Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 15
Nýverið birtist frétt um að þrátt fyrir uppgang væri brottf lutningur fólks
meiri en aðflutningur. Það sem
þó vakti ekki síður athygli var að
lunginn af brottfluttum var ungt
menntað fólk. Síðar komu tölur
um að atvinnuleysi hjá háskóla-
menntuðum færi vaxandi. Þetta
eru slæm tíðindi. Nú er því ekki
til að dreifa að almennt atvinnu-
ástand sé bágborið. Hér er næg
almenn atvinna og þúsundir lítt
menntaðra útlendinga á leið-
inni. Afkoma fólks fer batnandi.
Brottflutningur menntaðs fólks
er vegna skorts á sérhæfðum
atvinnutækifærum, sem á mikið
skylt við óþroskað, einhæft hag-
kerfi. Auðlindahagkerfi eru í eðli
sínu einhæf. Hvorki landbúnaður
né sjávarútvegur hafa mikla þörf
fyrir fjölmenntað fólk.
Stóriðja átti að auka fjölbreytni
Við fórum af stað með stóriðju
til að auka fjölbreytni í efna-
hagslífi landsins. Hagkerfið var
staðnað. Þetta voru rétt skref í
upphafi. Síðan var uppbygging
stóriðju meginþungi í efnahags-
stefnu landsins. Nýr einhæfur
auðlindaatvinnuvegur varð til.
Okkur mistókst að byggja upp
úrvinnsluiðnað og skapandi störf
tengd stóriðjunni sem juku verð-
mætasköpunina og skildu stærri
hluta virðisaukans eftir í landinu.
Nánast allur virðisauki stór-
iðjunnar verður til erlendis. Hér
verða aðeins eftir beinar launa-
greiðslur, smávægilegir skattar
og greiðsla fyrir orku, sem fram
til þessa hefur ekki íþyngt rekstri
stóriðjuveranna. Þessar greiðslur
eru aðeins lítið brot af virði
endan legrar vöru. Virðismynd-
unin hérlendis verður þar að auki
enn rýrari fyrir þá sök að sami
aðili stýrir allri virðiskeðjunni
og hefur það því nokkurn veginn
í hendi sér, hvar virðisaukinn
verður til. Þá rýrnar hann enn þar
sem við fórnum íslenskri náttúru.
Auðlindaafurðir eru óstöðugustu
afurðir á mörkuðum. Gleymum
því heldur ekki að ungt fólk með
fjölhæfa menntun er ekki á launa-
skrá stóriðjuvera.
Virðisaukinn
Auður þjóða myndast þegar
þeim tekst að halda hjá sér eða
draga til sín arðbærustu hlekk-
ina í framleiðslukeðjunni. Þar
liggur mestur virðisaukinn. Þessir
þættir framleiðslukeðjunnar eru
t.d. hugmyndavinnan, hönnun
vörunnar, dreifing og að lokum
salan. Frumframleiðsla er ekki
sérlega arðbær atvinnugrein,
ekki einu sinni í olíu. Hugmynda-
og þróunarvinnan, dreifingin og
kannski ekki hvað síst margum-
töluð vörumerki, mynda stærstan
hluta virðiskeðjunnar í nútíma
atvinnurekstri. Þar greiðast hæstu
launin, mestur arðurinn og hæstu
skattarnir. Af hverju skyldu bæði
frystihús og sláturhús vera staðir,
þar sem Íslendingar bíða ekki í
röðum eftir að fá vinnu? Engin
þjóð þroskast atvinnulega séð
á því að leggja höfuðáherslu á
að búa til nóg af almennum lág-
launastörfum. Það er leið langtíma
stöðnunar.
Íslenska ríkið hefur allt frá upp-
hafi fullveldisins verið afgerandi
afl á sviði atvinnumála. Einkum
hefur þetta gilt gagnvart auð-
lindaatvinnuvegunum, landbún-
aði, sjávarútvegi og síðar stóriðju.
Því miður hafa þessi afskipti ríkis-
valdsins einkum fest í sessi hag-
gerð, sem til lengdar örvar hvorki
hagvöxt né nýsköpun. Tiltölulega
einhæf nýting auðlinda er sett í
forgang, því það er auðveldara
og atkvæðavænlegra. Þroskað
hagkerfi byggir á hugviti, verk-
kunnáttu, áræðni og margvíslegri
þekkingu. Þaðan kemur mestur
virðisaukinn.
Gjaldmiðilinn
Ekki má gleyma garminum
honum Katli, þegar rætt er um
fráhrindandi aðstæður fyrir ungt
menntað fólk til að setjast að á
Íslandi. Þar á ég við íslensku krón-
una, sem fengið hefur þá heiðurs-
nafnbót frá forsætisráðherra að
vera sterkasti gjaldmiðill í heimi.
Það er ekkert sérstakt afreksverk
að gjaldmiðill sem býr við ströng
gjaldeyrishöft og er hvergi not-
hæfur utan eigin lands, haldist
þokkalega stöðugur. Til þess eru
höftin. Þrátt fyrir þessa algjöru
einangrun og vernd þarf krónan
háa vexti svo hún geti staðið
undir því verkefni, að halda verð-
bólgu í skefjum. Gjaldeyrishöftin
Einhæfni auðlinda og virðiskeðjan
Þröstur Ólafsson
hagfræðingur
Það er ekkert sérstakt afreks-
verk að gjaldmiðill sem býr
við ströng gjaldeyrishöft og
er hvergi nothæfur utan eigin
lands, haldist þokkalega
stöðugur. Til þess eru höftin.
Þrátt fyrir þessa algjöru ein-
angrun og vernd þarf krónan
háa vexti svo hún geti staðið
undir því verkefni, að halda
verðbólgu í skefjum.
koma heldur ekki í veg fyrir að
mörg mismunandi gengi eru á
krónunni. Innflutnings- og ferða-
mannagengi, útboðsgengi seðla-
bankans og síðan er verðtryggða
útgáfa hennar. Sem mælieining er
hún skökk, óstöðug og misvísandi.
Sennilega hefur enginn einn
hluti íslenska hagkerfisins „féflett“
Íslendinga meir í gegnum árin
en krónan. Það er hún sem gerir
ungu fólki erfitt með að búa hér,
þótt það hafi vinnu. Hún er svo
dyntótt og dýr, hvort sem hún er
óverðtryggð eða verðtryggð. Hún
gengur af öllum húsnæðiskerfum
dauðum. Ef við viljum fá ungt
menntað fólk til að setjast að hér-
lendis þurfum við að breyta um
opinbera atvinnustefnu, hætta
fjáraustri í auðlindaatvinnuvegi
og finna lausn á gjaldmiðilsmálum
okkar.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæ
sileiki
endalaust ú
rval af hágæ
ða flísum
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15Þ R i ð J u D A G u R 1 2 . J A n ú A R 2 0 1 6