Fréttablaðið - 12.01.2016, Page 2
Veður
Í dag blæs köld norðan- og norðaustanátt á
landinu með éljum fyrir norðan og austan.
Suðvestanlands ætti þó að vera bjart og
fallegt veður. Sjá SÍðu 26
Sinnir þú
SKöpUNný?
Skipulag Formaður Arkitektafélags-
ins telur forsætisráðherra ekki beita
valdi sínu með réttum hætti þegar
kemur að byggingarlist. Skilyrði um
að gamlar teikningar séu notaðar á
Alþingisreitnum og ummæli hans
um Hafnartorgsreitinn séu ekki í takt
við stefnu Arkitektafélagsins.
Hafnar eru framkvæmdir á Hafnar-
torgsreit þar sem byggja á sjö hús.
Ekki er búið að hanna húsin heldur
er aðeins um skipulagstillögu að
ræða. Forsætisráðherra hefur sagt
það skipulagsslys. Huga þurfi að
gömlum húsum í bænum og skipu-
leggja reitinn út frá því. Reiturinn
væri sá mikilvægasti í elstu byggð
Reykjavíkur og ætti því að huga að
samhenginu við skipulag reitsins.
„Forsætisráðherra er vitaskuld
frjálst hafa þá skoðun sem hann vill.
Öll umræða er einnig af hinu góða og
gott að ræða þessi mál. Það er hins
vegar hvernig hann beitir valdi sínu,
með Alþingisreitinn til dæmis, sem
við setjum spurningamerki við,“ segir
Aðalheiður Atladóttir, formaður
Arkitektafélagsins. „Við ættum í dag
að skapa og hanna byggingar sem
verða menningararfur seinna meir.
Við ættum að nota tækifærið núna
og gera eitthvað framsækið í bygg-
ingarlist. Byggingarlist verður að fá
að þróast líkt og aðrar listgreinar.“
Bendir Aðalheiður á að vinnuferlið
við byggingu húsa sé á þá leið að útlit
hússins komi í lokin. Fyrst sé unnið
í rannsóknum á húsinu, þarfagrein-
ingu, skoðun umhverfis sem síðan
leiðir af sér útlit. „Á Alþingisreitnum
er hins vegar sett skilyrði í fjárlögum
að unnið sé eftir gamalli teikningu
eða hún sé höfð til viðmiðunar og
það samrýmist ekki okkar stefnu.“
Aðalheiður bendir á að ekki sé
hægt að binda list í einhvers konar
tímafjötra „Ég gæti tekið tónlist til
dæmis. Sjáum Björk og Of Monsters
and Men sem eru að skapa í dag sem
verður líkast til hluti af tónlistararf-
inum. Við ættum ekki að skikka þau
til að semja tónlist í anda gamalla
tíma vegna þess að lítið sé til af þeirri
tónlist.“ sveinn@frettabladid.is
Segir byggingarlistina
verða að þróast eðlilega
Formaður Arkitektafélagsins er ósáttur við valdbeitingu forsætisráðherra. Um-
mæli hans séu ekki í takt við stefnu félagsins. Ekki sé farsælt að nota gamlar
teikningar, segir hún. Byggingarlist verði að geta þróast líkt og aðrar listgreinar.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
forsætisráðherra
Aðalheiður Atla-
dóttir, formaður
Arkitektafélags
Íslands
Ekki er langt síðan ríki og borg deildu um mikilvægi hafnargarðs í Reykjavík. For-
sætisráðherra hefur nú gert sig gildandi í umræðum um viðbyggingu á Alþingis-
reitnum sem og um nýtt skipulag á svokölluðu Hafnartorgi. FRéttAblAðið/GVA
Flóttamenn yfirgefa flóttamannabúðir
iOM í beirút þaðan sem sýrlenskir
flóttamenn koma til Íslands. MynD/EPA
Samfélag Til stóð að þann 19.
janúar næstkomandi kæmu hingað
fimmtíu og fimm flóttamenn frá
Sýrlandi. Nú er komið í ljós þeir
verða færri sem koma til landsins
þennan dag.
Þrjár fjölskyldur sem fyrirhugað
var að settust að í Hafnarfirði hafa
frestað komu sinni og ein sem tekið
verður á móti í Kópavogi.
Frestun á ferðalagi þeirra hingað
til lands er vegna ýmissa persónu-
legra aðstæðna í lífi fjölskyldnanna,
ein sýrlensku kvennanna er til að
mynda barnshafandi og má ekki
fara í flug. Hún kemur seinna til
landsins ásamt fleirum í hópi flótta-
manna sem dvelja í flóttamanna-
búðum í Líbanon.
Það eru því líklega sex fjölskyldur
sem koma til landsins þann nítj-
ánda janúar en ferðaáætlun Flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna er ekki fullgerð. Fjórar flytja
til Akureyrar og tvær setjast að í
Kópavogi.
Nú vinna sjálfboðaliðar að því að
undirbúa komu þeirra og innrétta
íbúðir þeirra. – kbg
Fáum færri
flóttamenn
til landsins
Hafnar eru framkvæmd-
ir á Hafnartorgsreit þar sem
byggja á sjö hús.
Sjávarútvegur Hlutdeild Íslands
í heildarþorskveiði heimsins fer
minnkandi.
Árið 2013 var hlutdeild landsins
221 þúsund tonn, eða 16,2 prósent.
Það ár var heildarveiðin alls 1.360
þúsundir tonna af þorski, líkt og
greint er frá á heimasíðu Landssam-
bands smábátaeigenda.
Af tölum að dæma hefur ástand
þorskstofnsins almennt verið
gott á tímabilinu 2009 til 2013.
Heimsaflinn í lok tímabilsins var
um hálfri milljón tonna meiri en í
upphafi þess, sem svarar til 57pró-
senta aukningar, segir þar.
Hér við land hefur aukningin
verið nokkru minni eða rúmur
fimmtungur, 22 prósent, sem svar-
ar til 39.500 tonna.
Í upphafi tímabilsins, árið 2009,
var hlutdeild Íslands rúmur fimmt-
ungur eða 20,9 prósent. – shá
Hlutdeildin
í þorskveiði
heims minnkar
1 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 Þ r i ð j u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
Réttur búnaður bjargar
Víða um land var fljúgandi hálka í gær þegar frost hélt innreið sína á ný eftir vætutíð. Á höfuðborgarsvæðinu urðu margir illilega varir við þetta og
mikilvægt að vera rétt búinn til ferðalaga á milli húsa. Margir hafa eflaust óskað þess að þeir væru með mannbrodda og göngustafi. FRéttAblAðið/StEFán