Fréttablaðið - 12.01.2016, Síða 24

Fréttablaðið - 12.01.2016, Síða 24
Sögusagnir herma að Ford sé nú að prófa nýja útgáfu Ford F-150 pallbílsins með dísilvél sem framleidd er af Jaguar/Land Rover. JLR var jú um nokkurt skeið í eigu Ford, sem síðan seldi fyrirtækið til Tata Motors á Ind- landi árið 2008. Þessi vél er 3,0 lítra og er hana einnig að finna í Td6 gerðum Range Rover og Range Rover Sport. Hún er 254 hestöfl og í F-150 bílnum verð- ur hún tengd við sömu 10 gíra sjálfskiptingu og finna má í Ford F-150 Raptor kraftaútgáf- unni. Með því að kaupa þessa vél frá JLR hyggst Ford minnka eyðslu bílsins en Ford framleið- ir enga dísil vél sem kemst ná- lægt henni í sparneytni. Með því verður þessi gerð F-150 afar samkeppnishæf við Ram 1500 EcoDiesel, Chevrolet Colorado og GMC Canyon með sínar Dura- max-vélar og Nissan Titan með Cummins-vélinni. Líklega verð- ur hann reyndar eyðslugrennri en þeir allir. Sala Ford F-150 er langmest með bensínvélum, enda Bandaríkjamenn ekki ýkja hrifnir af dísilvélum og því er ekki við því að búast að þessi dísilútgáfa F-150 verði með sölu- hæstu útgáfum hans. Fær Ford F-150 3,0 lítra dísilvél frá Land Rover? National Electric Vehicle Sweden (NEVS), sem keypti Saab árið 2012, hefur nú skrifað undir 12 milljarða dollara samning um framleiðslu 150.000 rafmagns- bíla til handa Panda New Energy í Kína og að 150.000 Saab 9-3 raf- magnsbílar verði afhentir fyrir árið 2020 og 100.000 íhlutir í aðrar gerðir rafmagnsbíla. NEVS er að undirbúa ráðningu hundr- aða starfsmanna til að uppfylla þennan samning. Stjórnarformað- ur NEVS, Stefan Tilk, sagði að þessi samningur markaði mikil tímamót, ekki bara hvað varð- ar fjölda bíla, heldur einnig sem stórt skref til að uppfylla þá fram- tíðarsýn sem stjórnendur NEVS hafa haft til langs tíma. NEVS er í eigu nokkurra aðila, National Modern Energy Holdings, Tianjin Binhai Hi-Tech Industrial Deve- lopment Area og Bejing State Research Information Techno- logy Co, svo segja má að margir aðilar komi að endurreisn Saab- merkisins sem gæti átt glæstari framtíð en margir hafa talið hing- að til. Saab-eigendur skrifa undir 1.550 milljarða samning um smíði 150.000 bíla Þ að gerðist loksins, það sem allir áttu von á eftir erfiðleika Volkswagen vegna dísilvéla svindlsins; hætt verður við smíði flaggskipsins Volkswagen Phaeton. Þar fer frábær bíll, en hann hefur ekki selst nógu vel, tap verið á hverj- um bíl frá upphafi og fram- leiðsla hans tekur upp heila verksmiðju í Dresden, þótt smá sé. Reyndar er þessi verksmiðja hálfgert undraverk því hún er að mestu smíðuð úr gleri og er svo til gegnsæ og hreint stór- kostlegt að sækja hana heim eins og greinarritari hefur gert. Kostar meira en Audi A8 Grunnverð á Volkswagen Phaeton er nú 89.650 evrur og margir hafa spurt sig hvort ein- hver geti réttlætt það að kaupa slíkan bíl umfram Audi A8 sem býðst á 81.000 evrur og skýrir það kannski best dræma sölu hans. Framleiðslu Phaeton verður hætt í mars næstkom- andi eftir 14 ára framleiðslu og verksmiðjunni verður einfald- lega lokað. Volkswagen hefur litið á Phaeton sem stöðutákn og til vitnis um framúrskar- andi framleiðslu fyrirtækis- ins og víst er að Phaeton er það. Það geta samt fáir hugsað sér að eiga svo dýran og stóran bíl með merki Volkswagen á húdd- inu og það virðist hafa verið banabiti hans, þó svo síðasti naglinn í líkkistuna hafi verið dísilvélasvindlið. Verksmiðjunni breytt til annarrar framleiðslu Verksmiðjan í Dresden er sú minnsta af tíu verksmiðj- um Volkswagen í Þýskalandi og þar vinna um 500 manns. Þeir þurfa ekki að hafa áhyggj- ur af atvinnumissi þar sem þeim býðst öllum að vinna áfram í verksmiðju Volks- wagen í Zwickau, sem einnig er í gamla A-Þýskalandi, en þar eru Golf- og Passat-bílar fram- leiddir. Þó að verksmiðjunni í Dresden verði lokað verður það bara tímabundið og henni mun verða breytt til þess að fram- leiða aðrar gerðir Volkswagen- bíla eða annarra undirmerkja Volkswagen. Það mun taka um eitt ár. Búið var að kynna nýja kynslóð Phaeton, en nú hefur verið tekin ákvörðun um að kynna ekki þann bíl, en líklegt þykir þó að hann muni aftur líta dagsljósið sem rafmagns- bíll árið 2019 eða 2020. Volkswagen loks að hætta smíði Phaeton Töpuðu á hverjum bíl frá upphafi, enda kostar hann meira en Audi A8. Kemur e.t.v. aftur sem rafmagnsbíll. Volkswagen Phaeton er á stærð við Audi A8. Saab 9-3 Aero.Heyrst hefur frá herbúðum Audi að þar á bæ sé verið að vinna að Audi RS6 Allroad og með því blanda saman Audi RS6 og Audi Allroad bílunum. Þaðan hefur einnig heyrst að Audi hafi hætt við ýmis tilraunaverkefni sem voru á aðgerðalista fyrirtækisins fyrir dísilvélasvindlið, en öllum þeim hætt sem ekki teljast al- gjörlega nauðsynleg. Þess vegna sé þessi lítt kostnaðarsami sam- runi þessara tveggja skemmti- legu bíla auðvelt og ódýrt verk- efni til að skapa spennandi bíl sem höfðað gæti til margra kaup- enda. Það er að minnsta kosti miklum mun ódýrara en að þróa nýjan bíl frá grunni. Til stend- ur að kynna þennan áhugaverða bræðing næsta haust. Audi RS6 Allroad er helst hugsaður fyrir Kínamarkað, en hann verður einnig seldur á öðrum mörkuð- um. Búist er við því að í þess- um nýja bíl verði sama vélin og í RS6, þ.e. 4,0 lítra V8 og 560 hest- afla vélin sem einnig má finna í Audi RS7. Þar sem von er á nýrri kynslóð A6 bílsins árið 2017 verð- ur þessi bíll ekki lengi á markaði í fyrstu útgáfu, en ef til vill verð- ur hann áfram í boði með næstu kynslóð. Búist er við því að Audi RS6 Allroad verði eitthvað dýrari en Audi RS6. Audi hugleiðir RS6 Allroad Hinn klassíski GAZ 69, eða rússa jeppi, hefur fengið alls- herjar yfirhalningu hjá rúss- neska breytingafyrirtækinu Truck Garage. Truck Garage er í St. Pétursborg og það ætlar að breyta tólf svona bílum og selja þá á sem svarar 7,5 millj- ónum króna. Endanleg útkoma bílsins er því að öllu leyti rúss- nesk. Bíllinn verður með 6,4 lítra V8 Hemi-vél, 465 hest- afla. Bíllinn er að sjálfsögðu fjórhjóladrifinn og sjálfskipt- ur. Hann fær stillanlega „coil- over“-fjöðrun, Teraflex-diska- bremsur, splittað drif og 17 tommu felgur með 35 tommu dekkjum á. Að innan verður bíllinn afar breyttur frá frum- gerðinni, þó að útlitið verði í „retro“-stíl. Hann verður með leðursætum með rafdrifnum stillingum, hljómtækin eru af betri gerðinni þótt útlit þeirra sé „retro“ og allar hugsanleg- ar tengingar verða í bílnum, þ. á m. Bluetooth og iPhone. Miðað við lýsinguna á bíln- um má ef til vill segja að hann verði á góðu verði, eða nær jepplingaverði en jeppaverði hér á landi. Auk þess er hann ógnaröflugur og hreinlega flottur. Kannski finnast kaup- endur að honum hérlendis? Átta strokka rússajeppi  Bílar Fréttablaðið 2 12. janúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.