Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2019, Page 54
54 FÓKUS 11. október 2019 YFIRHEYRSLAN Katrín Gunnars- dóttir Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur hefur samið fjölbreytt dansverk bæði fyrir leikhús og tónlistarmyndbönd. Verk hennar hafa verið sýnd á sviðslistahátíðum víðs vegar um heim en hún hefur jafnframt hlotið nokkrar tilnefningar til Grímunnar. Katrín er í yfirheyrslu helgarinnar. Hvar líður þér best? Heima með fólkinu mínu eða í göngutúr einhvers staðar í náttúrunni. Hvað óttastu mest? Stríð og eyðileggingu. Hvert er þitt mesta afrek? Koma dóttur minni í heiminn, ein magnaðasta lífsreynsla sem ég hef upplifað. Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Í starfi mínu sem listamaður hef ég gert margt á sviði sem öðrum þætti kannski furðulegt: Hlaupið um í bananabúningi, handþeytt smjör, lamið fólk með gúrku og svona mætti lengi telja. Kannski er það furðulegasta sem ég hef gert að vinna á skrifstofu. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Slagorðið sem prýðir almenningsklósettvörur víða um heim: Katrin – less is more. Hvernig væri bjórinn Katrín? Katrín væri sterkur imperial stout sem myndi vera keisaraynjunni nöfnu minni að skapi. Besta ráð sem þú hefur fengið? „Ef þú getur gert það á fimm mínútum, gerðu það strax“ hefur hjálpað mikið í vinnutörnum þar sem maður þarf að vera með marga bolta á lofti. Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Mér finnst leiðinlegt að vaska upp seint á kvöldin, þá er ég líkleg til að slasa mig á eldhúshnífnum eða brjóta glas. Besta bíómynd allra tíma? Dirty Dancing og Saturday Night Fever eru bestu dansmyndirnar. Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Að geta flakkað um í tíma. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Treysta innsæinu og taka stökkið. Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Ýmis orð sögð í spjátrungslegum tón: vinkona, meistari, kallinn, gamla. Hvað geturðu sjaldnast staðist eða ert góð í að réttlæta að veita þér? Gott súkkulaði klikkar aldrei. Hvað er á döfinni hjá þér? Ég frumsýndi nýverið ÞEL, verk fyrir Íslenska dansflokkinn en síðustu sýningar eru nú í október. Svo eru æfingar að fara á fullt fyrir nýtt sviðsverk með kollegum mínum í leikhópnum Marmarabörnum, við frumsýnum Eyður, sjónræna sviðsfantasíu, á stóra sviði Þjóðleikhússins í janúar. Íris Hauksdóttir iris@dv.is Katrin - less is more M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.