Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2016, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 12.01.2016, Qupperneq 54
Ég hef tvisvar upplifað að lista- maðurinn sem Ég hitti verður stærri við kynningu en Ég hefði búist við. leonard Cohen var annar og bowie hinn. Fitul’til og pr—teinr’k . . . … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Bugaðir bowie aðdáendur Fregnir af andláti Davids Bowie virðast hafa snert við heimsbyggð allri með ótrúlegum hætti, og virðist sem fólk hafi tengst þessu listræna kamel- ljóni einstökum böndum, enda gríðarlega langur ferill að baki. Hann lést eftir átján mánaða baráttu við krabbamein, sem fæstir vissu af. Ég var stödd í foreldrahúsum og var nývöknuð, tók upp símann, fór á Facebook auðvitað og þetta var það fyrsta sem ég sá. Það hvarflaði að mér í nokkrar sekúndur að þetta væri eitthvert bull bara. En svo kallaði ég mjög dramatískt, mamma er þetta satt?,“ segir Anna Margrét Káradóttir, leik-og söngkona. Hún er mikill aðdáandi goðsins og hefur hlustað á Bowie frá blautu barnsbeini, svo andlátsfréttirnar snertu vissulega við henni. „Það eru eiginlega ekki til nógu stór orð til að lýsa þessum manni, hann fór sannarlega sínar eigin leiðir, og músíkin hans er svo mikil veisla fyrir eyrun, og hvað þá augun, þar sem hann er svo mikill performer. Þetta er maður sem gerði allt frá hjartanu, og við svo fáránlega heppin að fá að njóta.“ Anna Margrét segist sækja mikinn innblástur í Bowie varðandi sviðsfram- komu, og segist aldrei munu gleyma þegar leiklistarkennari hennar í Rose Bruford listaskól- anum laumaði að henni að þeir hefðu verið skólafélagar. „Hann hafði áhrif á alla, þessi maður.“ Aðspurð um uppáhaldslag stendur ekki á svörum; „ Þau eru mörg, en Life on Mars stendur upp úr. Það er gæsahúðarsprengja.“ mamma, er þetta satt? Maður er bara klökkur við að ræða þetta,“ segir Atli Berg­mann, sem síðan á unglings­ aldri hefur farið í gegnum lífið með David Bowie í eyrunum. „Ég ólst upp við þessa tónlist, og hún hafði djúpstæð áhrif á mig sem ungling. Þegar maður fór á vertíð á Tálkna­ firði var maður með eitt segul­ bandstæki og eina kassettu sem spiluð var í gegn, og ekki hlustað á neitt annað í marga mánuði.“ Atli varð þó þess heiðurs aðnjót­ andi sem eflaust margir hafa öfund­ að hann af, að sjá um öryggisgæslu á tónleikum sem kappinn hélt í Laugardalshöll árið 1996. „Ég sá um öryggisgæslu fyrir þetta helsta lið sem hingað kom, og hitti allar þessar stjörnur á borð við White Snake, Sting og fleiri. Ég hef tvisvar upplifað að listamaðurinn sem ég hitti verður stærri við kynningu en ég hafði búist við. Leonard Cohen var annar og Bowie hinn,“ útskýrir Atli og aðdáunin í röddinni leynir sér ekki. „Maður býst við miklu, hann hafði verið idolið mitt síðan í æsku, að hitta svo manneskjuna í raun, og hún er stærri, dýpri og fal­ legri. Það er magnað.“ Atli segir Bowie einfaldlega hafa verið einn af þessum stærstu lista­ mönnum sem heimurinn hefur átt, hann hafi í senn verið tón­ listarmaður, tískumógúll og leikari. „Hann var kamelljónið sem var alltaf að endurnýja sig.“ Hann segir jafnframt miklar og djúpar pæl­ ingar hafa einkennt tónlistarmann­ inn, og nýjasta efnið frá honum hafi verið algjör snilld, en spurður hvort hann eigi sér uppáhaldslag, svarar Atli því til að Heroes komi upp í hugann, og svo Starman. „Það var mitt fyrsta uppáhaldspopplag, og ég hringdi inn í Óskalög sjómanna og bað um að fá að heyra það,“ segir hann að lokum. Ég hef verið aðdáandi síðan ég var barn, foreldrar mínir hlustuðu á þetta og maður hreifst með,“ segir Unnar Helgi Daníelsson, sem státar af ansi voldugu húðflúri af andliti sjálfs Bowies. „Ég fékk mér þetta tattú þegar ég var átján ára gamall, og þetta er fyrsta tattúið sem ég fékk mér. Ég grét í sex klukkutíma, en þetta var þess virði. Ég hlustaði mjög mikið á hann á þessu tímabili og geri það svo sem enn þegar færi gefst.“ En Unnar lét ekki þar við sitja, og lét síðar flúra á sig Starman, heiti á lagi Bowies á plötunni Ziggy Stardust frá árinu 1972. „Það lag er auðvitað í uppáhaldi, en annars finnst mér erfitt að velja á milli og segja eitthvað eitt uppáhalds, þannig séð. Changes er mjög gott, og sömuleiðis Heroes, og Space Oddity. Svo er Life on Mars algjört listaverk.“ geymir myndina á filmunni það sem eftir er fyrsta flúrið bowiebowie kamelljón Tímalínan 1 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D a G U r34 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð Ég er fæddur á þannig tímabili, að Scary Monsters, er í mínum huga soundtrack æskunnar. Það hljómaði úr svefnherbergi stóru systur minnar,“ segir Frosti Logason útvarps- maður um kynni sín af Bowie. Síðar færði hann sig upp á skaftið og sló eignarhaldi á vínylplötur hennar, sem hann vonar að geri ekki tilkall til þeirra úr þessu. Frosti segir Bowie hafa verið sérlega merkilegan fyrir þær sakir að hann hafi átt sér margar hliðar, verið fjölbreyttur listamaður sem gefið hafi út mikið af efni, enda ferillinn langur. „Honum tókst alltaf að vera kúl og steig aldrei neitt feilspor þar.“ Frosti datt svo sannarlega í lukku- pottinn í Leifsstöð árið 1996 þegar hann rakst á átrúnaðargoðið holdi klætt. „Hann var rétt kominn úr rananum að ganga frá borði, þá náði ég að stökkva á hann áður en lífvarða- hópurinn komst að, og spyr hann „Can I have a picture?“ rétt áður en crew-ið mætti. Ég framkall- aði reyndar aldrei þá filmu, á hana bara merkta inni í skáp. Ég hugsa að ég láti aldrei verða af því að gera það,“ segir hann, hlær og lætur nægja að halda í minninguna án frekari sannana. 1947 David Robert Jones er fæddur þann 8. janúar í Suður- London 1967 fyrsta plata Bowie, David Bowie 1969 Space Oddity 1970 The Man Who Sold the World 1971 Hunky Dory 1972 The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars 1973 Aladdin Sane 1973 Pin Ups 1974 Dia- mond Dogs 1975 Young Americans 1976 Station to Station 1977 Low 1977 Heroes 1979 Lodger 1980 Scary Monsters (And Super Creeps) 1983 Let’s Dance 1984 Tonight 1987 Never Let Me Down 1989 Tin Machine 1991 Tin Machine II 1993 Black Tie White Noise 1995 Outside 1997 Earthling 1999 ‘Hours...’ 2002 Heathen 2003 Reality 2013 The Next Day 2016 Blackstar 1955 1965 1975 1985 1995 2005 2015

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.