Fréttablaðið - 12.01.2016, Síða 28

Fréttablaðið - 12.01.2016, Síða 28
2,1 dísilvél, 170 hestöfl fjórhjóladrif eyðsla 5,5 l/100 km í blönduðum akstri Mengun 129 g/km CO2 hröðun 8,3 sek. hámarkshraði 210 km/klst. verð 8.360.000 kr. Umboð Askja l Stop&Go ádrepibúnaður l Verð l Aksturseiginleikar l Glæsileiki l Skipting Mercedes Benz Mercedes Benz GLc Finnur Thorlacius reynsluekur S íðastliðið sumar fór þessi nýi jepplingur að rúlla af færiböndun- um hjá Mercedes Benz. Hann leysir af hólmi annan vel heppnaðan og söluháan bíl úr smiðju þeirra, Mercedes Benz GLK. Sá bíll seldist einmitt mjög vel hér á landi, en meiningin hjá Benz var að gera enn betur og það virðist hafa tekist. Fyrir það fyrsta þótti mörgum GLK vera full kantaður þó að gæði hans væru ekki dregin í efa. Þessi nýi GLC-bíll er miklu fallegri og rúnnaðri í lögun og mun vafalaust falla fleirum í geð. Hér er sem sagt kominn glænýr bíll þótt hann sé byggður á sömu botnplötu og C-Class fólksbíllinn og það skýrir kannski helst síðasta stafinn í nafni hans. Auk þess eru íhlutir GLC að 70 prósentum þeir sömu og í C-Class bílnum. GLC er aðeins stærri en forverinn GLK, hann er 1,2 cm lengri og 0,4 cm breiðari, en engu að síður er 12 cm lengra á milli hjóla. Þrátt fyrir aukna stærð er hann þó 80 kílóum léttari og á þar aukin notkun áls og hástyrktarstáls stærstan þátt. Lúxusinnrétting og aukið rými Jafn gagnger breyting hefur orðið á innréttingu GLC frá GLK og allt miklu flottara og rýmra. Sem dæmi, þá hefur fótarými að aftan aukist um fimm sentimetra og rými fyrir alla farþega aukist á alla kanta. Höfuðrými í aftursæt- um er svo gott að ekki væsir um fullvaxna þar og tilfinningin frek- ar sú að ferðast sé í stórum jeppa en jepplingi. Sama er að segja um farangursrýmið, það hefur stækk- að verulega frá forveranum. Benz hefur fært innréttinguna upp um nokkra flokka hvað íburð varð- ar og efnisvalið eftir því. Auk þess hefur verulega verið bætt um betur hvað hin ýmsu geymsluhólf í bílnum varðar. Ekki kemur á óvart að bíllinn er með lyklalausri ræs- ingu, rafdrifnum sætum, rafdrifn- um hliðarspeglum, rafdrifnum aft- urhlera og 7 tommu aðgerðaskjá og með því sést að Benz hefur ekki viljað vera eftirbátur helstu sam- keppnisbílanna, Audi Q5, BMW X3, Land Rover Discovery Sport og Lexus NX. Fjórar akstursstillingar og 9 gíra kassi Ein besta nýjungin í GLC eru hinar mismunandi akstursstilling- ar sem velja má á milli eftir að- stæðum. Þar má finna stillingarn- ar Eco, Comfort, Sport og Sport+ og finnst vel fyrir muninum á þeim. Mjög gaman er að flýta sér á þessum jepplingi og þá er rétt að velja annaðhvort Sport eða Sport+ og láta öfluga vélina hafa fyrir hlutunum og finna hversu góð hin níu gíra sjálfskipting bílsins vinn- ur með henni. Auk þess er fjöðr- un bílsins afar vel heppnuð og rás- festan því til fyrirmyndar. Sú gerð GLC sem var til prufu heitir GLC 220 og er með 170 hestafla dísilvél og 2,1 lítra sprengirými. Þetta er spræk vél sem hentar bílnum vel og vakti hvað mesta furðu hve hun er ótrúlega hljóðlát af dísilvél að vera. Vel hefur heppnast að hljóð- einangra bílinn og er hann með þeim allra bestu hvað það varðar. Ánægjulega lítil eyðsla Annað sem kom skemmtilega á óvart var lítil eyðsla bílsins og það er ekki oft sem uppgefnar eyðslu- tölur nást, en hann hjó verulega nærri uppgefinni eyðslu upp á 6,3 lítra í borgarakstri. Þessi reynsla er sjaldgæf og vekur athygli fyrir þetta stóran bíl. Eitt af því fáa sem fór í taugarnar á ökumanni var Stop&Go ádrepibúnaður bílsins, en ræsing hennar er gróf og ekki viðbragðssnögg. Það er þó hugg- un harmi gegn að drepa má á þess- um búnaði, sem sannast sagna er ekki svo mikilvægur í íslenskri umferð en er til þess hugsaður að minnka eyðslu bílsins og mengun í leiðinni. Í heildina má segja að aksturshæfni þessa bíls sé með því besta sem gera má kröfu um hjá jepplingi, en satt best að segja minnti hún á góðan fólksbíl. dýrari en samkeppnisbílarnir En hvernig stendur hann sig gagn- vart keppinautunum í verði? Ódýr- ustu gerð bílsins má fá á 8.360.000 kr. þó að reynsluakstursbíllinn hafi verið dýrari. Audi Q5 kostar 7.990.000 kr. í ódýrustu útfærslu og BMW X3 kostar 7.290.000 kr. Land Rover Discovery Sport með 180 hestafla dísilvél kostar 7.790.000 kr. og Lexus NX kostar Vel heppnuð kynslóðaskipti Leysir af hólmi GLK og er gerbreyttur í útliti, er örlítið stærri en miklu laglegri bíll. Hann er byggður á sömu botnplötu og C-Class og þaðan kemur síðasti stafurinn í nafninu. myndir/gva Bílar Fréttablaðið 6 12. janúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.