Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Qupperneq 33
PRESSAN 3311. október 2019
Honey, að þegar hún hitti Barry
fyrst hafi henni ekki fundið mikið
til hans koma.
„Hann stóð inni í eldhúsi. Þar
var hann að lesa dagblað, huns-
aði alla, var bara Barry. Það eina
sem ég gat hugsað var: „Er systir
mín með þessu? Hvað er málið?“
En þegar á leið sá ég að hann var
snjall, frábær og ljúfur maður.“
Hjónin áttu fjögur börn. Þrjú
þeirra gengu staðgöngumæður
með eftir að Honey hafði misst
nokkur fóstur. Hjónin stóluðu
hvort á annað og voru mjög háð
hvort öðru. Honey sá til þess að
Barry væri klæddur á viðeigandi
hátt fyrir viðburði sem hann og
þau sóttu, valdi fötin á hann, allt
frá bindi niður í sokka.
Mjög gjafmild
Hjónin létu mikið að sér kveða
varðandi mannúðarmál og voru
mjög gjafmild. Þar skildu þau eft-
ir sig eftirmæli sem ekki munu
gleymast. Þau gáfu milljónir dollara
til sjúkrahúsa, samtaka gyðinga,
háskóla og ýmissa mannúðarsam-
taka. Hátæknirannsóknarstofa
við háskólann í Toronto ber nafn
þeirra hjóna og það sama á við um
miðstöð gyðinga í háskólanum.
Hjónin gáfu um 40 milljón-
ir Bandaríkjadala til góðgerðar-
mála um allan heim. Þar á með-
al nýttu þau fyrirtæki sitt, Apotex,
til að senda lyf til barna í Kenía.
Þau flögguðu þó ekki auði sínum
þrátt fyrir að vera meðal ríkustu
Kanadamannanna. Í samtali við
Toronto Life magazine árið 2008
sagði Honey að þau hjónin „lifðu
góðu lífi, ekki stóru lífi“ og að þau
hefðu áhyggjur af áhrifum auðs
síns á börnin þeirra. Hún sagði að
þau reyndu að temja þeim „raun-
veruleikaskyn“. Barry var þekktur
fyrir að nota bíla sína þar til þeir
voru ekki til neins nýtir nema að
fara í brotajárn. Eins og vinur hans,
Murray Rubin, lýsti honum: „Barry
var sama um hluti, að græða pen-
inga var hans aðferð til að sanna
sig.“ Hann segir að Barry hafi ver-
ið greindasti maður sem hann hafi
nokkru sinni hitt.
Umdeildur kaupsýslumaður
Barry lærði inn á lyfjaiðnaðinn
þegar hann vann í lyfjaverksmiðju
frænda síns. Hann stofnaði síðan
Apotex 1974. Á fyrstu árunum kom
hann að öllum þáttum rekstrarins,
skúraði gólfin og skrifaði ávísan-
ir. Það orð fór af honum að hann
væri óhræddur við að nota dóm-
stóla til að byggja fyrirtækið upp
og verja hagsmuni fyrirtækisins.
Apotex hefur átt aðild að rúmlega
1.000 dómsmálum í Kanada en
fyrirtækið hefur verið óhrætt við
að láta reyna á einkaleyfi annarra
á lyfjum.
BBC hefur eftir Amir Attar-
an, lagaprófessor við Ottawa-há-
skóla, að Apotex sé örugglega það
kanadíska fyrirtæki sem hafi rekið
flest mál fyrir kanadískum dóm-
stólum.
„Það er hægt að segja að út frá
því hvernig hann rak fyrirtæki sitt
hafi hann átt marga óvini.“
Lyfjaverð er mjög hátt í Kanada
og segir Attara að viðskiptaaðferð-
ir Barry eigi þar hlut að máli.
„Hann var siðblindur í viðskipt-
um. Lyfin hans voru seld á yfirverði
og féfléttu Kanadamenn,“ skrifaði
hann á Twitter. Apotex hefur ekki
viljað svara þessum ummælum.
Það styður kannski orð Attara að
fyrrnefndur Rubin segir Barry hafa
„verið góða persónu en sem kaup-
sýslumaður hafi hann verið harð-
ur í horn að taka“.
Barry stóð einnig í löngum og
mjög áberandi deilum. Á tíunda
áratugnum blandaðist Apotex og
þar með hann inn í harðar deilur
við Nancy Olivieri, lækni á barna-
sjúkrahúsinu í Toronto. Deilurnar
tengdust tilraunum með nýtt lyf
frá Apotex. Olivieri vildi upplýsa
þátttakendur í rannsókninni um
hugsanlega hættu samhliða þátt-
töku þeirra. Apotex vildi ekki fall-
ast á það, hætti tilrauninni og hót-
aði að stefna Olivieri fyrir dóm ef
hún skýrði frá þessum hugsanlegu
hættum. Hún lét það ekki stöðva
sig. Barry sagði hana „klikkaða“
þegar hann ræddi um málið í
fréttaskýringaþættinum 60 mínút-
um á CBS-sjónvarpsstöðinni.
Í september 2017 hafði hann
sigur fyrir dómi gegn ættingjum
sínum sem sökuðu hann um að
hafa rofið samkomulag sem átti
að færa þeim 20 prósenta hlut
í Apotex. Þetta voru langvinnar
deilur sem stóðu yfir í rúman ára-
tug með málsóknum og gagnmál-
sóknum.
Fólk hefur velt því fyrir sér í
tengslum við morðin hvort ein-
hver af öllum þessum málum
geti verið ástæðan fyrir morðun-
um en engin svör hafa fengist við
því enn. Rubin segir að þrátt fyrir
að Barry hafi verið harður í horn
að taka geti hann ekki ímyndað
sér hver hafi myrt hann og Honey
með svo miklu „hatri“.
„Ég trúi ekki að Barry vinur
minn … hafi dáið á þennan hátt.
Ráðgátan er – hver gerði þetta og
af hverju?“ n
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
„Ég trúi ekki að Barry vin-
ur minn ... hafi dáið á
þennan hátt. Ráðgátan er –
hver gerði þetta og af hverju?“
Mikil sorg Fjölmenni var í
minningarathöfn um hjónin
eftir andlát þeirra.