Fréttablaðið - 12.01.2016, Síða 22
Fólk| heilsa
glaður og fullnægður á hollustu-
brautinni.“
Hér eru tvær uppskriftir úr
Heilsubók Röggu nagla sem kom
út fyrir ári.
sítrónu-rósmarín-
kjúklingur
1 heill kjúklingur 1.200 g
Rósmarín
Steinselja
Börkur af einni sítrónu
2 tsk. ólífuolía
Marið hvítlauksrif
Hellið ólífuolíu í skál. Rífið sítrónu-
börk á rifjárni og bætið við. Bætið
við mörðu hvítlauksrifi. Klippið rós-
marín og steinselju út í blönduna.
Skerið sítrónu í tvennt og kreist-
ið yfir.
Setjið kjúkling í eldfast mót. Pipr-
ið og saltið vel. Kryddið jafnvel með
Season all. Smyrjið sítrónublönd-
unni yfir kjúklinginn.
Skerið sítrónu í sneiðar og raðið
meðfram kjúklingnum ásamt hvít-
lauksgeirum.
Bakið í 50 mínútur við 200°C.
Berið fram með góðu salati, brúnum
hrísgrjónum blönduðum með ristuð-
um baunum frá Food Doctor, brokk-
ólíi og maískorni.
hindberja-vanilluostakaka
sem þarf ekki að baka
botn
150 g Himnesk hollusta haframjöl
(eða glútenfrítt haframjöl)
2 msk. MONKI möndlusmjör
2 msk. agavesíróp
fylling
1 dós Philadelphia 11% hreinn
smur ostur
Korn úr vanillustöng eða vanillu
duft
1 msk. NOW kókoshnetuhveiti
100 ml NOW erythritol
1 skófla Sunwarrior vegan vanillu
prótínblanda
toppur
100 g frosin hindber
1 dl vatn
3 msk. chiafræ
Blandið saman öllu í botninn. Press-
ið það niður í botninn á 20 cm smellu-
formi. Blandið saman öllu í fyllinguna
með töfrasprota og setjið yfir botn-
inn. Setjið í kæli.
Hitið hindber og chiafræ í potti þar til
vatnið er gufað upp. Takið af hellunni
og leyfið að standa í 5 mínútur.
Smyrjið hindberjatoppnum ofan á
kökuna og látið standa yfir nótt í kæli.
ragga segir mataráhugann hafa fylgt sér frá fæðingu. „Það er í genamengi mínu
að vera matargat,“ segir hún glað-
lega. „Ef ég er ekki akkúrat að
borða, þá er ég að undirbúa að
borða eða hugsa um að borða.“
hvernig matarhefð höfðar
mest til þín?
„Við hjónin ferðumst mjög mikið
og erum bæði miklir matarperrar.
Við förum mikið út að borða,
bæði hér heima í Köben og er-
lendis og finnst fátt skemmtilegra
en að prófa nýja og framandi
matar gerð. Indverskt er mikið
uppáhald sem og tyrkneskt og
grískt. Svo er sushi alltaf klassík-
er,“ segir Ragga sem nýlega próf-
aði kóreskan mat í fyrsta skipti.
„Það var kúlínarísk sæla.“
Eldar þú á hverjum degi? „Ég
reyni að elda í bunkum og búa
í haginn. Þannig að þegar ég
elda þá geri ég stóra skammta
til að eiga tilbúið. Ég nenni ekki
alltaf að reima á mig svuntuna
og stundum eru vinnudagarnir
langir og þá er gott að þurfa
ekki að gera annað þegar maður
kemur heim en að rífa tilbúið úr
ísskápnum, henda á disk og í ör-
bylgjuofn. Það kemur í veg fyrir
örvæntingarfullar óæskilegar
ákvarðanir í matarvali í hungur-
kasti,“ segir Ragga og bætir við
að hún sé orðin svo dönsk í sér
að hún spari rafmagn með því að
nýta ofninn þegar hann á annað
borð fer í gang.
eldar þú bara hollan mat?
„Ég elda mestmegnis hollan mat.
En ég borða ekki bara hollan
mat. Ég fæ mér sveittar fröllur
og mæjó með reglulegu millibili
en þá læt ég aðra um þá vinnu,
annaðhvort veitinga-
hús eða vinafólk. Að
mínu mati eru öfgar
óheilbrigði. Sama
í hvora áttina
þær eru. Hinn
gullni meðal-
vegur að mínu
mati er 80%
hollusta, 20%
sveitt og sósað.“
Hvað borðaðir
þú um jólin? „Um
jólin borðaði ég kalkún
og stöffing og sætar
kartöflur á aðfangadag.
Hreindýrasteik með öllu
tilbehör á gamlárs,“ segir Ragga
sem hefur enga bannlista. „Slíkir
merkimiðar stuðla að „allt-eða-
ekkert“ nálgun gagnvart mat,
og þráhyggjuhugsunum um hið
bannaða. Það veldur því yfirleitt
að fólk springur á limminu og
ofétur akkúrat það sem er bann-
að með tilheyrandi skömm og
sektarkennd. Þetta er stór hluti
af minni vinnu sem sálfræðingur,
að hjálpa fólki út úr þessum víta-
hring.“
vinsæl námskeið
Ragga hefur haldið fjölmörg vin-
sæl matreiðslunámskeið. Þannig
seldist upp á námskeiðið sem
hún heldur 19. janúar næstkom-
andi en enn eru nokkur
pláss laus á námskeið
á Hvolsvelli mánu-
daginn 18. janúar.
„Ég kenni fólki
að hollusta er
ekki samnefn-
ari á einhæfni.
Það má moða
svo margt gott
og gómsætt úr
hollum hráefnum
þó ekki sé smjör og
sykur í aðalhlutverki.
Meginstefið á nám-
skeiðunum eru hollir
eftirréttir, bakkelsi og
sætabrauð án sykurs og hveitis,
en við gerum líka pitsur, brauð
og bollur, og alls kyns með-
læti með því. Markmiðið er að
fólk víkki sjóndeildarhringinn
og vopnvæðist af þekkingu og
kunnáttu í eldhúsinu til að vera
erfðafræðilegt matargat
uppskriftir Ragnhildur Þórðardóttir, heilsusál fræðing ur og einkaþjálf ari, betur þekkt sem Ragga nagli, hefur haldið ófá
matreiðslunámskeið þar sem hún kennir fólki að elda hollusturétti. Hún vill sýna fólki að hollusturéttir geti verið gómsætir og
kennir nemendum sínum meðal annars að búa til holla eftirrétti, bakkelsi og sætabrauð án sykurs og hveitis.
sítrónu-rósmarín kjúklingur Borinn fram með góðu salati og brúnum hrís-
grjónum blönduðum með ristuðum baunum.
ragga nagli Gaf út bókina Heilsubók Röggu nagla í fyrra, en þar er að finna fjölda
girnilegra uppskrifta.
hindberja-
vanilluostakaka
Útsölustaðir:
Hagkaup lífræna deildin, Fjarðarkaup - Fræið heilsuhornið, Heilsuhúsið,
Blómaval – heilsuhornið, Lifandi markaður Borgartúni
www.icecare.is - Netverslun
Pana Chocolate
Súkkulaði sem er gott fyrir þig…
• Náttúruleg ofurfæða
• Enginn unninn sykur!
• Framleitt við lágan hita til að viðhalda
miklu magni næringaefna
• Inniheldur hrá lífræn- og náttúruleg
innihaldsefni
Allt okkar súkkulaði er bæði
hand- gert og innpakkað
Inniheldur lífrænt kakó sem er með mikið magn
af andoxunarefnum, vítamínum og steinefnum.