Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 34
34 MATUR 6. desember 2019 Öðruvísi konfekt um jólin n 37 g matarlímsplötur n 1 bolli kalt vatn n 1 1/2 bolli sjóðandi vatn n 4 bollar sykur n 1/2 tsk. bragðefni (sítrónudropar eru til dæmis dásamlegir) n matarlitur n 1 bolli flórsykur Aðferð: Takið til form sem þið ætlið að nota. Ég geri yfirleitt eina uppskrift í stórt, ílangt form sem er um 33 senti­ metra langt. Ef þið viljið nota nokkur minni form fyrir mismunandi bragð, þá mæli ég með því að þið hafið aðstoðarhlaupara þar sem maður þarf að hafa hraðar hendur þegar blandan er tilbúin. Svo er auðvitað líka hægt að nota konfektform. Úðið bökunarspreyi í form­ ið/n. Takið til vel stóran pott og leggið matarlímsblöðin í hann. Gott er að brjóta þau upp. Hellið kalda vatninu yfir matarlímið og leyfið þessu að liggja í fimm mín­ útur. Á meðan sjóðið þið vatnið og hellið því síðan yfir matarlímið. Hrærið vel þar til matarlímið er uppleyst. Blandið sykrinum saman við og hrærið vel. Setjið pottinn á hellu yfir meðalháan hita. Hrærið stanslaust og náið upp suðu. Lækkið þá hitann eilítið og leyfið þessu að malla í 25 mínútur á meðan þið hrærið stanslaust. Takið pottinn af hellunni og blandið bragðefni og matarlit saman við. Munið hraðar hend­ ur! Hellið blöndunni í formið/n og kælið í ísskáp í 8 klukkutíma. Varðandi bragðefni þá hef ég keypt fullt af alls konar tegundum í búðinni Allt í köku. Mæli með þeim. Takið hlaupið úr forminu og skerið í litla bita. Veltið þeim upp úr flórsykri og raðið á smjörpappír. Setjið síðan aftur inn í ísskáp yfir nótt og þá er hlaupið tilbúið. Reynið að standast þetta! n 100 g smjör n 1 bolli sykur n 2 msk. síróp n 3/4 bolli saxaðar möndlur n 200 g mjólkursúkkulaði Aðferð: Takið til kassalaga form sem er um 20×20 sentimetra stórt. Úðið það með bökunarspreyi og klæðið með smjörpappír. Setjið smjör, sykur og síróp í pott yfir meðal háum hita þar til allt er bráðnað saman. Hrærið af og til í blöndunni svo hún brenni ekki við. Náið upp suðu og lækkið síðan hitann. Leyfið þessu að sjóða í fimm mínútur og hrærið stanslaust svo blandan brenni ekki við. Við viljum að sykurinn leysist upp og að litur­ inn verði dökkbrúnn. Bætið möndlunum út í og latið malla í um mínútu í viðbót. Takið pottinn af hellunni og dreifið í formið. Sléttið úr blöndunni með sleikju og látið kólna í að minnsta kosti klukkustund. Bræðið súkku­ laðið og dreifið yfir stökka karamelluna. Brjótið í mola þegar súkkulaðið hefur harðnað. Og borðið! n 1 dós sæt dósamjólk (condensed milk) n 120 g smjör n 30 g hunang n 150 g sykur n 1 tsk. sjávarsalt n 250 g mjólkursúkkulaði Aðferð: Takið til form, um 15×15 sentimetra stórt og klæðið það með bökunarpappír. Setjið mjólk, smjör, hunang, sykur og salt í pott og bræðið saman yfir lágum hita. Hrærið stanslaust. Hækkið hitann lítið eitt þegar þið sjáið að sykurinn hefur leyst upp og haldið áfram að hræra í um 10–15 mínútur, eða þar til blandan er farin að líkjast karamellu á litinn. Takið pottinn af hellunni og hellið karamellunni í formið. Leyfið blöndunni að kólna við stofuhita í um hálftíma og síðan inni í ísskáp í 4 til 5 klukkutíma. Bræðið mjólkursúkkulaðið yfir vatnsbaði eða með 30 sekúndna millibili í örbylgju­ ofni. Skerið karamelluna í passlega bita og þekið bit­ ana með súkkulaði. Þessar karamellur eru aðeins of gómsætar og alveg eins, jafnvel betri, og ekta Dumle­ karamellur. Þær geymast bara í 3 til 4 daga í ísskáp en trúið mér – þær hverfa á örskotstundu! Margir nýta aðventuna til að koma saman og búa til konfekt. Vissulega er gott og gilt að halda í hefðir og gera sama konfektið ár eftir ár, en stundum er líka dásamlegt að breyta til. Hér eru þrjár konfektupp- skriftir sem gætu kitlað nýjungagirnina í lesendum. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Dásamlegt Daim Dumle- karamellur Hlaup

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.