflutningar@gmail.com • Finndu okkur á facebook Tvisvar á dag! milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðis cargoflutningar.is Flutningaþjónusta Sigmundur Davíð bæði skúrkur og hetja n Val á manni og skúrki ársins í fullum gangi n Þúsundir lesenda sendu inn tilnefningar V al DV á manni og skúrki ársins er í fullum gangi en fyrir stuttu kallaði ritstjórn DV eftir tilnefningum frá lesendum í báða flokka. Það stóð ekki á viðbrögðunum og telja tilnefningarnar nokkur þúsund. Nú hefur ritstjórn DV tekið saman þá einstaklinga sem fengu flestar tilnefningar í hvorum flokki fyrir sig og kennir þar ýmissa grasa. Alþingismaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er til dæmis á báðum listum og því umdeild persóna í þjóðlífinu. Stjórnmálamenn nánast eiga lista yfir tilnefningar til skúrk ársins á meðan listinn yfir tilnefningar til manns ársins er ívið fjölbreyttari. Þá litar Samherjamálið báða lista. Hægt er að kjósa á milli átta einstaklinga í hvorum flokki fyrir sig á vef DV. Kosning hefst í dag, föstudaginn 6. nóvember, og stendur yfir í viku. Þá verður farið yfir atkvæðin og í ljós kemur hverjir hljóta þessar nafnbætur. Bjartmar Leósson, stofnandi hópsins Hjóladót. „Keyrir um bæinn og finnur stolin hjól, heldur út fb síðunni hjól, tapað fundið stolið, er búinn að finna mörg hjól fyrir fólk, eitthvað sem maður hefði haldið að lögreglan ætti að vera að vinna í.“ „Bjartmar hefur bjargað hjólasamfélaginu á Íslandi.“ Erna Ýr Öldudóttir, blaðakona. „Hún stendur með hinu sjálfsagða (frelsinu til tjáningar) í ríki sem er að drukkna í sinni eigin vinstri mennsku, gagnrýnin hugsun Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja (tímabundið í leyfi) „Fyrir að arðræna eina fátækustu þjóð veraldar eftir að hafa rænt Íslendinga og sölsað undir sig 1/7 fiskveiðikvóta með svikum og prettum, … það var ekki nóg að Samherli fengi u.þ.b 2.000 tonna þorskígildiskvóta frítt, svokallaðan skipstjórakvóta, heldur þá fyrst byrjaði ballið með Sjálfstæðisflokkinn sem tryggingu á bak við sig, ráherra og þingmenn.“ Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. „Fyrir að vera innvinklaður í öll helstu spillingarmál Íslands til margra ára.“ „Fyrir illa meðferð á öldruðum og öryrkjum.“ Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. „Hann svíkur íbúa og börnin með lokun skóla.“ Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. „Vanhæfni til að sjá eða vilja sjá spillingu.“ „Fyrir að sitja sem fastast í stól þegar hann í raun og veru ætti að segja af sér.“ Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. „Fyrir það að standa ekki við gefin loforð.“ „Hún reyndist ekki vera traustsins verð.“ Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. „Honum er alveg sama um íbúa borgarinnar fyrir ofan Ártúnsbrekku.“ „Fyrir að helluleggja torgið fyrir framan húsið sitt fyrir hundruð milljóna – og komast upp með það. Fyrir að loka eina grunnskólanum í Korpuhverfi.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. „Skúrkur og lygari af guðs náð, samanber Klaustursmálið.“ „Mesti loddari, lýðskrumari, tækifærissinni stjórnmálanna frá upphafi. Skrópaði 80% af þingtíma. Hann skammast sín ekki fyrir Klaustursmálið, heldur kennir eins og ævinlega öðrum um ófarir sínar. Óheiðarleiki (Wintris o.fl.) og siðblinda af hæstu gráðu. Minnir helst á Donald Trump. Hættulegur samfélaginu.“ Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. „Svívirðileg framkoma við vinnandi fólk – og það rétt fyrir jól. Hann ætti að skammast sín!“ Tilnefningar árið 2019 Maður ársins: Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Tilnefningar árið 2019 Skúrkur ársins: virðist fordæmd og hötuð hérna.“ „Stóð sig eins og hetja í herfilegum Kastljósþætti, þar sem henni og Magnúsi var kastað í ljónagryfju heimsku og sjálfsþótta.“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. „Það þarf ekki að rökstyðja.“ „Frábær maður og góður forseti.“ Helgi Seljan, fréttamaður. „Fyrir að þora að koma upp um Samherja og aðra elítu – ætli sonur Máa hringi ekki í hann og hóti honum eins og fv. Seðlabankastjóra.“ „Fyrir vandaða umfjöllun sem leiddi til afhjúpunar meinsemdar í viðskiptaháttum.“ Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari. „Maður sem er koma með sannleikann upp á yfirborðið. Mörg önnur spillingarmál koma upp í kjölfarið.“ „Það þarf geysimikinn kjark til að vaða gegn svona miklu veldi sem Samherji er og stjórnendur þess. Orð Jóhannesar um að hann muni eiga erfitt með að fá vinnu eftir þetta eru rétt.“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. „Heiðarlegur verkalýðsforingi.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. „Hann er eini stjórnmálamaðurinn sem hugsar um íslenska framleiðslu.“ „Stendur allt af sér. Pólitískur afreksmaður.“ Hildur Guðnadóttir, tónskáld. „Hefur náð einum besta árangri Íslendinga á erlendri grundu og er vel að titlinum komin.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.