Fréttablaðið - 13.05.2016, Blaðsíða 48
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Elskulegur eiginmaður minn,
Óli Berg Kristdórsson
„Óli í Pallaleigunni“
Skógarhlíð 43, Akureyri,
lést 25. apríl síðastliðinn
á Landspítalanum. Bálför hefur farið
fram en minningarathöfn verður haldin
í Akureyrarkirkju á sjötugsafmælinu
hans þann 13. júní næstkomandi.
Inger Nordahl Jensen
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Olgeir Þorsteinsson
frá Ölviskrossi,
til heimilis að Bárugötu 18, Akranesi,
sem lést 7. maí á Sjúkrahúsi Akraness,
verður jarðsunginn þann 17. maí kl. 13
frá Akraneskirkju.
Fyrir hönd vandamanna,
Arndís Kristín Daðadóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður, tengdaföður og afa okkar,
Jóns Gunnars Tómassonar
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á
hjartadeild 14-E á Landspítala og
starfsfólk heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar
fyrir frábæra umhyggju og umönnun.
Helga Matthildur Jónsdóttir Rafn Rafnsson
Tómas Jónsson Áslaug Briem
Sigríður María Jónsdóttir Björn Bjartmarz
og barnabörnin.
Ástkær móðir mín, amma okkar,
langamma og frænka,
Sigurlaug Helga Leifsdóttir
lést þriðjudaginn 10. maí. Útförin fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
17. maí kl. 13.00. Samtímis fer fram útför
dóttur hennar, Jóhönnu Hákonardóttur.
Leifur Hákonarson
Hákon Helgi Leifsson
Sara Leifsdóttir
Sigurlaug Helga Teitsdóttir
Álfheiður Erla Sigurðardóttir
og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
vegna andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
Mekkínar Guðnadóttur
frá Sigtúnum, Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
dvalarheimilisins Hlíðar, Akureyri.
Bjarni Kristjánsson Elísabet Guðmundsdóttir
Gunnar Kristjánsson Oddný Vatnsdal
Jón Guðni Kristjánsson
Sigrún Kristjánsdóttir Haraldur Hauksson
Helga Sigrún Harðardóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskulegur faðir minn,
Magnús Lárus Jónsson
fæddur 14. september 1919,
lést í heimabæ sínum, Sterling Virginia,
USA, miðvikudaginn 4. maí síðastliðinn.
Jon Erik Jonsson
og fjölskyldan hans á Íslandi.
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs sambýlismanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sigursteins Guðmundssonar
læknis við Héraðshæli
Austur-Húnvetninga á Blönduósi.
Kristin Ágústsdóttir
Matthías L Sigursteinsson Fanney Zophoníasdóttir
Rósa M. Sigursteinsdóttir Rúnar Þór Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, sonur og tengdasonur,
Kristinn Rúnar Karlsson
Bogabraut 950,
Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi,
fimmtudaginn 5. maí.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju,
þriðjudaginn 17. maí kl. 13.00.
Svanlaug Halldórsdóttir
Kristrún Halla Kristinsdóttir
Marzuk Ingi Svanlaugar, Aazis Freyr Svanlaugarson
Karl G. Sævar
Kolbrún Sigurðardóttir, Halldór Ingi Sigurjónsson
og aðrir aðstandendur.
„Tæknidagurinn er uppskeruhátíð
nemenda í tækni og verkfræðideild
Háskólanum í Reykjavík. Stærsta verk-
efnið sem við komum til með að kynna
er keppnisbíll fyrir Formula student sem
nemendur stefna á að koma á Silver-
stone-kappakstursbrautina í Bretlandi
í sumar,“ segir Guðrún Sævarsdóttir,
deildarforseti tækni- og verkfræðideild-
ar Háskólans í Reykjavík.
„Aðalástæðan fyrir því að við erum
með verkefni af þessu tagi í gangi er
að nemendur öðlist reynslu því það að
vera góður verkfræðingur eða tækni-
fræðingur er ekki einungis spurning um
að vera flinkur að reikna dæmi heldur
er mikilvægt að geta unnið með skorð-
urnar sem þú færð og gert eitthvað sem
virkar,“ segir Guðrún.
Meðal verkefna sem nemendur unnu
að þetta árið er lítil vatnsaflsvirkjun
með túrbínu, virkjun sjávaröldu, könn-
un á rafgæðum á Akranesi, búnaður til
að fylgjast með rennsli í ám og lækjum
sem sendir gögn með GSM, þraut í
undankomuherbergi og ljósastýring
með 3D-skynjun á staðsetningu handar.
„Veittar verða viðurkenningar Tækni-
fræðingafélags Íslands fyrir framúr-
skarandi lokaverkefni í tæknifræði. Þau
verkefni sem hljóta viðurkenningu í ár
eru steypt útveggjaklæðning með bas-
altbendingu, veðurkápa á forsteyptum
útveggjaeiningum með basalttrefja-
bendingu, búnaður til rafmagnsfram-
leiðslu í bauju og virkjun svínagass á
Vatnsleysuströnd,“ segir Guðrún og
bætir við að allir séu velkomnir.
gudrunjona@frettabladid.is
Fjölbreytt verkefni
nemenda verða til sýnis
Tæknidagur Háskólans í Reykjavík fer fram á morgun milli klukkan 13 og 17. Þar gefst
gestum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt verkefni sem nemendur í tæknifræði og verk-
fræði við háskólann hafa unnið í verklegum og hagnýtum námskeiðum. Allir velkomnir.
Guðrún Sævarsdóttir, deildarforseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík. FRéttablaðið/SteFán
1776 Konungur gefur út tilskipun um póstferðir á Íslandi, en
slíkar ferðir hefjast þó ekki fyrr en 1782.
1934 Dettifossslagurinn á Siglufirði, sem er hörð viðureign verk-
fallsmanna og andstæðinga þeirra vegna afgreiðslubanns á skip
Eimskipafélags Íslands. Hæstiréttur fellir dóm gegn verkfalls-
mönnum 1937.
1947 Sauðárkrókur verður kaupstaður með lögum frá alþingi.
1966 Íslenska ríkið kaupir Skaftafell í Öræfum undir þjóðgarð
sem er opnaður tveimur árum síðar. Jörðin er 1% alls Íslands.
1981 Mehmet Ali Ağca skýtur Jóhannes Pál páfa II á Péturstorg-
inu í Róm.
2005 Blóðbaðið í Andijan: Hermenn drepa hátt í 700 mótmæl-
endur í austurhluta Úsbekistans.
2007 Manchester United lyftir níunda bikar sínum í ensku
úrvalsdeildinni.
2012 Manchester City vinnur Englandsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu með sigri á Queens Park Rangers.
Merkisatburðir
1 3 . m a í 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U R28 T í m a m ó T ∙ F R É T T a B L a ð i ð
tímamót