Fréttablaðið - 12.01.2016, Page 28
2,1 dísilvél, 170 hestöfl
fjórhjóladrif
eyðsla 5,5 l/100 km
í blönduðum akstri
Mengun 129 g/km CO2
hröðun 8,3 sek.
hámarkshraði 210 km/klst.
verð 8.360.000 kr.
Umboð Askja
l Stop&Go ádrepibúnaður
l Verð
l Aksturseiginleikar
l Glæsileiki
l Skipting
Mercedes
Benz
Mercedes Benz GLc
Finnur Thorlacius reynsluekur
S
íðastliðið sumar fór
þessi nýi jepplingur að
rúlla af færiböndun-
um hjá Mercedes Benz.
Hann leysir af hólmi
annan vel heppnaðan og
söluháan bíl úr smiðju
þeirra, Mercedes Benz GLK. Sá
bíll seldist einmitt mjög vel hér á
landi, en meiningin hjá Benz var
að gera enn betur og það virðist
hafa tekist. Fyrir það fyrsta þótti
mörgum GLK vera full kantaður
þó að gæði hans væru ekki dregin
í efa. Þessi nýi GLC-bíll er miklu
fallegri og rúnnaðri í lögun og
mun vafalaust falla fleirum í geð.
Hér er sem sagt kominn glænýr
bíll þótt hann sé byggður á sömu
botnplötu og C-Class fólksbíllinn
og það skýrir kannski helst síðasta
stafinn í nafni hans. Auk þess eru
íhlutir GLC að 70 prósentum þeir
sömu og í C-Class bílnum. GLC er
aðeins stærri en forverinn GLK,
hann er 1,2 cm lengri og 0,4 cm
breiðari, en engu að síður er 12
cm lengra á milli hjóla. Þrátt fyrir
aukna stærð er hann þó 80 kílóum
léttari og á þar aukin notkun áls
og hástyrktarstáls stærstan þátt.
Lúxusinnrétting og aukið rými
Jafn gagnger breyting hefur orðið
á innréttingu GLC frá GLK og
allt miklu flottara og rýmra. Sem
dæmi, þá hefur fótarými að aftan
aukist um fimm sentimetra og
rými fyrir alla farþega aukist á
alla kanta. Höfuðrými í aftursæt-
um er svo gott að ekki væsir um
fullvaxna þar og tilfinningin frek-
ar sú að ferðast sé í stórum jeppa
en jepplingi. Sama er að segja um
farangursrýmið, það hefur stækk-
að verulega frá forveranum. Benz
hefur fært innréttinguna upp um
nokkra flokka hvað íburð varð-
ar og efnisvalið eftir því. Auk þess
hefur verulega verið bætt um
betur hvað hin ýmsu geymsluhólf í
bílnum varðar. Ekki kemur á óvart
að bíllinn er með lyklalausri ræs-
ingu, rafdrifnum sætum, rafdrifn-
um hliðarspeglum, rafdrifnum aft-
urhlera og 7 tommu aðgerðaskjá
og með því sést að Benz hefur ekki
viljað vera eftirbátur helstu sam-
keppnisbílanna, Audi Q5, BMW
X3, Land Rover Discovery Sport
og Lexus NX.
Fjórar akstursstillingar og 9 gíra
kassi
Ein besta nýjungin í GLC eru
hinar mismunandi akstursstilling-
ar sem velja má á milli eftir að-
stæðum. Þar má finna stillingarn-
ar Eco, Comfort, Sport og Sport+
og finnst vel fyrir muninum á
þeim. Mjög gaman er að flýta sér
á þessum jepplingi og þá er rétt að
velja annaðhvort Sport eða Sport+
og láta öfluga vélina hafa fyrir
hlutunum og finna hversu góð hin
níu gíra sjálfskipting bílsins vinn-
ur með henni. Auk þess er fjöðr-
un bílsins afar vel heppnuð og rás-
festan því til fyrirmyndar. Sú gerð
GLC sem var til prufu heitir GLC
220 og er með 170 hestafla dísilvél
og 2,1 lítra sprengirými. Þetta er
spræk vél sem hentar bílnum vel
og vakti hvað mesta furðu hve hun
er ótrúlega hljóðlát af dísilvél að
vera. Vel hefur heppnast að hljóð-
einangra bílinn og er hann með
þeim allra bestu hvað það varðar.
Ánægjulega lítil eyðsla
Annað sem kom skemmtilega á
óvart var lítil eyðsla bílsins og það
er ekki oft sem uppgefnar eyðslu-
tölur nást, en hann hjó verulega
nærri uppgefinni eyðslu upp á 6,3
lítra í borgarakstri. Þessi reynsla
er sjaldgæf og vekur athygli fyrir
þetta stóran bíl. Eitt af því fáa sem
fór í taugarnar á ökumanni var
Stop&Go ádrepibúnaður bílsins,
en ræsing hennar er gróf og ekki
viðbragðssnögg. Það er þó hugg-
un harmi gegn að drepa má á þess-
um búnaði, sem sannast sagna er
ekki svo mikilvægur í íslenskri
umferð en er til þess hugsaður að
minnka eyðslu bílsins og mengun
í leiðinni. Í heildina má segja að
aksturshæfni þessa bíls sé með
því besta sem gera má kröfu um
hjá jepplingi, en satt best að segja
minnti hún á góðan fólksbíl.
dýrari en samkeppnisbílarnir
En hvernig stendur hann sig gagn-
vart keppinautunum í verði? Ódýr-
ustu gerð bílsins má fá á 8.360.000
kr. þó að reynsluakstursbíllinn
hafi verið dýrari. Audi Q5 kostar
7.990.000 kr. í ódýrustu útfærslu
og BMW X3 kostar 7.290.000
kr. Land Rover Discovery Sport
með 180 hestafla dísilvél kostar
7.790.000 kr. og Lexus NX kostar
Vel heppnuð kynslóðaskipti
Leysir af hólmi GLK og er gerbreyttur í útliti, er örlítið stærri en miklu laglegri bíll. Hann er byggður á
sömu botnplötu og C-Class og þaðan kemur síðasti stafurinn í nafninu.
myndir/gva
Bílar
Fréttablaðið
6 12. janúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR