Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 8
8 UMRÆÐA Sandkorn 6. desember 2019 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing Suðurlandsbraut 14 2. hæð FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Kerfið sem gerir menn að goðum E f ég segði upp vinnunni minni í dag væri ég bund­ in ráðningarsamningi. Hann kveður á um þriggja mánaða uppsagnarfrest. Ef vinnuveitandinn minn færi fram á að ég legði strax niður störf fengi ég þessa þrjá mánuði greidda. Síðan tæki við erfið atvinnuleit og hugsanlega skráning á atvinnu­ leysisbætur í framhaldinu, alla­ vega miðað við núverandi ástand á vinnumarkaði. Ofan á hvað það er glatað að missa vinnuna bætast við fjárhagsáhyggjur, óvissa, óör­ yggi og depurð. Sært stolt. Sjálfs­ efi. Andlegt þrot í margar vikur, sem bitnar á einkalífinu. Nokkurn veginn svona er það svona pöpulinn að missa vinnuna, eins og fjölmargir hafa þurft að upplifa síðustu mánuði. Mörg hundruð manns hefur verið sagt upp undanfarið og fjölmargir eru enn án vinnu. Ástandið á vinnumarkaði er heldur ekki lík­ legt til að lagast á næstunni og búa því margir við það ástand að hafa ekki hugmynd um hvenær þeir komast aftur út á vinnu­ markaðinn og ná að sjá fjöl­ skyldu sinni farborða. Svo eru það þeir sem eru á sérdíl. „Special prize for you my friend,“ eins og braskararnir segja þegar þeir reyna að selja grandalausum, sólar­ þyrstum Íslendingum alls konar drasl sem engan í veröldinni vantar. Menn eins og ríkislögreglustjóri sem virðist vera rót alls kyns deilna og sundrungar innan lög­ reglunnar. Menn sem taka um­ deildar ákvarðanir en þurfa aldrei að svara fyrir neitt. Menn sem eru bendlaðir, trekk í trekk, við alvar­ leg mál en þurfa enga ábyrgð að axla. Þeir, af öllum, fá sérdílinn. Þeir fá að hætta í sínu starfi með reisn og fá fína ráðgjafa­ stöðu í þrjá mánuði. Þeir halda óskertum laun­ um eftir starfslok í tvö ár. Þeir fá fjöru­ tíu milljónir fyrir að sitja heima að drekka kaffi, spila golf, leika við barnabörnin, kaupa í matinn. Þeir þurfa ekki að skrá sig á atvinnu­ leysisbætur. Þeir þurfa ekki að lifa í óöryggi og óvissu. Þeir þurfa engar áhyggjur af fjárhagnum að hafa. Ef einhver efaðist einhvern tímann um að stéttaskipting væri á Íslandi, að hér byggju þau og við, þá kristallast það í þess­ um galna starfslokasamningi við mann sem skilur heilt embætti eftir í rjúkandi rúst, að svo virðist. Og af hverju gerist svona lagað? Hvernig er hægt að réttlæta þetta? Jú, út af því að hér á Íslandi erum við með úrelt embættismanna­ kerfi sem býður upp á spillingu og frændhygli. Kerfi sem gerir emb­ ættismenn að goðum sem eru ósnertanleg. Kerfi sem tryggir að það þarf stjarnfræðilega alvar­ lega kvörtun, kæru eða klögun til að koma þessum mönnum úr embætti að það jaðrar við að vera sturlun. Þess vegna sitja þeir sem fastast. Og fá svo feitan starfsloka­ samning. Sem við, pöpullinn, þurfum að borga. n Spurning vikunnar Hver er besta jólamyndin? „Ég horfi alltaf á Polar Express til að koma mér í jólaskapið, þótt Tom Hanks sé pínu „creepy“ svona „animated“.“ Eyja Sigríður Gunnlaugsdótt- ir, nemi og skemmtikraftur. „Ég er meira í bókunum yfir jólin, en þegar ég horfi á mynd verður það Home Alone 1.“ Hrói Hróbjartur Höskuldsson, nemi. „Ég verð að segja Elf með Will Ferrel, ég ligg í kasti yfir henni hver einustu jól.“ Hali Hallgrímur Þorsteins- son, athafnamaður. „Það hafa ekki liðið jól þar sem ég hef ekki horft á How the Grinch Stole Christmas, sem á svo sem vel við þar sem ég er svoddan Grinch sjálf .“ Sara, nemi og handavinnukona. Jæja RÚV, hvað er að frétta? Ríkisútvarpið, ríkisrekinn fjöl­ miðill okkar allra, hefur verið kærður til úrskurðarnefndar um upplýsingamál því menn þar á bæ ætla ekki að greina frá því hvaða einstaklingar sækja um stöðu útvarpsstjóra. Gott og vel. Fyrir þessari ákvörðun hljótum við sem Ís­ lendingar að trúa því að góð og gild rök liggi að baki. Eða hvað? Ástæðan er sem sagt sú að með þessu vilja þeir laða að betri umsækjendur. Því eins og allir vita þá eru það allra bestu umsækjendurnir sem ekki vilja gangast við umsókn sinni opinberlega þótt þeir séu að sækja um hjá opinberu hlutafélagi í ríkis­ eigu. Auk þess hefur RÚV bent á að Capacent, sem sér um ráðninguna, hafi ráðlagt það. Leyndarhyggja strax við ráðningu. Þetta verður líklega vel valinn og farsæll útvarps­ stjóri. Ekki að við getum tek­ ið afstöðu til þess, enda fáum við ekki að vita hvort hann eða hún var hæfasti umsækj­ andinn. En það þekkist vart í íslensku þjóðfélagi að menn séu ráðnir án þess að vera hæfastir. Nei, það hefur aldrei gerst. Þrot hjá múm-liðum Félagið Krakkalakkar ehf. hef­ ur verið tekið til gjaldþrota­ skipta og verður skiptafund­ ur haldinn í mars á næsta ári. Eigendur félagsins eru þeir Gunnar Örn Tynes og Örvar Smárason. Eiga þeir helmings­ hlut í félaginu hvor um sig en þeir eru hvað þekktastir fyr­ ir að slá í gegn með hljóm­ sveitinni Múm sem þeir stofn­ uðu árið 1997. Hljómsveitin er enn starfandi og hefur not­ ið gífurlegrar hylli um allan heim. Félagið Krakkalakkar ehf. sá til að mynda um útgáfu krakkatímaritsins Krakkalakk­ ar, en ritstjóri þess var Guðbjörg Gissurardóttir. Vetrargleði Réttu græjurnar skipta öllu máli. Leiðari Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.