Fréttablaðið - 12.01.2016, Page 40

Fréttablaðið - 12.01.2016, Page 40
Elskuleg dóttir mín og systir okkar, Gunnlaug Óladóttir Snægili 1, Akureyri, lést 29. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þórunn G. Pálsdóttir Hugrún Óladóttir Gunnar Páll Ólason Jón Kristján Ólason Lovísa Óladóttir Kristveig Óladóttir Hildur Óladóttir Halla Óladóttir og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, Guðrún Marta Eyjólfsdóttir lést á Hrafnistu þann 17. des. 2015. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Alúðarþakkir til starfsfólks á 3B Hrafnistu í Hafnarfirði. Sigurbjörg G. Jónsdóttir Eyjólfur Jónsson Sigurþór Jónsson Sólveig Jónsdóttir og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, sonur og bróðir, Hafsteinn Þór Guðmundsson Hátúni 10a, lést á taugadeild Landspítalans þann 6. janúar síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Fíladelfíukirkju miðvikudaginn 13. janúar kl. 13.00. Alexandra Emilia Guðmundsdóttir Guðmundur R. Kristmannsson Anna M. Pollestad Margrét Erla Halldórsdóttir Bryndís Ösp Valsdóttir Einar G. Karlsson Kristmann Rúnar Guðmundsson Kristoffer Pollestad Guðmundsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ágúst Arason Hringbraut 50, áður til heimilis að Grýtubakka 4, Reykjavík, lést þriðjudaginn 5. janúar. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 14. janúar kl. 13.00. Haukur Ágústsson Kristín Auðunsdóttir Guðrún Edda Ágústsdóttir Hróbjartur Ágústsson Sigríður Oddsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, Hreinn Elli Bjarnason lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði sunnudaginn 10. janúar. Margrét Hrefna Burr og fjölskylda Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Lögfræðiþjónusta Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðríður Matthíasdóttir frá Ísafirði, Sóltúni 28, Reykjavík, lést á Landakoti mánudaginn 4. janúar 2016. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 12. janúar kl. 13. Erna Elísabet Jóhannsdóttir Jón Rúnar Kristjónsson Bergþóra Margrét Jóhannsdóttir Björn Olsen Matthías Árni Jóhannsson Guðrún Þórsdóttir ömmubörn og langömmubörn. „Fyrstu skrefin er skemmtilegt verk- efni,“ segir Auður Elva Kjartansdóttir um léttar fjallgöngur á vegum Ferða- félags Íslands sem eru farnar á sunnu- dagsmorgnum á suðvesturhorninu frá janúar fram í maí. Hún er meðal þriggja umsjónarmanna þessa verkefnis. Hinir eru Reynir Traustason og Ólafur Sveins- son. „En er ekki stórhættulegt að ganga á fjöll í hálku og snjó eins og einkennir oft janúarmánuð?“ spyr lífhræddur blaðamaðurinn. „Nei, þetta eru göngur á færi flestra, fólk þarf bara að verða sér úti um hálkubrodda til að fóta sig. Þetta eru engar svaðilfarir en samt góðar til að efla hreysti, þrek og þor og njóta samveru í náttúrunni,“ fullyrðir Auður Elva sem fór sína fyrstu ferð sem farar- stjóri hjá Ferðafélaginu átján ára gömul og hefur, að eigin sögn, stundað fjall- göngur nánast allt sitt líf. Fyrstu skrefin í verkefninu á þessu ári voru farin í fyrradag í blíðskaparveðri. Þá gengu 48 manns óhefðbundna leið upp á Helgafell í Mosfellsbæ, að sögn Auðar Elvu. „Það er gaman að fylgjast með fólki sem er óvant fjallgöngum á þessum árstíma prófa þær í fyrsta sinn og upplifa vetrarbirtuna,“ segir hún og tekur fram að fólk geti skráð sig út þennan mánuð, síðan haldi það hóp- inn. „Þá fer fólk að þekkjast innbyrðis. Það er ávinningurinn af því að ganga með öðrum.“ Auður Elva vinnur á snjóflóðavakt Veðurstofunnar og er því þaulvön að lesa í allar spár. Hún segir ferðaáætlun vetrarins hugsaða út frá íslenskri veðr- áttu og ef spáin sé afleit fyrir sunnudaga sé ferðum flýtt um einn dag. „Við förum ekki út í neina vitleysu en langoftast hefur allt gengið upp og allir verið sáttir og glaðir. Partur af prógramminu er að venjast því að vera úti að vetri til. Marg- ir eiga erfitt með að trúa því að það sé skemmtilegt að fara út fyrir hússins dyr í janúar og febrúar. En ég get fullyrt að bjartsýnin eykst og orkustigið hækkar við að vera úti í náttúrunni á vetrar- morgnum.“ gun@frettabladid.is Efla hreysti, þrek og þor og njóta samveru Hjá Ferðafélagi Íslands eru yfir 200 ferðir á döfinni á nýju ári. Meðal þeirra eru léttar göngur á fjöll í nágrenni borgarinnar frá því í janúar fram á vor, undir formerkjunum Fyrstu skrefin. Það er gaman að fylgjast með fólki sem er óvant fjallgöngum á þessum árstíma prófa þær í fyrsta sinn og upplifa vetrarbirtuna. Auður Elva Kjartansdóttir „Þetta eru göngur á færi flestra,“ segir Auður Elva um verkefnið Fyrstu skrefin sem hún leiðir ásamt tveimur herramönnum. FréttAblAðið/Ernir 1 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D a G U r20 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð tímamót

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.