Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Side 20
20 FÓKUS 11. október 2019
stöðum rannsóknarinnar og
bent á kynjahlutfallið á bak við
töldin við gerð þessara 56 kvik-
mynda. Ekki einni var leikstýrt af
konu, fjórðungur þeirra var með
að minnsta kosti einn kvenkyns
framleiðanda og ein af tíu kvik-
myndum var með að minnsta
kosti eina konu í handrits-
gerðarteyminu.
Niðurstöðurnar eru svipað-
ar og í öðrum rannsóknum sem
hafa verið gerðar síðustu ár um
hlut kvenna í kvikmyndaiðnað-
inum í Hollywood. Iðnaðurinn
hefur hins vegar tekið nokkrum
breytingum síðustu misseri, þökk
sé að hluta MeToo-hreyfingunni,
og er til dæmis hægt
að horfa til kvik-
myndarinn-
ar Hustlers í
þessu sam-
hengi og Net-
flix-seríunn-
ar Unbelievable.
Hustlers er
skrifuð og
leikstýrt af
konu og með
konum í aðal-
hlutverki. Þó að myndin fjalli um
fatafellur eru líkamar kvennanna
ekki sýndir á þann hátt sem
myndi flokkast undir „karlagláp“.
Í Unbelievable er síðan fylgst
með rannsókn á kynferðisaf-
brotamálum þar sem einblínt er
á konurnar á bak við frásagnirn-
ar án þess að sýna nauðganir sem
spennandi eða heillandi.
Ekkert gerst á 25 árum
Leikkonan Geena Davis seg-
ir í samtali við The Guardian að
þessi nýja rannsókn sé á vissan
hátt mikil vonbrigði.
„Kenning mín er að við höfum
ekki nógu mikið af fyrirmyndum
og konum í mikilvægum stöðum
í raunveruleikanum til að hvetja
til breytinga, þannig að við þurf-
um að búa þær til. Ég trúði því að
viðbrögðin við Thelma and Lou-
ise myndu breyta öllu og það yrðu
miklu fleiri konur í aðalhlutverk-
um í kvikmyndum. Ég var hæst-
ánægð með það,“ segir Geena, en
Thelma and Louise var frumsýnd
árið 1991. „Fjölmiðlar boðuðu
það líka með næstu mynd sem ég
gerði þar á eftir, sem var A League
of Their Own – núna yrðu sko
breytingar. Síðustu 25 árin hafa
margar myndir komið út og fólk
hefur sagt: Þetta á eftir að breyta
öllu. En ekkert gerist. Það eru
ótrúlega mikil vonbrigði hvað við
erum komin stutt á leið.“
Raunveruleikinn smitar
Í rannsókninni var einnig talað
við konur og stúlkur á aldrin-
um 15 til 25 ára í þessum tuttugu
löndum og þær spurðar hvernig
þeim fyndist konur vera túlkaðar
í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum
og auglýsingum. Margar töluðu
um að konur væru oft aukaatriði
eða einungis á skjánum fyrir karla
til að verða ástfangnir af.
„Þótt mig langaði að verða
leiðtogi þá mun ég ekki gera það
því mér finnst það bara vera fyrir
karlmenn, ekki konur. Það hefur
áhrif á mig. Ég þarf að halla mér
aftur og sjá menn gera það þótt
ég viti að ég geti það líka,“ sagði
til að mynda 22 ára kona frá Úg-
anda. Átján ára kona frá Kanada
sagði að við værum í raun föst í
vítahring.
„Konur eru ekki í æðstu leið-
togastöðum og við sjáum jafnvel
mun færri konur en karla í stjórn-
málum. Ég held að það smiti út
frá sér í dægurmálamenninguna.“
Geena Davis segir í fyrrnefndu
viðtali við The Guardian að hún
finni fyrir alvöru breytingu núna,
sérstaklega í ljósi hreyfinganna
MeToo og Time’s Up.
„Mér finnst að auðveldasta
leiðin til að breyta menningunni
sé í gegnum skjáinn. Og ef það
gerist þar, þá gerist það í raun-
veruleikanum.“ n
Ó
nákvæm og kynferðis-
lega hlaðin mynd er dreg-
in upp af konum og stelp-
um í stjórnunarstöðum
í kvikmyndum um allan heim
samkvæmt nýrri rannsókn sem
kom út í vikunni. Rannsókn-
in er samstarfsverkefni bresku
mannúðarstofnunarinnar Plan
International og Geena Dav-
is Institute on Gender in Media,
sem leikkonan Geena Davis
stofnaði árið 2004. Rannsóknin
heitir á frummálinu Rewrite her
story: How film and media stereo-
types affect the lives and leaders-
hip ambitions of girls and young
women, eða Endurskrifum sögu
hennar: Hvernig staðalímyndir í
kvikmyndum og fjölmiðlum hafa
áhrif á líf og metnað kvenna og
stúlkna fyrir stjórnunarstöðum.
56 myndir – 20 lönd
Við gerð rannsóknarinnar voru
56 vinsælustu myndir ársins 2018
í tuttugu löndum settar í gegn-
um sérstakt tól sem notar and-
lits- og talgreiningarhugbúnað
til að kanna hvernig konur
eru sýndar í kvikmynd-
um og sjónvarpsþátt-
um. Þessar 56 kvik-
myndir komu til að
mynda frá Bandaríkj-
unum, Kanada, Ind-
landi, Japan, Þýskalandi
og Senegal.
Niðurstöður sýna að kon-
ur í stjórnunarstöðum eru oftar
túlkaðar sem kynverur en karlar í
stjórnunarstöðu. Þá er líklegra að
þessar konur fækki fötum í kvik-
myndum fremur en karlar. Hug-
takið „male gaze“, eða „karlagláp“,
kemur oft fyrir í rannsókninni, en
það táknar að konur eru oft sýnd-
ar í kvikmyndum með þann einn
tilgang að karlkyns áhorfendur
glápi á þær.
„Vinsælustu myndirnar okk-
ar senda þau skilaboð að karl-
ar eigi að stjórna. Kvenkyns leið-
togar eru fyrir karla að glápa á og
stjórna í raun engu,“ stendur til
að mynda í niðurstöðum rann-
sóknarinnar. Niðurstöður sýna
enn fremur að konurnar í þess-
um myndum voru næstum því
fjórum sinnum líklegri til að vera
hlutgerðar, til dæmis með því að
myndavélin einblínir í hæga-
gangi (e. slow motion) á líkama
þeirra, og fimm sinnum líklegri til
að vera áreittar samanborið við
karlmennina í sömu myndum.
Heimur sem stýrt er af karl-
mönnum
Þeir sem standa að rann-
sókninni stinga upp á
ýmsum leiðum til að
rétta hlut kvenna í
kvikmyndum. Þar ber
hæst að ráða fleira
kvenkyns kvik-
myndagerðarfólk og
hylla verk þess.
„Þessar kvik-
myndir sýna heim
sem er stýrt af karl-
mönnum, fyrir
karlmenn,“
stendur í
niður-
n Konur í kvikmyndum eru fyrir karla
að glápa á samkvæmt nýrri rannsókn
n Konur oftar hlutgerðar og naktar
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Karlar
eiga að
stjórna
n 30% kvenkyns stjórnendur
voru í efnislitlum fötum
n 7% karlkyns stjórnendur voru í
efnislitlum fötum
n 15% kvenna voru naktar að
hluta í myndunum
n 8% karla voru naktir að hluta í
myndunum
n 2% kvenna voru allsnaktar í
myndunum
n 0,5% karla voru allsnaktir í
myndunum
Helstu niðurstöður
rannsóknarinnar
Nýtt stef
Í Hustlers
eru konurnar
sýndar sem
þrívíddar
karakterar en
ekki aðeins
einblínt á
líkama þeirra.
Magnaðir
Þættirnir Unbeli
evable á Netflix
hafa hreyft við
mörgum.
Átti að marka
tímamót Susan
Sarandon og
Geena Davis léku
Thelmu og Louise.
Vonar
það besta
Geena Davis
segist skynja
breytingu í dag.
Mynd: Getty
Images