Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2019, Blaðsíða 21
Tómstundir og útivist
06. desember 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
CAFÉ CATALÍNA:
Falinn gimsteinn í
hjarta Kópavogs
Café Catalína er frábær veitinga- og skemmtistaður í Hamraborginni, hjarta
Kópavogs. Staðurinn er afar vinsæll
bæði í hádeginu og á kvöldin. Við
bjóðum upp á fjölbreyttan matseðil
á kvöldin sem samanstendur af
heiðarlegum og góðum heimilismat.
Kjötsúpan okkar klikkar ekki, en
þetta er klassísk og bragðgóð,
íslensk kjötsúpa sem hlýjar vel
á vetrarmánuðum. Einnig erum
við með girnilega kjúklingarétti,
svínarif, kótelettur og fiskrétti.
Á Café Catalínu færðu að auki
girnilega hamborgara og samlokur
á frábæru verði.
Kíktu á Catalínu í hádeginu
Café Catalína er afar vinsæll
veitingastaður í hádeginu og er
með sérstaka hádegisrétti vikunnar,
sem birtir eru vikulega. Fylgstu
með á vefsíðunni catalina.is og á
Facebook: Cafe Catalina.
Skemmtu þér á Café Catalínu
Það er alltaf góð stemning á Café
Catalínu. Við bjóðum gestum
reglulega upp á stórskemmtilega
viðburði. Þá er meðal annars
lifandi tónlist allar helgar hjá
okkur. Við sýnum einnig alla helstu
íþróttaviðburðina á risaskjánum
okkar. Þú missir ekki af neinu á
Café Catalínu.
Komdu í skötu á Catalínu
Hið sívinsæla skötuhlaðborð verður
að sjálfsögðu á sínum stað á
Þorláksmessu 23. desember. Það
er gífurleg eftirvænting í liðinu og
gestum enda bíða menn allt árið
eftir skötunni okkar ljúffengu.
Café Catalína er opið alla daga
vikunnar:
Mánudaga–fimmtudaga frá 11–01
föstudaga frá 11–03
laugardaga frá 12–03
sunnudaga frá 13–01
Hamraborg 11, Kópavogi
Sími: 554-2166
Vefpóstur: catalina@catalina.is