Fréttablaðið - 12.01.2016, Page 18

Fréttablaðið - 12.01.2016, Page 18
FH gerði gagntilboð Það gæti ráðist á næstu dögum hvort emil Pálsson fer til portú- galska félagsins belenenses í láni frá Íslandsmeisturum FH. eins og greint var frá um helgina hefur portúgalska liðið áhuga á að fá emil að láni með þeim mögu- leika á að kaupa hann síðar. birgir Jóhannsson, framkvæmda- stjóri FH, segir að málið sé enn á frumstigi en að félagið hafi sent belenenses gagntilboð. „Það er of snemmt að segja hvort félögin muni ná saman en ég held að þetta muni gerast hratt ef af þessu verður. Það verður bara að koma í ljós hvort það gerist,“ sagði birgir í samtali við Vísi í gær. emil Pálsson var valinn besti leikmaður Pepsi-deildar karla en hann var frábær í sumar, fyrst sem lánsmaður hjá Fjölni og svo FH í síðari hluta mótsins. Hann skoraði eitt mark í níu leikjum með Fjölni og svo sex mörk í tólf leikjum með FH. Í dag 19.35 Newcastle- Man. Utd Sport 19.35 Bournem. - West Ham Sport 3 19.35 A. Villa - C. Palace Sport 4 19.15 Njarðvík B - Keflavík Njarðvík Handbolti Strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu hefja leik á evrópumótinu í Póllandi á föstudaginn þegar þeir mæta sterku liði noregs klukkan 17.15. Undir- búningi fyrir mótið lauk formlega á sunnudaginn þegar íslensku strák- arnir svöruðu fyrir tap laugardags- ins með þriggja marka sigri á læri- sveinum Dags Sigurðssonar í þýska landsliðinu. enn eru nokkur spurningamerki í kringum liðið, en aron Kristjáns- son hefur verið að prófa sig áfram í varnarleiknum, verið að fikra sig áfram með eina skiptingu og reynt að gefa fleiri mönnum tækifæri. Fréttablaðið leitaði til þriggja sér- fræðinga til að taka stöðuna á liðinu nú þremur dögum fyrir fyrsta leik. Þetta eru guðlaugur arnarsson, þjálfari Fram í olís-deild karla, Kristín guðmundsdóttir, stórskytta Vals í olís-deild kvenna, og gunnar andrésson, fyrrverandi landsliðs- maður og þjálfari nýliða gróttu í olís-deild karla. Lélegir gegn Portúgal „Það hefur verið stígandi í þessu eftir fyrsta leikinn gegn Portúgal,“ segir guðlaugur. „Við sáum það í leikj- unum um helgina að vörnin er að þéttast og hreyfingarnar eru örugg- ari. Það mikilvægasta í þessu er að loka vörninni og fá upp markvörslu.“ Ísland með fullmannað lið tapaði óvænt fyrir Portúgal með fjórum mörkum en þegar minni spámenn fengu að spreyta sig daginn eftir hafði Ísland sigur. „Seinni leikurinn gaf okkur mikið þar sem rúnar Kárason og Ólafur guðmundsson komu til dæmis sterkir inn og þeir gerðu það aftur um helgina,“ segir guðlaugur, en Kristín hafði engan húmor fyrir tapinu gegn Portúgal. „Ég held að þetta eigi eftir að verða fínt hjá strákunum á eM þegar stóru póstarnir í liðinu fara að taka þetta alvarlega og reyna aðeins meira á sig. Mér fannst lykil- menn geta reynt aðeins meira á sig Þeir yngri þurfa að fá tækifæri Strákarnir okkar hefja leik á EM á föstudaginn en undirbúningi lauk formlega á sunnudaginn. Enn á eftir að skera niður um einn leikmann. Fréttablaðið leitaði til þriggja sérfræðinga til að fara yfir stöðuna. Kristínu Guðmundsdóttur finnst Arnór Atlason hafa dalað og yngri menn eigi að fá sénsinn. FréttABLAðið/ANtoN BriNK gegn Portúgal. Það var allavega mín upplifun. Það var eins og þessi leikur skipti ekki máli. Við erum með svo rosalega góða leikmenn en þeir voru sumir hverjir bara lélegir á móti Portúgal,“ segir Kristín. Varnarleikurinn hefur verið mikill höfuðverkur fyrir aron Kristjánsson í undirbúningi eM og ekki hjálpar til að bjarki Már gunnarsson, sem hefur undanfarin misseri stimplað sig rækilega inn í landsliðið, hefur verið meiddur og er í litlu sem engu leikformi. „Spurningamerkin eru í varnar- leiknum,“ segir gunnar andrésson. „Ég persónulega hef minni áhyggjur af sóknarleiknum en í heildina horfir þetta þokkalega við mér. Það er ekki skrítið að aron hafi prófað svona margar uppstillingar í varnar- leiknum um helgina því hann er líklega ekki alveg viss um hver hans sterkasta uppstilling er.“ eins og alltaf er bent á vörn og markvörslu sem lykilþætti: „ef við náum að vera þéttir í varnarleiknum og fá smá markvörslu getur þetta orðið gott mót. en við þurfum að halda úti gæðum í vörninni allan leik- inn og ekki vera að skipta tveimur á milli varnar og sóknar í 60 mínútur. ef við komumst hjá því getum við staðið í hvaða liði sem er og hreinlega unnið alla,“ segir gunnar. arnór atlason stýrði sóknarleik íslenska liðsins á móti Þýskalandi í sigurleiknum og gerði það vel. Hann skilaði líka nokkrum mörkum og gefur aroni kannski enn einn jákvæð- an hausverkinn þegar kemur að því að velja á milli hans og Snorra Steins. „arnór er beinskeyttari leik- maður en Snorri er meiri spilari og góður að leggja upp leikinn. Það er meiri skotógn af arnóri í dag og mér fannst hann líka vilja bíta frá sér í þessum seinni leik gegn Þýska- landi,“ segir guðlaugur. Yngri menn eru einnig á barmi liðsins og að gera sig meira gild- andi en Kristín vill sjá þá fá fleiri og stærri tækifæri. „Við eigum svo marga ógeðslega góða unga stráka sem verða að fá tækifæri,“ segir Kristín. „Munurinn á karlaliðinu og kvennaliðinu er að þarna eru að koma upp öflugir strákar og þeir hafa meira sjálfstraust en stelp- urnar á þessum yngri árum. Þeir eru tilbúnari í þetta,“ segir Kristín guðmundsdóttir. tomas@365.is Guðmundur Hólmar framtíðin Guðlaugur Arnarsson er virkilega ánægður með innkomu Guð- mundar Hólmars Helgasonar í landsliðið. „Það er virkilega gaman að sjá þróunina hjá Guðmundi. Ég sé hann fyrir mér sem lykilmann í varnarleiknum á næstu árum. Mér finnst hann vera búinn að spila sig inn í lokahópinn. Hann er líkamlega sterkur, klókur, skynsamur og það er frábært að sjá hann og Bjarka vinna saman,“ segir Guðlaugur. „Ef Bjarki Már Gunnarsson er klár verður það Tandri sem verður frá að hverfa að þessu sinni. Mér fannst Guðmundur Hólmar ein- faldlega ná að grípa þetta tækifæri og því held ég að hann fari örugglega með,“ segir Guðlaugur. Eiga fast sæti í liðinu Kristín Guðmundsdóttir kallar eftir því að yngri menn fái frekari tækifæri en henni virðist sem lykilmenn séu með áskrift að sæti sínu. „Við verðum að gefa þessum yngri séns. Ef Aron spilar áfram svona á liðinu eftir að ganga ágætlega á EM. Mér finnst sumir þarna eiga fast sæti í liðinu. Arnór finnst mér til dæmis ekki hafa verið góður undanfarið. Hann hefur líklega verið meiddur. Hann og Snorri mega hvíla aðeins því við eigum svo ógeðslega góða gaura sem eru tilbúnir að koma inn,“ segir Kristín. Hún segist ekki skilja hvað liðið er að gera með þrjá línumenn. „Ég kynnt- ist Kára aðeins í Val. Þetta er mikil týpa og sterkur karakter. Það er ótrúlega mikilvægt að hafa svona mann í svona hópi. Ég skil vel að þjálfarar fórni einu sæti fyrir einhvern ungan til að taka svona mann með.“ Ekki vanmeta Noreg Gunnar Andrésson telur íslenska liðið geta gert vel á EM ef varnarleikurinn heldur þar sem sóknarleikurinn er góður. Hann segir að ekki verði keyrt á mörgum eins og um helgina. „Þetta er Evrópukeppni þar sem allir leikirnir eru erfiðir. Það er enginn andstæðingur sem þú mætir þar sem þú getur bara verið að finna taktinn. Fyrsti leikurinn gegn Noregi verður til dæmis mjög erfiður. Þó sagan hafi verið með okkur gegn þeim undan- farin ár eru Norðmenn með lið sem getur komið á óvart á þessu móti,“ segir Gunnar. Hann er sammála Guð- laugi að líklega verði það Tandri Már Konráðsson sem þurfi að taka flug- vélina heim. „Aron er með Kára, Bjarka og Vigni, þetta eru þrír línu- menn. Maður veit ekki stöðuna alveg á Bjarka Má en valið stendur á milli hans og Tandra,“ segir Gunnar. Nýjast bikarkeppni KKÍ, 8-liða úrslit Kr - Njarðvík 90-74 KR: Michael Craion 26, Brynjar Þór Björns- son 16, Þórir Þorbjarnarson 11, Ægir Stein. 9. Njarðvík: Haukur H. Pálsson 27, Oddur Kristjánsson 19, Ólafur Jónsson 15. Skallag. - Grindavík 96-105 Skallagrímur: Sigtryggur Björnsson 23, Jean Cadet 22, Arnar S. Bjarnason 18. Grindavík: Charles Garcia 27, Þorleifur Ólafsson 17, Jón Guðmundsson 14. Þór Þ. - Haukar 79-74 Þór: Vance Hall 27, Halldór Hermannsson 17, Ragnar Nathanaelsson 16. Haukar: Brandon Mobley 28, Haukur Óskarsson 16, Finnur Magnússon 9. MeSSi og lloYD beSt lionel Messi og Carli lloyd voru í gær valin bestu knattspyrnumenn heims árið 2015 og fengu hinn virta gullbolta FiFa. Messi átt enn og aftur ótrúlegt ár og var að vinna gullboltann í fimmta skiptið á ferlinum. enginn hefur unnið oftar en Messi setti met er hann vann í fjórða sinn. aðeins hann og Cristiano ronaldo hafa hlotið þessi verðlaun síðan 2008. lloyd var frábær í landsliði banda- ríkjanna sem varð heimsmeistari á síðasta ári. lloyd átti erfitt með að ráða við tilfinningar sínar eftir að hún var valin. Hún er þriðja bandaríska stúlkan sem hreppir þessa nafnbót á eftir abby Wam- bach og Mia Hamm. Þjálfari ársins í kvennaflokki var valin Jill ellis, landsliðsþjálfari bandaríkjanna. Undir hennar stjórn varð bandaríska liðið heimsmeistari á síðasta ári. Í karlaflokki var luis enrique, þjálfari barcelona, valinn þjálfari ársins. barca vann allt sem hægt er að vinna á síðasta ári undir hans stjórn. 1 2 . j a n ú a R 2 0 1 6 Þ R i Ð j U d a G U R18 S p o R t ∙ F R É t t a b l a Ð i Ð sport

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.