Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Page 34
34 MATUR 6. desember 2019
Öðruvísi konfekt um jólin
n 37 g matarlímsplötur
n 1 bolli kalt vatn
n 1 1/2 bolli sjóðandi vatn
n 4 bollar sykur
n 1/2 tsk. bragðefni (sítrónudropar eru til dæmis
dásamlegir)
n matarlitur
n 1 bolli flórsykur
Aðferð:
Takið til form sem þið ætlið að nota. Ég geri yfirleitt
eina uppskrift í stórt, ílangt form sem er um 33 senti
metra langt. Ef þið viljið nota nokkur minni form fyrir
mismunandi bragð, þá mæli ég með því að þið hafið
aðstoðarhlaupara þar sem maður þarf að hafa hraðar
hendur þegar blandan er tilbúin. Svo er auðvitað líka
hægt að nota konfektform. Úðið bökunarspreyi í form
ið/n. Takið til vel stóran pott og leggið matarlímsblöðin
í hann. Gott er að brjóta þau upp. Hellið kalda vatninu
yfir matarlímið og leyfið þessu að liggja í fimm mín
útur. Á meðan sjóðið þið vatnið og hellið því síðan yfir
matarlímið. Hrærið vel þar til matarlímið er uppleyst.
Blandið sykrinum saman við og hrærið vel.
Setjið pottinn á hellu yfir meðalháan hita. Hrærið
stanslaust og náið upp suðu. Lækkið þá hitann eilítið
og leyfið þessu að malla í 25 mínútur á meðan þið
hrærið stanslaust. Takið pottinn af hellunni og blandið
bragðefni og matarlit saman við. Munið hraðar hend
ur! Hellið blöndunni í formið/n og kælið í ísskáp í 8
klukkutíma. Varðandi bragðefni þá hef ég keypt fullt af
alls konar tegundum í búðinni Allt í köku. Mæli með
þeim. Takið hlaupið úr forminu og skerið í litla bita.
Veltið þeim upp úr flórsykri og raðið á smjörpappír.
Setjið síðan aftur inn í ísskáp yfir nótt og þá er hlaupið
tilbúið. Reynið að standast þetta!
n 100 g smjör
n 1 bolli sykur
n 2 msk. síróp
n 3/4 bolli saxaðar möndlur
n 200 g mjólkursúkkulaði
Aðferð:
Takið til kassalaga form sem er um 20×20 sentimetra
stórt. Úðið það með bökunarspreyi og klæðið með
smjörpappír. Setjið smjör, sykur og síróp í pott yfir
meðal háum hita þar til allt er bráðnað saman. Hrærið
af og til í blöndunni svo hún brenni ekki við. Náið upp
suðu og lækkið síðan hitann. Leyfið þessu að sjóða í
fimm mínútur og hrærið stanslaust svo blandan brenni
ekki við. Við viljum að sykurinn leysist upp og að litur
inn verði dökkbrúnn. Bætið möndlunum út í og latið
malla í um mínútu í viðbót. Takið pottinn af hellunni og
dreifið í formið. Sléttið úr blöndunni með sleikju og látið
kólna í að minnsta kosti klukkustund. Bræðið súkku
laðið og dreifið yfir stökka karamelluna. Brjótið í mola
þegar súkkulaðið hefur harðnað. Og borðið!
n 1 dós sæt dósamjólk (condensed milk)
n 120 g smjör
n 30 g hunang
n 150 g sykur
n 1 tsk. sjávarsalt
n 250 g mjólkursúkkulaði
Aðferð:
Takið til form, um 15×15 sentimetra stórt og klæðið
það með bökunarpappír. Setjið mjólk, smjör, hunang,
sykur og salt í pott og bræðið saman yfir lágum hita.
Hrærið stanslaust. Hækkið hitann lítið eitt þegar þið
sjáið að sykurinn hefur leyst upp og haldið áfram að
hræra í um 10–15 mínútur, eða þar til blandan er farin
að líkjast karamellu á litinn. Takið pottinn af hellunni
og hellið karamellunni í formið. Leyfið blöndunni að
kólna við stofuhita í um hálftíma og síðan inni í ísskáp
í 4 til 5 klukkutíma. Bræðið mjólkursúkkulaðið yfir
vatnsbaði eða með 30 sekúndna millibili í örbylgju
ofni. Skerið karamelluna í passlega bita og þekið bit
ana með súkkulaði. Þessar karamellur eru aðeins of
gómsætar og alveg eins, jafnvel betri, og ekta Dumle
karamellur. Þær geymast bara í 3 til 4 daga í ísskáp en
trúið mér – þær hverfa á örskotstundu!
Margir nýta aðventuna til að koma saman
og búa til konfekt. Vissulega er gott og gilt
að halda í hefðir og gera sama konfektið
ár eftir ár, en stundum er líka dásamlegt
að breyta til. Hér eru þrjár konfektupp-
skriftir sem gætu kitlað nýjungagirnina í
lesendum.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Dásamlegt
Daim
Dumle-
karamellur
Hlaup