Fréttablaðið - 12.01.2016, Blaðsíða 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Kolbeins Tuma
Daðasonar
Bakþankar
Margt bendir til að áratugum saman hafi spilling fengið að grassera óáreitt innan
fíkniefnadeildar lögreglu. Ætti það
ekki að koma neinum á óvart. Alls
staðar má finna skemmd epli, sem í
þessu tilfelli láta heila deild, þar sem
flestir sinna starfi sínu af heilindum
þrátt fyrir freistingar og lág laun,
líta illa út. Afbrotafræðingur sagði
á dögunum að blað yrði brotið í
Íslandssögunni kæmi upp á yfir-
borðið mál þar sem lögreglumanni
hefði verið mútað.
Forsendurnar eru hins vegar
hlægilegar. Áratugum saman hafa
lögreglumenn starfað án því sem
næst nokkurs eftirlits með störfum
þeirra. Er því nokkur furða að upp
komi slík mál? Á sama hátt væri
eflaust lítið (lesist ekkert) um hand-
tökur og dóma hér á landi yfirleitt
ef enginn væri til að fylgjast með
því hvort hinn almenni borgari
gerðist brotlegur við lög. En enginn
fylgist með lögreglu.
Fyrir um tveimur til þremur
áratugum voru uppi alvarlegar
ásakanir á hendur yfirmönnum
fíkniefnadeildar vegna óeðlilegra
samskipta þeirra við Franklín
Steiner. Öllum var ljóst að þar fór
aðili sem hafði tögl og hagldir í
lengri tíma þegar kom að sölu á
fíkniefnum. Hjálpaði þar til sam-
komulag við yfirmenn þar sem
hann benti á keppinauta en fékk
frið á móti.
Eftir gagnrýna fjölmiðlaum-
fjöllun varð ómögulegt annað en að
samskiptin yrðu rannsökuð. Mikil
þöggun var í kringum rannsóknina
og reyndust ekki næg sönnunar-
gögn til að ákæra. Er það nokkur
furða, ekkert eftirlit hafði verið
með því sem fram fór þann áratug
sem til rannsóknar var. Tuttugu
árum síðar eru gagnrýnisraddir
enn háværar þegar kemur að fíkni-
efnadeildinni. En í ljósi þess að enn
fylgist enginn með því sem fram fer
má telja ólíklegt að sönnunargögn
finnist nú frekar en þá.
Skemmd epli
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Að breyta þinni hugmynd
í veruleika. Færa úr tölvutæku
formi í fullkominn prentgrip.
Þar liggur okkar ástríða.