Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2016, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 12.01.2016, Qupperneq 23
Bílar A lls seldust 15.420 fólks- og sendibílar á ný- liðnu ári og jókst salan um 48 prósent á milli ára. Aukningin í fyrra var 32 prósent. Það gerir síðasta ár að langbesta bílasöluári frá hruni og virðist sem eðlileg bílasala sé aftur að skapast á landinu. Þessi ágæta sala nær þó ekki sölunni síðustu árin fyrir hrun, en dugar til þess að bílafloti landsmanna er ekki lengur að eldast. Af þess- um 15.260 bílum voru 6.476 seldir til bílaleiga og jókst sala til þeirra um 45 prósent á árinu, en í fyrra keyptu leigurnar 4.470 bíla. Því jókst sala til einstaklinga og fyrir- tækja meira en til bílaleiga. Sala til fyrirtækja jókst mest, 51,9 pró- sent og nam 3.051 bíl. Sala til ein- staklinga jókst um 47,9 prósent og nam 5.893 bílum. Bl söluhæst en askja með mesta aukningu Söluhæsta einstaka umboðið á landinu var BL með 3.377 selda bíla og jókst salan um 48 prósent líkt og heildarsalan. Hekla seldi næstmest, eða 3.094 bíla og jókst salan þar um 52 prósent. Þriðja söluhæsta umboðið var Toy ota með 2.571 bíl og 55 prósenta sölu- aukningu og það fjórða Brimborg með 1.913 bíla og 50 prósenta sölu- aukningu. Mestri söluaukningu umboða náði Askja með 58% fleiri selda bíla en í fyrra og var fimmta söluhæsta umboðið. BL var með 22,1 prósents markaðshlutdeild bílaumboðanna, næst kom Hekla með 20,3%. Því næst komu Toyota með 16,8%, Brimborg með 12,5% og Askja með 11,6%. Þar á eftir Bílabúð Benna með 6,4%, Suzuki með 5,4% og Bernhard með 4,8%. Mestu aukningu markaðshlut- deildar náði Askja, eða 0,8% og Hekla jók við sig um 0,7 prósent. Mercedes Benz söluhæstur lúxusbíla Ágæt sala var á lúxusbílum á árinu 2015 og jókst hún um 44,3% og seldust alls 1.162 slíkir bílar. Þessi aukning er þó minni en á markaðnum í heild sem óx um 48% og því hefur markaðshlut- deild lúxusbíla minnkað milli ára. Langsöluhæsta lúxusmerk- ið var Mercedes Benz með 328 selda bíla. Næst kom Volvo með 230 bíla, svo Audi með 177 bíla og skammt á eftir Land Rover/ Range Rover með 171. Þar á eftir kom BMW með 114 bíla, svo Porsche með 75, Lexus með 45 og Tesla 19. Toyota söluhæst bílamerkja Af einstökum bílamerkjum var Toyota söluhæst með 2.526 selda bíla og enn eitt árið er Toyota söluhæst. Þar á eftir kom Volkswagen með 1.638 bíla, svo Kia með 1.354, þá Skoda með 999. Næst kom Ford með 878 bíla, Suzuki með 828, Hyundai 818, Renault 790, Nissan 734 og Mazda 551. Mesta aukningin hjá þessum bílmerkjum var hjá Mazda með 66 prósent aukningu milli ára. Þar á eftir var Kia með 64,3 prósenta aukningu, Toyota með 55,1 pró- sents aukningu, Volkswagen 43,4 og Nissan með 42,5 prósent. Gott söluár að baki oG 15.420 bílar seldir 15.420 fólks- og sendibílar seldust á liðnu ári og er aukning 48% á milli ára. Sala til fyrirtækja jókst mest. mynd/gva BETRA START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Exide rafgeymarnir fást hjá: ÞrIÐJUDaGUr 12. Janúar 2016

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.