Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Qupperneq 30
30 6. desember 2019
SAKAMÁL
S
uzane Louise Freiin von
Richthofen fæddist 3. nóv-
ember árið 1983. Suzane
er brasilísk en á þó ættir
að rekja til Þýskalands því faðir
hennar hét Manfred Albert Frei-
herr von Richthofen, en móðir
hennar, Marisia von Richthofen
(Marísia Abdalla) var brasilísk og
af líbönsku bergi brotin.
Þann 31. október, árið 2002,
fékk Suzane hjálp kærasta síns og
bróður hans til að koma foreldr-
um hennar fyrir kattarnef. Réttað
var yfir Suzönu í Sao Paulo í júlí
árið 2006.
Áhöld um vensl
Faðir Suzönu var forstjóri
ríkisfyrir tækis sem sá um upp-
byggingu þjóðvega í landinu, en
móðir hennar var geðlæknir. Einn
yngri bróður á Suzane, Andreas
Freiherr von Richthofen, en hann
kemur ekki mikið við sögu þessa.
Sjálfur fullyrti Manfred að
hann væri bróðursonur Manfreds
von Richthofen, þess fræga flug-
manns sem gerði garðinn frægan
í fyrri heimsstyrjöldinni og varð
þekktur sem Rauði baróninn.
Einhver áhöld virðast þó vera
um þau vensl og hefur þýska von
Richthofen-fjölskyldan vísað öll-
um slíkum fullyrðingum til föður-
húsanna.
Átakalítil tilvera
En nú víkur sögunni aftur að
Suzönu og forsögu hennar. Eftir
að hafa útskrifast úr mennta-
skóla fór Suzane í lögfræðinám í
Pontifícia Universidade Católica.
Henni var lýst sem hamingju-
samri konu, en eilítið feiminni
og á þeim tíma bar ekki skugga á
samband hennar við hvorki for-
eldrana né yngri bróður hennar.
Sumarið 1999 byrjaði Suzane
að æfa brasilískt jiu-jitsu og þar
kynntist hún Daniel Cravinhos
de Paula e Silva, sem varð kærasti
hennar og síðar sökunautur.
Myrt í rúminu
Það var langt liðið á kvöldið 31.
október, 2002, þegar Suzane
kannaði hvort foreldrar hennar
væru komnir í draumalandið.
Hún hafði skipulagt að myrða
þau svo mánuðum skipti og sá
þetta kvöld að leiðin ætti að verða
greið.
Suzane aftengdi þjófavarnar-
kerfið og opnaði fyrir kærasta sín-
um og bróður hans, Christian, en
þeir höfðu beðið þolinmóðir fyrir
utan. Cravinhos-bræðurnir fóru
upp á efri hæðina og inn í svefn-
herbergi foreldra Suzönu. Bræð-
urnir börðu Manfred og Marisiu
í höfuðið með járnröri og notuðu
síðan handklæði til að kyrkja
þau. Meðan á þessu gekk beið
Suzane í stofunni niðri. Þegar
bræðurnir komu niður settu þre-
menningarnir á svið innbrot. Þau
stungu í vasa sína því fé sem þau
fundu, dreifðu dagblöðum um
bókaherbergið og rusluðu að lok-
um til á heimilinu.
Glæpurinn „uppgötvaður“
Þau yfirgáfu síðan vettvang glæps-
ins og Suzane og Daniel fóru á
hótel, en Christian fór á skyndi-
bitastað. Í morgunsárið fóru
Suzane og Daniel á internetkaffi-
hús þar sem 15 ára bróðir Suzane,
Andreas, hafði varið nóttinni við
tölvu. Þau héldu heim og „upp-
götvuðu“ þá hinn hræðilega glæp
sem hafði verið framinn.
Þau biðu ekki boðanna og
hringdu umsvifalaust á lögregluna
og upplýstu hana um þeirra út-
gáfu. Lögreglan reyndist ekki
auðginnt og var ekki reiðubúin til
að gleypa við innbrotsútgáfunni.
Taldi lögreglan líklegra að einhver
nákominn fjölskyldunni væri við-
riðinn glæpinn og hóf að yfirheyra
börnin og fleira fólk.
Óviðeigandi hegðun
Það sem kom lögreglunni spánskt
fyrir sjónir var ekki fyrst og fremst
vettvangurinn með aftengt þjófa-
varnarkerfi og dagblöðum á víð
og dreif, líkt og þeim hefði verið
stillt upp.
Nei, það var viðmót Suzönu,
sem virtist einstaklega róleg
þrátt fyrir allt og allt. Daginn
eftir morðið lék hún sér í sund-
laug fjölskyldunnar með Daniel
og síðar meir, nokkrum klukku-
stundum eftir að foreldrar henn-
ar voru jarðsett, hélt upp á 19 ára
afmæli sitt með pomp og prakt.
Því ákvað rannsóknarlög-
reglan að beina sjónum sínum að
Suzönu og Daniel og fylgjast með
ferðum þeirra.
Upp komast svik
Lögreglan uppskar árangur
erfiðis síns nokkrum dögum síð-
ar þegar Christian keypti mótor-
hjól sem hann greiddi fyrir með
100 dala seðlum. Þann 9. nóv-
ember voru þau öll handtekin;
Christian, Daniel og Suzane og
ekki leið á löngu þar til Suzane
játaði allt saman.
Nú, tíminn leið og í maí, árið
2005, úrskurðaði Hæstiréttur að
Suzönu skyldi sleppt úr varðhaldi
á grundvelli „habeas corpus“ og
henni var gert að bíða réttarhalda
í stofufangelsi á heimili sínu.
VARGUR Í VÉUM
n Kærasti Suzönu hlaut ekki náð fyrir augum foreldra hennar n Mikill
auður freistaði n Launráð voru brugguð n Hjónarúmið reyndist banabeður
„Sagði
hann að
Suzane væri
„persónu-
gerving illu
ljóskunnar“
Í járnum
Frelsi án
fyrirhafnar
varð Suzönu
dýrkeypt.