Fréttablaðið - 12.01.2016, Qupperneq 34
Skoda ætlar að kynna nýjan sjö
sæta jeppa á bílasýningunni í
París í október á næsta ári en
hann hefur verið í þróun í langan
tíma. Þýskir fjölmiðlar greina frá
því að Skoda ætli að kalla þennan
bíl Kodiak, en það er nafnið á
einni undirtegund skógarbjarna.
Jeppinn mun fá sama undirvagn
og er undir nýrri kynslóð Tiguan-
jepplings Volkswagen, en hann er
af MQB-gerð og má því stækka
og minnka að vild, eftir því hvaða
bíll á í hlut. Hann á að verða 4,75
metra langur og fást bæði með
fjórhjóladrifi og framhjóladrifi.
Hann verður kominn á markað
áður en næsta ár verður liðið og
kosta í sinni ódýrustu gerð um
24.000 evrur, eða 3,4 milljónir
króna í Þýskalandi. Hann verður
smíðaður í Kvasiny-verksmiðju
Skoda í Tékklandi og verður hægt
að fá í bæði fimm og sjö sæta
útfærslu. Þetta verður jafnframt
fyrsti jeppi Skoda frá upphafi.
Fær nýr jeppi
Skoda nafnið
Kodiak?
Mest seldi bíll heims, Ford Focus,
er til í mörgum útgáfum með
mörgum vélarkostum en Ford
hefur ákveðið að bæta tveimur
útgáfum við sem kallaðar verða
svarta og rauða útgáfan. Þær
verða sportlegri en hefðbundinn
Focus, með stífari fjöðrun, svörtu
grilli, rauðum púströrum og á
svörtum 18 tommu felgum. Auk
þess er í þeim báðum leðurklætt
stýri, ryðfrítt stál í pedulum og
stöguð sæti með rauðum þræði.
Í svörtu útgáfunni, sem er að
sjálfsögðu með aðallitinn svartan,
eru ýmsir smærri hlutar bílsins
að utan sprautaðir rauðir og
það snýst við í rauðu útgáfunni.
Vélarkostir bílanna eru allt frá
125 til 182 hestafla bensínvélar
og 120 til 150 hestafla dísilvélar.
Allar gerðir þeirra eru með sex
gíra beinskiptingu og með því
sést hversu sportlegir þeir eiga
að vera. Ekki kemur fram hversu
miklu dýrari þessar útgáfur verða
en hefðbundinn Focus.
Svört og
rauð útgáfa
Ford Focus
Það myndu líklega fáir trúa því að
þessi bíll væri af Volvo-gerð. Aðeins
var smíðað eitt eintak af honum
því hætt var við framleiðslu hans.
Bíllinn er nú á safni Volvo í Gauta-
borg. Meiningin var að markaðs-
setja þennan bíl í Bandaríkjunum,
en eins og sjá má ber hann mikinn
svip þarlendra bíl á þessum árum,
en þessi bíll var smíðaður árið
1952. Hann fékk nafnið Philip og
var með 120 hestafla 8 strokka vél,
ekta amerísk hugsun þar og ekki
beint sænsk. Það var síðan ekki
fyrr en árið 1955 að Volvo hóf sölu
bíla sinna í Bandaríkjunum með
Volvo Amazon-bílnum.
Að selja eskimóum ísskápa
Mörgum varð þá á orði að það
væri líkt og að reyna að selja
eskimóum ísskápa að reyna að
selja Bandaríkjamönnum bíla sem
ekki væru framleiddir þar. En hvað
síðan hefur gerst, bæði hvað Volvo
varðar og ekki síst japanska og
þýska bílaframleið endur,
sannar að það var full
ástæða til að selja
Bandaríkja mönnum
bíla, sem margir hver-
jir voru betur smíðaðir
en heimabílarnir og
eyddu mun minna elds-
neyti. Volvo Amazon-bíl-
linn sem seldur var í Bandaríkju-
num var með 70 hest afla vél sem
ekki var að finna í þeim bílum sem
seldir voru í Evrópu, en þar var
hann aflminni. Það átti þó ekki við
nokkra bíla sem voru í þjónustu
sænsku lögreglunnar, en hún
fékk bíla með öflugri vélinni því
ekki máttu gangsterarnir stinga
lögguna af!
Var of mikil eftirlíking Kaiser
Á þeim tíma sem Volvo hefur
sölu á bílum í Bandaríkjunum
höfðu bílkaupendur þar ekki
hugmynd um að Volvo
hafði þremur árum áður
búið til bíl sem átti
miklu frekar að höfða
til smekks þeirra, en
hann fór bara aldrei í
framleiðslu. Ein ástæða
þess var sú að bíllinn þótti allt of
mikil eftirlíking Kaiser af árgerð
1951. Volvo fór þó með þetta eina
eintak sem smíðað var af Philip
bílnum til Ameríku til að sýna
hann, bæði á World Expo sýning-
unni og einnig sýndi Volvo hann
nokkrum af yfirmönnum Ford.
Philip-bíll Volvo var teiknaður af
Jan Wilsgaard, en hann teiknaði
alla bíla Volvo á þeim tíma og allt
fram að hönnun Volvo 850 árið
1989. Það skondna er að vélin í
Philip-bílnum átti framhaldslíf
hjá Volvo þó að bíllinn hafi aldrei
farið í fjöldaframleiðslu. Vélin var
notuð t.d. í L420 Snabbe vörubíla.
Amerískur Volvo-dreki
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
á þinni leið
Bílar
Fréttablaðið
12 12. janúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR