Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 30
30 6. desember 2019 SAKAMÁL S uzane Louise Freiin von Richthofen fæddist 3. nóv- ember árið 1983. Suzane er brasilísk en á þó ættir að rekja til Þýskalands því faðir hennar hét Manfred Albert Frei- herr von Richthofen, en móðir hennar, Marisia von Richthofen (Marísia Abdalla) var brasilísk og af líbönsku bergi brotin. Þann 31. október, árið 2002, fékk Suzane hjálp kærasta síns og bróður hans til að koma foreldr- um hennar fyrir kattarnef. Réttað var yfir Suzönu í Sao Paulo í júlí árið 2006. Áhöld um vensl Faðir Suzönu var forstjóri ríkisfyrir tækis sem sá um upp- byggingu þjóðvega í landinu, en móðir hennar var geðlæknir. Einn yngri bróður á Suzane, Andreas Freiherr von Richthofen, en hann kemur ekki mikið við sögu þessa. Sjálfur fullyrti Manfred að hann væri bróðursonur Manfreds von Richthofen, þess fræga flug- manns sem gerði garðinn frægan í fyrri heimsstyrjöldinni og varð þekktur sem Rauði baróninn. Einhver áhöld virðast þó vera um þau vensl og hefur þýska von Richthofen-fjölskyldan vísað öll- um slíkum fullyrðingum til föður- húsanna. Átakalítil tilvera En nú víkur sögunni aftur að Suzönu og forsögu hennar. Eftir að hafa útskrifast úr mennta- skóla fór Suzane í lögfræðinám í Pontifícia Universidade Católica. Henni var lýst sem hamingju- samri konu, en eilítið feiminni og á þeim tíma bar ekki skugga á samband hennar við hvorki for- eldrana né yngri bróður hennar. Sumarið 1999 byrjaði Suzane að æfa brasilískt jiu-jitsu og þar kynntist hún Daniel Cravinhos de Paula e Silva, sem varð kærasti hennar og síðar sökunautur. Myrt í rúminu Það var langt liðið á kvöldið 31. október, 2002, þegar Suzane kannaði hvort foreldrar hennar væru komnir í draumalandið. Hún hafði skipulagt að myrða þau svo mánuðum skipti og sá þetta kvöld að leiðin ætti að verða greið. Suzane aftengdi þjófavarnar- kerfið og opnaði fyrir kærasta sín- um og bróður hans, Christian, en þeir höfðu beðið þolinmóðir fyrir utan. Cravinhos-bræðurnir fóru upp á efri hæðina og inn í svefn- herbergi foreldra Suzönu. Bræð- urnir börðu Manfred og Marisiu í höfuðið með járnröri og notuðu síðan handklæði til að kyrkja þau. Meðan á þessu gekk beið Suzane í stofunni niðri. Þegar bræðurnir komu niður settu þre- menningarnir á svið innbrot. Þau stungu í vasa sína því fé sem þau fundu, dreifðu dagblöðum um bókaherbergið og rusluðu að lok- um til á heimilinu. Glæpurinn „uppgötvaður“ Þau yfirgáfu síðan vettvang glæps- ins og Suzane og Daniel fóru á hótel, en Christian fór á skyndi- bitastað. Í morgunsárið fóru Suzane og Daniel á internetkaffi- hús þar sem 15 ára bróðir Suzane, Andreas, hafði varið nóttinni við tölvu. Þau héldu heim og „upp- götvuðu“ þá hinn hræðilega glæp sem hafði verið framinn. Þau biðu ekki boðanna og hringdu umsvifalaust á lögregluna og upplýstu hana um þeirra út- gáfu. Lögreglan reyndist ekki auðginnt og var ekki reiðubúin til að gleypa við innbrotsútgáfunni. Taldi lögreglan líklegra að einhver nákominn fjölskyldunni væri við- riðinn glæpinn og hóf að yfirheyra börnin og fleira fólk. Óviðeigandi hegðun Það sem kom lögreglunni spánskt fyrir sjónir var ekki fyrst og fremst vettvangurinn með aftengt þjófa- varnarkerfi og dagblöðum á víð og dreif, líkt og þeim hefði verið stillt upp. Nei, það var viðmót Suzönu, sem virtist einstaklega róleg þrátt fyrir allt og allt. Daginn eftir morðið lék hún sér í sund- laug fjölskyldunnar með Daniel og síðar meir, nokkrum klukku- stundum eftir að foreldrar henn- ar voru jarðsett, hélt upp á 19 ára afmæli sitt með pomp og prakt. Því ákvað rannsóknarlög- reglan að beina sjónum sínum að Suzönu og Daniel og fylgjast með ferðum þeirra. Upp komast svik Lögreglan uppskar árangur erfiðis síns nokkrum dögum síð- ar þegar Christian keypti mótor- hjól sem hann greiddi fyrir með 100 dala seðlum. Þann 9. nóv- ember voru þau öll handtekin; Christian, Daniel og Suzane og ekki leið á löngu þar til Suzane játaði allt saman. Nú, tíminn leið og í maí, árið 2005, úrskurðaði Hæstiréttur að Suzönu skyldi sleppt úr varðhaldi á grundvelli „habeas corpus“ og henni var gert að bíða réttarhalda í stofufangelsi á heimili sínu. VARGUR Í VÉUM n Kærasti Suzönu hlaut ekki náð fyrir augum foreldra hennar n Mikill auður freistaði n Launráð voru brugguð n Hjónarúmið reyndist banabeður „Sagði hann að Suzane væri „persónu- gerving illu ljóskunnar“ Í járnum Frelsi án fyrirhafnar varð Suzönu dýrkeypt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.