Fréttablaðið - 12.01.2016, Side 15

Fréttablaðið - 12.01.2016, Side 15
Nýverið birtist frétt um að þrátt fyrir uppgang væri brottf lutningur fólks meiri en aðflutningur. Það sem þó vakti ekki síður athygli var að lunginn af brottfluttum var ungt menntað fólk. Síðar komu tölur um að atvinnuleysi hjá háskóla- menntuðum færi vaxandi. Þetta eru slæm tíðindi. Nú er því ekki til að dreifa að almennt atvinnu- ástand sé bágborið. Hér er næg almenn atvinna og þúsundir lítt menntaðra útlendinga á leið- inni. Afkoma fólks fer batnandi. Brottflutningur menntaðs fólks er vegna skorts á sérhæfðum atvinnutækifærum, sem á mikið skylt við óþroskað, einhæft hag- kerfi. Auðlindahagkerfi eru í eðli sínu einhæf. Hvorki landbúnaður né sjávarútvegur hafa mikla þörf fyrir fjölmenntað fólk. Stóriðja átti að auka fjölbreytni Við fórum af stað með stóriðju til að auka fjölbreytni í efna- hagslífi landsins. Hagkerfið var staðnað. Þetta voru rétt skref í upphafi. Síðan var uppbygging stóriðju meginþungi í efnahags- stefnu landsins. Nýr einhæfur auðlindaatvinnuvegur varð til. Okkur mistókst að byggja upp úrvinnsluiðnað og skapandi störf tengd stóriðjunni sem juku verð- mætasköpunina og skildu stærri hluta virðisaukans eftir í landinu. Nánast allur virðisauki stór- iðjunnar verður til erlendis. Hér verða aðeins eftir beinar launa- greiðslur, smávægilegir skattar og greiðsla fyrir orku, sem fram til þessa hefur ekki íþyngt rekstri stóriðjuveranna. Þessar greiðslur eru aðeins lítið brot af virði endan legrar vöru. Virðismynd- unin hérlendis verður þar að auki enn rýrari fyrir þá sök að sami aðili stýrir allri virðiskeðjunni og hefur það því nokkurn veginn í hendi sér, hvar virðisaukinn verður til. Þá rýrnar hann enn þar sem við fórnum íslenskri náttúru. Auðlindaafurðir eru óstöðugustu afurðir á mörkuðum. Gleymum því heldur ekki að ungt fólk með fjölhæfa menntun er ekki á launa- skrá stóriðjuvera. Virðisaukinn Auður þjóða myndast þegar þeim tekst að halda hjá sér eða draga til sín arðbærustu hlekk- ina í framleiðslukeðjunni. Þar liggur mestur virðisaukinn. Þessir þættir framleiðslukeðjunnar eru t.d. hugmyndavinnan, hönnun vörunnar, dreifing og að lokum salan. Frumframleiðsla er ekki sérlega arðbær atvinnugrein, ekki einu sinni í olíu. Hugmynda- og þróunarvinnan, dreifingin og kannski ekki hvað síst margum- töluð vörumerki, mynda stærstan hluta virðiskeðjunnar í nútíma atvinnurekstri. Þar greiðast hæstu launin, mestur arðurinn og hæstu skattarnir. Af hverju skyldu bæði frystihús og sláturhús vera staðir, þar sem Íslendingar bíða ekki í röðum eftir að fá vinnu? Engin þjóð þroskast atvinnulega séð á því að leggja höfuðáherslu á að búa til nóg af almennum lág- launastörfum. Það er leið langtíma stöðnunar. Íslenska ríkið hefur allt frá upp- hafi fullveldisins verið afgerandi afl á sviði atvinnumála. Einkum hefur þetta gilt gagnvart auð- lindaatvinnuvegunum, landbún- aði, sjávarútvegi og síðar stóriðju. Því miður hafa þessi afskipti ríkis- valdsins einkum fest í sessi hag- gerð, sem til lengdar örvar hvorki hagvöxt né nýsköpun. Tiltölulega einhæf nýting auðlinda er sett í forgang, því það er auðveldara og atkvæðavænlegra. Þroskað hagkerfi byggir á hugviti, verk- kunnáttu, áræðni og margvíslegri þekkingu. Þaðan kemur mestur virðisaukinn. Gjaldmiðilinn Ekki má gleyma garminum honum Katli, þegar rætt er um fráhrindandi aðstæður fyrir ungt menntað fólk til að setjast að á Íslandi. Þar á ég við íslensku krón- una, sem fengið hefur þá heiðurs- nafnbót frá forsætisráðherra að vera sterkasti gjaldmiðill í heimi. Það er ekkert sérstakt afreksverk að gjaldmiðill sem býr við ströng gjaldeyrishöft og er hvergi not- hæfur utan eigin lands, haldist þokkalega stöðugur. Til þess eru höftin. Þrátt fyrir þessa algjöru einangrun og vernd þarf krónan háa vexti svo hún geti staðið undir því verkefni, að halda verð- bólgu í skefjum. Gjaldeyrishöftin Einhæfni auðlinda og virðiskeðjan Þröstur Ólafsson hagfræðingur Það er ekkert sérstakt afreks- verk að gjaldmiðill sem býr við ströng gjaldeyrishöft og er hvergi nothæfur utan eigin lands, haldist þokkalega stöðugur. Til þess eru höftin. Þrátt fyrir þessa algjöru ein- angrun og vernd þarf krónan háa vexti svo hún geti staðið undir því verkefni, að halda verðbólgu í skefjum. koma heldur ekki  í veg fyrir að mörg mismunandi gengi eru á krónunni. Innflutnings- og ferða- mannagengi, útboðsgengi seðla- bankans og síðan er verðtryggða útgáfa hennar. Sem mælieining er hún skökk, óstöðug og misvísandi. Sennilega hefur enginn einn hluti íslenska hagkerfisins „féflett“ Íslendinga meir í gegnum árin en krónan. Það er hún sem gerir ungu fólki erfitt með að búa hér, þótt það hafi vinnu. Hún er svo dyntótt og dýr, hvort sem hún er óverðtryggð eða verðtryggð. Hún gengur af öllum húsnæðiskerfum dauðum. Ef við viljum fá ungt menntað fólk til að setjast að hér- lendis þurfum við að breyta um opinbera atvinnustefnu, hætta fjáraustri í auðlindaatvinnuvegi og finna lausn á gjaldmiðilsmálum okkar. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Finndu okkur á facebook Gæði og glæsileiki endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Gæði og glæ sileiki endalaust ú rval af hágæ ða flísum s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15Þ R i ð J u D A G u R 1 2 . J A n ú A R 2 0 1 6

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.